MacBook Neo – úrræðaleit vegna vandamála með rafhlöðu

Athugið: Þetta verklag er eingöngu ætlað fyrir MacBook Neo.

Greining vandamála

Lesið viðeigandi hjálpargreinar ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:

  • Rafhlaða tæmist hratt

  • Heldur ekki hleðslu

  • Slekkur strax á sér eftir að straumbreytirinn hefur verið tekinn úr sambandi

  • Vandamál með hleðslu rafhlöðu eða viðvaranir

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófa skjót skref fyrir úrræðaleit

  1. Leitið eftir vökvaskemmdum í tölvunni. Snerting við vökva getur valdið skammhlaupi í innri rafrásum og valdið bilun í tölvunni.

  2. Gangið úr skugga um að straumbreytirinn og hleðslukapallinn séu af réttri gerð fyrir tölvuna. Annars konar straumbreytar eða hleðslukaplar kunna að vera svipaðir í útliti en gefa mögulega ekki nægt afl til að kveikja á eða hlaða tölvuna. Athugið að aðeins sumir straumbreytar og hleðslukaplar bjóða upp á hraðhleðslu. Skoðið hjálpargreinina hér að ofan til að fá frekari upplýsingar um hvernig bera má kennsl á straumbreyti og hraðhleðslu fyrir Mac-tölvur.

  3. Skoðið öll USB-C-tengi og op á topphulstri tölvunnar í leit að aflögun, skemmdum eða óhreinindum sem gætu hindrað tenginguna. Hreinsið hvert tengi varlega með litlum mjúkum bursta sem er ekki úr málmi. Gangið úr skugga um að burstinn sé hreinn og þurr. Notið passlega mörg hár á burstanum til að komast inn í tengið. Snúið hárunum til að losa um og ná út óhreinindum. Burstið óhreinindi frá tenginu til að koma í veg fyrir að þau berist í tengið.

    • null Varúð: Áður en tengi eru hreinsuð skal aftengja allar snúrur og slökkva á tölvunni. Notið ekki úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu valdið skemmdum á yfirborðinu. Ekki skal nota málmhluti til að hreinsa burt óhreinindi eða hindranir þar sem þeir geta valdið skammhlaupi í tenginu og valdið skemmdum. Forðist að raki komist í op og ekki úða vökva beint á tölvuna. Ekki nota þrýstiloft í op tengis þar sem það gæti keyrt óhreinindi lengra inn í tengið.

  4. Vandamál með rafhlöðu geta stundum haft óvænt áhrif á afl. Gangið úr skugga um að slökkt sé á tölvunni. Ef ekki er ljóst hvort kveikt eða slökkt sé á tölvunni skal halda aflrofanum inni til að slökkva á henni. Bíðið í nokkrar sekúndur. Ýtið svo aftur á aflrofann til að kveikja aftur á tölvunni.

  5. Ef rafhlaða tölvunnar er tæmd skal tengja tölvuna við viðeigandi Apple USB-C-straumbreyti og hleðslukapal. Hlaðið hana í að minnsta kosti 10 mínútur til að ganga úr skugga um að hægt sé að hlaða rafhlöðu tölvunnar. Ef tölvan kveikir ekki á sér með straumbreyti eftir hleðslu skal halda áfram í næsta hluta. Ef kviknar á tölvunni en hún lýkur ekki ræsingarferlinu skal skoða úrræðaleit vegna vandamála með ræsingu.

Keyrið handvirk próf og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða með því að prófa skjót skref fyrir úrræðaleit skal keyra þessi handvirku próf og greiningarpróf til að einangra orsök vandamálsins:

  1. Keyrið greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir Mac-tölvu (MRI) með tölvuna tengda við viðeigandi Apple USB-C straumbreyti og hleðslukapal, ef því verður við komið.

    • Athugið: Þetta próf safnar greiningarupplýsingum um rafhlöðuna og greinir hvort mælingar hitaskynjara séu innan marka. Athugið hvort MRI-niðurstöður sýni viðvaranir eða bilanir í tengslum við rafhlöðu, afl eða hita.

Opnið tölvuna og skoðið hana

Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja hjálpargreinum eða keyra greiningarpróf skal skoða viðgerðahandbók tölvunnar um hvernig á að opna og skoða tölvuna. Hluti sem hefur skemmst eða færst til gæti verið að valda einhverju vandamálanna.

  1. Fylgið leiðbeiningum um verkferli í viðgerðahandbókinni til að fjarlægja botnhulstrið og takið rafhlöðuna úr sambandi við móðurborðið.

  2. Skoðið innri hluti og hulstrið í leit að vísbendingum um hnjask, vökvaskemmdir, óhreinindi eða brunnin eða sviðin svæði. Skoðið alla viðeigandi sveigjanlega kapla og innri tengi með tilliti til ummerkja um skemmdir eða breytingar, svo sem filmur eða aðskotahluti sem gætu truflað virkni tengis.

  3. Finnið tengi sveigjanlegs kapals USB-C-spjaldanna og gangið úr skugga um að sveigjanlegi kapallinn sé til staðar og tengdur. Ef sveigjanlega kapalinn vantar gæti hann verið undir móðurborðinu. Fjarlægið móðurborðið til að finna sveigjanlega kapalinn. Aftengið og setjið tvöfalda sveigjanlega kapal USB-C-spjaldanna aftur í móðurborðið til að staðfesta tengingu þeirra.

  4. Prófið hvort rafhlaðan kemur í veg fyrir afl. Hafið rafhlöðuna ótengda og reynið að kveikja á tölvunni með hleðslukapalinn tengdan. Hafið hleðslukapalinn tengdan, tengið rafhlöðuna aftur og reynið að kveikja á tölvunni. Ef kviknar á tölvunni þegar rafhlaðan er aftengd og ekki er hægt að kveikja á henni þegar rafhlaðan er tengd er mælt með að skipta um rafhlöðu. Haldið áfram í næsta hluta. Ef ekki kviknar á tölvunni hvort rafhlaðan er tengd eða ekki má ætla að um sé að ræða vandamál með USB-C-spjöld eða móðurborð. Haldið áfram í næsta hluta. Ef kviknar á tölvunni en hún lýkur ekki ræsingarferlinu skal skoða úrræðaleit vegna vandamála með ræsingu. Ef kviknar á tölvunni og hún lýkur ræsingarferlinu gæti hafa þurft að hagræða rafhlöðutengingunni til að leysa rafhlöðuvandamálið. Haldið áfram í næsta skref.

  5. Prófið hvort rafhlaðan hlaði sig. Tengið tölvuna við viðeigandi Apple USB-C straumbreyti og hleðslukapal. Hlaðið í að minnsta kosti 30 mínútur. Hafið hleðslukapalinn tengdan og reynið að kveikja á tölvunni. Ef ekki kviknar á tölvunni eftir hleðslu er mælt með viðgerð. Haldið áfram í næsta hluta. Ef kviknar á tölvunni en hún lýkur ekki ræsingarferlinu skal skoða úrræðaleit vegna vandamála með ræsingu. Ef kviknar á tölvunni og hún lýkur ræsingarferlinu gæti verið að rafhlaðan hafi verið tóm og að það hafi valdið rafhlöðuvandamálinu.

  6. Ef kviknaði á tölvunni við innri skoðun og prófun gæti það hafa leyst vandamálið að hagræða sveigjanlega kapli USB-C-spjaldanna eða hlaða rafhlöðuna. Tengið rafhlöðuna aftur (ef hún er aftengd), ljúkið samsetningu og staðfestið virkni.

Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um íhlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.

Skiptið um íhlutinn

Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja fyrri skrefum skal skipta um eftirfarandi íhluti fyrir hvert vandamál sem við á:

  • Ef greiningarniðurstöður sýna bilanir í USB-C-tengjum eða skemmdir eru á hleðslutengjum skal skipta um USB-C-spjöldin.

  • Ef greiningarniðurstöður sýna villur eða bilanir í rafhlöðu eða prófanir benda til vandamála með rafhlöðu skal skipta um rafhlöðuna.

  • Ef enginn ákveðinn bilaður íhlutur greindist hér fyrir ofan skal skipta um móðurborðið.

Viðgerð lokið

Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.

Staðfesting eftir viðgerð

Keyrið eftirfarandi greiningarpakka eftir viðgerðina:

  • Skoðunarbúnaður fyrir Mac-tölvu (MRI) (til að prófa heildarvirkni)

Að viðgerð lokinni skal kveikja á tölvunni og ganga úr skugga um að leyst hafi verið úr vandamálinu.

Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um íhlut. Aðra þjónustuvalkosti má finna á support.apple.com/repair.

Birt: