MacBook Pro (16 tommu, M5 Pro eða M5 Max) Sveigjanlegur kapall afhlöðustjórnunareiningar
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
ESD-örugg töng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Flettið varlega sveigjanlegum kapli snertiborðsins frá til að komast að sveigjanlega BMU-kaplinum.
Notið ESD-örugga töng til að fletta pólýesterfilmunni af lásarmi sveigjanlega BMU-kapalsins.

Notið svarta teininn til að spenna upp lásarminn á tengi fyrir sveigjanlega BMU-kapalinn.

Notið ESD-örugga töng til að taka enda sveigjanlega BMU-kapalsins varlega úr sambandi við tengið.

Endursamsetning
Notið ESD-örugga töng til að stinga enda sveigjanlega BMU-kapalsins í samband við tengið.

Notið svarta teininn til að loka lásarminum á tengi fyrir sveigjanlega BMU-kapalinn.

Þrýstið pólýesterfilmunni yfir tengið.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: