iPhone 17 USB-C tengi

Áður en hafist er handa

null Viðvörun

Lesið Öryggi með rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • Stjörnu 44 mm hálfmána-biti

  • Stjörnu 100 mm hálfmána-biti

  • ESD-örugg töng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

  • Nítrílhanskar eða lófríir hanskar

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Super-skrúfu 44 mm hálfmána-biti

  • Super-skrúfu 50 mm biti

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)

  • Átaksskrúfjárn (grár, 0,55 kgf. cm)

  • Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm)

  • Átaksmælir (appelsínugulur, 0,85 kgf cm)

  • Átaksmælir (grænblár, 0,75 kgf cm)

  • Trilobe 44 mm hálfmána-biti

  • USB-C-hleðslukapall

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

Mikilvægt: Ljúkið fjarlægingarskrefum 1 til 4 fyrir glerbakstykkið. Haldið svo áfram að skrefi 1.

Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið grænbláa átaksmælinn og trilobe-bitann til að fjarlægja tvær trilobe-skrúfur úr neðri hlíf móðurborðsins. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er áfram í næsta skref.

    • Fjarlægið neðri hlíf móðurborðsins og geymið hana fyrir samsetningu.

    • Lyftið endum sveigjanlega rafhlöðukapalsins (1) og sveigjanlega kapalsins fyrir glerbakstykkið (2) af tengjunum.

      • null Varúð: Aftengja verður sveigjanlega rafhlöðukapalinn fyrst til að tryggja að slökkt sé á iPhone-símanum.

    • Lyftið endum sveigjanlega kapalsins fyrir SIM-samstæðu (4) og sveigjanlegu kaplanna fyrir USB-C tengi (3, 5) af tengjunum.

    • Fjarlægið þrjár trilobe-skrúfur.

    • Fjarlægið glerbakstykkið.

  2. Fjarlægið rafhlöðuna.

  3. Notið átaksmæli og stjörnu-bitann til að fjarlægja 10 stjörnuskrúfur. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er áfram í næsta skref.

    • Fjarlægið milliplötu SIM-samstæðunnar.

    • Fjarlægið hlíf Taptic Engine.

    • Fjarlægið neðri hátalarann.

  4. Lyftið endanum á sveigjanlegum kapli Taptic Engine úr tenginu. Fjarlægið Taptic Engine.

  5. Notið átaksmæli og super-skrúfu-bitann til að fjarlægja sex super-skrúfur. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er áfram í næsta skref.

    • null Varúð: Ekki beygja sveigjanlegu kaplana aftur um meira en 90 gráður.

    • Fjarlægið SIM-samstæðuna.

      • Gangið úr skugga um að standurinn haldist á SIM-samstæðunni þegar hún er fjarlægð.

    • Fjarlægið aðalhljóðnemann.

  6. Notið átaksmæli og trilobe-bitann til að fjarlægja þrjár trilobe-skrúfur úr USB-C tenginu.

  7. Notið átaksmæli og langa stjörnu-bitann til að fjarlægja tvær stjörnuskrúfur úr USB-C tenginu.

    • Flettið sveigjanlegum kapli USB-C-tengisins af hulstrinu.

    • Fjarlægið USB-C-tengið.

Samsetning

Skrúfuteikning

null Viðvörun

Mælt er með að setja aðeins nýjar rafhlöður í. Notaðar rafhlöður geta skemmst þegar þær eru fjarlægðar. Lesið Öryggi rafhlöðu til að fá frekari upplýsingar.

  1. Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja allar límleifar úr hulstrinu, svæðinu fyrir hljóðnema 4 og USB-C tenginu. Notið etanólþurrku eða IPA-þurrku til að strjúka af þessum svæðum.

  2. Gætið þess að jarðtengiklemmurnar tvær séu heilar. Ef þær hafa dottið af eða færst til skal nota ESD-örugga töng til að setja þær aftur á sinn stað.

    • Athugið: Fjaðrirnar á jarðtengiklemmunum snúa að skjáhlið iPhone-símans.

  3. Fjarlægið alla límborðana af nýja USB-C tenginu og takið eftir þeim svæðum þar sem lím er til staðar.

  4. Stingið USB-C hleðslukapli í tengið á iPhone-símanum. Komið USB-C tenginu fyrir í hulstrinu. Þrýstið síðan USB-C tenginu í USB-C hleðslukapalinn til að fá rétta stillingu.

    • null Viðvörun: Gangið úr skugga um að USB-C hleðslukapallinn sé ekki tengdur við aflgjafa.

  5. Stillið skrúfugötin. Ýtið síðan sveigjanlegum kapli USB-C tengisins í hulstrið og fylgist vel með svæðunum þar sem lím er til staðar.

    • Mikilvægt

      • Ekki þrýsta meðfylgjandi hljóðnema 4 á sinn stað ennþá.

      • Til að forðast að skemma hluti í kring er ráðlagt að klæðast hönskum.

  6. Notið blágræna átaksmælinn og langa stjörnubitann til að skrúfa tvær nýjar störnuskrúfur (923-13871) í USB-C tengið.

    • null Varúð: Hallið átaksmælinum lítillega til að koma í veg fyrir að skemma skrúfurnar.

  7. Fjarlægið USB-C hleðslukapalinn.

  8. Komið hljóðnema 4 fyrir vinstra megin við hátalaraþéttið. Notið svarta teininn til að þrýsta hljóðnema 4 í litla inndregna svæðið í hulstrinu.

  9. Notið græna átaksmælinn og trilobe-bitann til að setja þrjár nýjar trilobe-skrúfur í USB-C tengið.

    • Tvær skrúfur (923-13859) (1)

    • Ein skrúfa (923-13860) (2)

  10. Notið appelsínugula átaksmælinn og Super skrúfu-bitann til að skrúfa eina nýja super-skrúfu (923-13852) í hulstrið.

  11. Komið SIM-samstæðunni aftur fyrir.

  12. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 10 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og super-skrúfubitann til að skrúfa tvær super-skrúfur í SIM-samstæðuna.

    • 923-13751 (1)

    • 923-13752 (2)

  13. Komið milliplötu SIM-samstæðunnar aftur fyrir.

  14. Notið blágræna átaksmælinn og super skrúfu-bitann til að skrúfa eina super-skrúfu (923-13857) í SIM-samstæðuna.

  15. Notið bláa átaksmælinn og stjörnu-bitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-13990) í milliplötu SIM-samstæðunnar.

  16. Notið græna átaksmælinn og trilobe-bitann til að skrúfa eina trilobe-skrúfu (923-13861) milliplötu í SIM-samstæðunnar.

  17. Ýti endum sveigjanlega kapalsins fyrir SIM-samstæðuna og sveigjanlegu kaplanna tveggja fyrir USB-C tengi á tengin.

  18. Festið lím aðalhljóðnemans við hulstrið. Tryggið nákvæma jöfnun gata. Þrýstið í 15 sekúndur á límið áður en aðalhljóðnemanum er komið fyrir.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: