MacBook Pro (16 tommu, M5 Pro eða M5 Max) Rafhlaða
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Afhlaða þarf rafhlöðuna niður í 30 prósent með verkfærinu fyrir afhleðslu rafhlöðu áður en þetta ferli er hafið. Sjá verkferli fyrir afhleðslu MacBook Pro rafhlöðu.
Ekki tengja tölvuna við ytri aflgjafa meðan á viðgerð stendur.
Aðeins tæknimenn með þekkingu og reynslu til að gera við rafeindatæki ættu að skipta um rafhlöðu. Ef ekki er skipt um rafhlöðu á réttan hátt, ekki er farið rétt með varahluti eða ef ekki er farið eftir uppgefnum leiðbeiningum getur það valdið eldsvoða, meiðslum, gagnatapi eða skemmdum á tækinu, hlutum eða öðrum eignum.
Ef rafhlaðan er dælduð, útþanin, sprungin eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Fjarlægið ekki rafhlöðuna úr tækinu. Skiptið um topphulstrið með nýju topphulstri með rafhlöðu og lyklaborði.
Ekki skal endurnota eða setja upp aftur lausa rafhlöðu eða rafhlöðu sem er búið að fjarlægja. Setjið nýja rafhlöðu í.
Fjarlægið hulstrið af tölvunni.
Þegar slitnir rafhlöðuborðar eru fjarlægðir skal aðeins setja svarta teininn á staðina sem sýndir eru (1-8). Ekki stinga svarta teininum eða öðrum verkfærum inn í rauðmerktu svæðin til að forðast að gera gat á mjúka enda rafhlöðueiningarinnr og koma í veg fyrir skemmdir á öðrum íhlutum.
Varúð
Rafhlaðan inniheldur sex stakar rafhlöðusellur sem tengdar eru með svartri gjörð. Ekki beygja eða sveigja svörtu gjörðina.
Þegar límborðar rafhlöðunnar eru fjarlægðir má ekki þrýsta á íhluti í topphulstrinu sér til stuðnings. Aðeins má styðja sig við álumgjörðina ef þörf er á þegar límborðarnir eru fjarlægðir.
Fjarlægið eftirfarandi íhlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Límvirkjunarrúlla
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Jöfnunarpinnar rafhlöðu
Rafhlöðupressuplata
ESD-örugg töng (með ávölum enda)
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Torx Plus 5IP 50 mm biti
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Athugið: Nýrri rafhlöðu fylgir rafhlöðulím. Rafhlöðulím er ekki aðskilinn íhlutur sem hægt er að panta sérstaklega.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Mikilvægt
Fjarlægið límborðana einn í einu af rafhlöðusellum 1, 2, 3 og 4. Fjarlægið síðan límborðana af rafhlöðusellum 5 og 6. Hafið þessa mynd til hliðsjónar meðan rafhlaðan er fjarlægð.
Viðvörun
Ef límflipi eða -borði rafhlöðu slitnar í þessu verkferli skal fylgja leiðbeiningunum í Slitið rafhlöðulím fjarlægt úr MacBook Pro (14 tommu, M5).
Leggið tölvuna niður með rafhlöðuna næst ykkur.

Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að fjarlægja eina 5IP-skrúfu (923-14209) úr rafhlöðusamstæðunni.

Fjarlægið rafhlöðulokið af rafhlöðunni. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að fjarlægja eina 5IP-skrúfu (923-14208) úr rafhlöðusamstæðunni.

Leggið tölvuna niður þannig að rafhlöðusellur 1 og 2 séu næst ykkur og rafhlöðulímfliparnir snúi að ykkur.

Notið ESD-örugga töng til að grípa um miðjan rafhlöðulímflipann sem festur er við hlið rafhlöðusellu 1. Ekki toga strax í límflipann sem festur er við rafhlöðusellu 2.
Viðvörun: Ekki snerta hlið rafhlöðusellunnar með tönginni.

Notið ESD-örugga töng til að draga límflipann varlega frá hlið rafhlöðusellunnar. Togið í flipann þar til límflipinn er alveg skilinn frá hlið rafhlöðusellunnar.
Mikilvægt: Ekkert lím er á miðju límflipans. Lím er á endum flipans sem festir hann við hlið rafhlöðusellunnar.

Notið ESD-örugga töng til að grípa um allan rafhlöðulímflipann í rásinni við hliðina á rafhlöðusellunni.
Varúð: Sé aðeins gripið um hluta flipans getur hann slitnað.
Haldið ESD-öruggu tönginni í rásinni við hliðina á rafhlöðusellunni. Snúið svo rafhlöðulímflipanum varlega utan um endann á tönginni þar til hvíta límið sést á tönginni.
Varúð: Snúið tönginni þannig að efsti hluti hennar snúist í átt að rafhlöðunni.

Togið rafhlöðulímborðann varlega skáhalt frá rafhlöðusellunni, í átt að hlið tölvunnar. Togið límborðann upp um tvær tommur í einu. Haldið ESD-öruggu tönginni samsíða tölvunni og snúið borðanum upp á enda tangarinnar þannig að límið liggi flatt, eins og sýnt er.
Varúð
Ekki nudda borðunum utan í umgjörð topphulstursins. Ekki snerta móðurborðið með tönginni. Ekki ýta á rafhlöðuna eða aðra íhluti.
Ekki nudda borðanum á rafhlöðusellum 2 og 4 utan í svampinn á hátalaranum. Ef límið skemmir svampinn skal skipta um báða hátalarana.
Mikilvægt: Hugsanlega þarf að styðja sig við álumgjörðina þegar togað er í límborðann.

Endurtakið tog- og snúningsferlið varlega þar til rafhlöðulímborðinn hefur verið fjarlægður undan rafhlöðusellunni.
Viðvörun: Ef límflipi eða -borði slitnar skal fylgja leiðbeiningunum í Slitið rafhlöðulím fjarlægt úr MacBook Pro.
Endurtakið skref 5 til 10 á seinni rafhlöðuflipanum á rafhlöðusellu 1. Haldið svo áfram að skrefi 12.
Endurtakið skref 5 til 10 til að fjarlægja rafhlöðulímborðana af rafhlöðusellum 2, 3 og 4. Haldið síðan áfram í skref 13.
Mikilvægt: Snúið tölvunni þannig að rafhlöðusellur 3 og 4 séu næst ykkur þegar rafhlöðulímborðar þessara tveggja sella eru fjarlægðir.
Endurtakið skref 5 til 10 til að fjarlægja rafhlöðulímborðana af rafhlöðusellum 5 og 6. Haldið svo áfram í skref 14.
Mikilvægt: Snúið tölvunni þannig að skjálamirnar séu næstar ykkur þegar límborðarnir eru fjarlægðir af einingum 5 og 6.

Varúð: Setjið aldrei nein verkfæri undir rafhlöðusellur 5 og 6 við staðina sem merktir eru með rauðu hér fyrir neðan. Þetta kemur í veg fyrir skemmdir á rafeindatækni sem styður snertiborðið.

Eftir að allir rafhlöðulímborðar hafa verið fjarlægðir skal leggja tölvuna niður með rafhlöðusamstæðuna næst ykkur. Hallið upp enda samstæðunnar þar til hægt er að komast undir hana. Rennið síðan samstæðunni út undan málmflipanum fyrir stjórneiningu rafhlöðunnar (BMU) (1) og fjarlægið hana úr topphulstrinu.
Varúð
Styðjið við rafhlöðusamstæðuna þegar hún er fjarlægð til að forðast að beygja umgjörðina.
Gætið þess að rafhlöðusamstæðan festist ekki í málmflipanum fyrir stjórneiningu rafhlöðunnar (1). Ekki halla rafhlöðunni of mikið frá topphulstrinu þegar henni er rennt út.

Ljúkið við losunarskrefin í Sveigjanlegur kapall fyrir stjórnunareiningu rafhlöðu. Leggið sveigjanlega kapalinn til hliðar. Hann verður settur aftur á nýju rafhlöðuna meðan á samsetningu stendur. Haldið síðan áfram í skref 17.
Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar af topphulstrinu.
Varúð: Ekki snerta rafbúnaðinn með etanól- eða IPA-þurrkunni. Ekki snerta hátalarasvampinn með etanólþurrku eða IPA-þurrku til að koma í veg fyrir að svampurinn skemmist.

Samsetning
Leggið tölvuna niður með sveigjanlega kapal snertiborðsins næst ykkur. Stingið jöfnunarpinnum rafhlöðunnar í fremra vinstra og hægra hornið á topphulstrinu. Herðið staðsetningarpinnana með handafli.


Gætið þess að sveigjanlegi kapall snertiborðsins sé ekki fyrir.

Fjarlægið rafhlöðuna úr umbúðunum.
Opnið kassann sem nýja rafhlaðan er afhent í og fjarlægið pappaspjaldið.
Takið plastbakkann úr kassanum. Snúið honum svo við þannig að bláa og bleika límfilman snúi upp og að götin fyrir staðsetningarpinna rafhlöðunnar séu staðsett næst tölvunni.

Leggið bakkann og rafhlöðuna á borðið á milli ykkar og tölvunnar.
Grípið um hornin tvö eins og sýnt er. Dragið þau síðan varlega í sundur til að opna hulstrið.
Varúð: Togið bakkann varlega í sundur til að forðast að skemma rafhlöðuna.


Grípið um filmuna og flettið bláu og bleiku límfilmunni af rafhlöðunni eins og sýnt er.

Lyftið rafhlöðunni úr plastbakkanum með því að halda í gegnsæju filmurnar á hvorri hlið, eins og sýnt er. Snúið síðan rafhlöðunni við þannig að filman snúi upp og götin fyrir jöfnunarpinna rafhlöðunnar séu næst ykkur.

Varúð
Á meðan rafhlöðunni er lyft skal toga hvora hlið filmunnar varlega út til að koma í veg fyrir að rafhlaðan sígi eða beygist, til að vernda tengingarnar milli rafhlöðusella og forðast skemmdir á rafhlöðunni.
Ekki láta rafhlöðulímið snerta ESD-vörðu mottuna, tölvuíhluti eða verkfæri áður en rafhlaðan er sett í.

Hallið niður brún rafhlöðunnar sem snýr frá ykkur og rennið henni undir málmflipa stjórneiningar rafhlöðunnar. Staðsetjið jöfnunargötin á gegnsæju filmunni yfir jöfnunarpinnum rafhlöðunnar á tölvunni. Leggið síðan gegnsæju filmuna á staðsetningarpinnana og rafhlöðuna í topphulstrið.


Varúð: Gangið úr skugga um að málmflipi stjórneiningar rafhlöðunnar festist ekki undir rafhlöðunni.

Ýtið létt á svampinn fyrir ofan hverja rafhlöðusellu til að byrja að líma rafhlöðulímið við topphulstrið.

Varúð: Ekki ýta á brúnir rafhlöðusellanna.
Opnið skjáinn alveg, leggið tölvuna á hvolf á hreinan flöt og látið skjáinn hanga niður af borðbrúninni.

Byrjið á hægri enda gegnsæju filmunnar og flettið henni varlega af rafhlöðunni.
Varúð
Límið á filmunni er sterkt. Hugsanlega þarf að halda topphulstrinu niðri þegar filmunni er flett af.
Gætið þess að fjarlægja filmuna varlega svo að rafhlaðan lyftist ekki eða færist til.
Mikilvægt: Skiljið bláu filmurnar eftir á rafhlöðunni eftir að gegnsæja filman hefur verið fjarlægð.

Stillið rafhlöðupressuplötuna af yfir jöfnunarpinnum rafhlöðunnar, eins og sýnt er. Látið síðan pressuplötuna síga á rafhlöðuna.

Haldið á límvirkjunarrúllunni með báðum höndum og komið henni fyrir yfir rafhlöðusellu 1. Látið síðan rúlluna flútta við brún sellunnar næst ykkur.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar, eins og sýnt er.
Mikilvægt: Þegar límvirkjunarrúllan er notuð þarf appelsínugula röndin að flútta við hvítu ræmuna.

Byrjið á vinstri brún rafhlöðusellunnar eins og sýnt er og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að hægri brún hennar. Rúllið síðan til baka að vinstri brún sellunnar. Þetta er ein lota. Ljúkið 5 lotum fyrir samtals 10 umferðir.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar.
Byrjið á efri brún rafhlöðusellunnar og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að neðri brún hennar. Rúllið síðan til baka að efri brún sellunnar. Þetta er ein lota. Ljúkið 5 lotum fyrir samtals 10 umferðir.

Endurtakið skref 12 til 16 fyrir rafhlöðusellur 2, 3 og 4. Haldið síðan áfram í skref 18.
Stillið límvirkjunarrúlluna af við hægri brún rafhlöðuplötunnar yfir rafhlöðusellu 5, eins og sýnt er.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar.
Byrjið á efri brún og hægri hlið rafhlöðusellunnar og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að neðri brún hennar. Rúllið síðan til baka að efri brún sellunnar. Þetta er ein lota. Ljúkið 5 lotum fyrir samtals 10 umferðir.

Endurtakið skref 18 til 20 fyrir rafhlöðusellu 6. Haldið síðan áfram í skref 22.
Takið tölvuna upp, lokið skjánum og leggið tölvuna niður þannig að lamirnar snúi frá ykkur.
Lyftið rafhlöðupressuplötunni af rafhlöðunni og leggið hana til hliðar.
Flettið bláu filmunum sex af rafhlöðusellunum.


Ljúkið samsetningarskrefunum í Sveigjanlegur kapall fyrir stjórnunareiningu rafhlöðu til að setja sveigjanlega kapalinn aftur í nýju rafhlöðuna. Haldið síðan áfram í skref 26.
Losið jöfnunarpinna rafhlöðunnar og fjarlægið þá úr topphulstrinu. Hægt er að endurnýta jöfnunarpinnana.
Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 13 Ncm.
Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að skrúfa eina 5IP-skrúfu (923-14208) aftur í rafhlöðusamstæðuna.


Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að skrúfa eina 5IP-skrúfu (923-14209) aftur í rafhlöðusamstæðuna.


Setjið eftirfarandi íhlut aftur á til að ljúka samsetningu: