Skjár fyrir iPhone Air
Áður en hafist er handa
Viðvörun
- Lesið Öryggi með rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa. 
- Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa. 
Verkfæri
- 6,5 tommu viðgerðarbakki með breiðnefstákni 
- Límskeri 
- Verkfæri til að fjarlægja lím 
- Skjápressa 
- Sundurhlutunarfleygar fyrir skjá 
- ESD-örugg töng 
- Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól) 
- Hitabúnaður til að fjarlægja skjá 
- Kapton-límband 
- Nælonnemi (svartur teinn) 
- 44 mm pentalobe bit PL1.1-hálfmánabiti 
- Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm) 
- Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm) 
- 44 mm trilobe-hálfmánabiti 
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
 
                                    
                                
                                    
                                        Varúð
- Ekki snerta fremri myndavélina eða nálæga íhluti til að forðast skemmdir á linsunum. 
- Ekki snerta bakhlið skjásins. Það getur haft áhrif á myndgæði ef komið er við bakhlið skjásins. 
Mikilvægt
- Lesið Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp hitabúnaðinn í fyrsta skipti. 
- Ef skipt er um þennan íhlut er ráðlagt að keyra viðgerðaraðstoð til þess að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið. 
Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið, skal fara beint í samsetningu.
Varúð
Áður en þessi viðgerð er hafin verður að slökkva á iPhone-símanum. Sé það ekki gert veldur það skemmdum á skjánum og íhlutum hans. Ef ekki er hægt að slökkva á iPhone-símanum skal fylgja skrefunum sem tilgreind eru í Annað verkferli áður en viðgerð er hafin.
- Notið átaksmæli og PL1.1-bitann til að fjarlægja PL1.1-skrúfurnar tvær, eina sitt hvorum megin við USB-C tengið.  
- Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita skjálímið. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók hitabúnaðar til að fjarlægja skjá. - Mikilvægt - Skerið aðeins meðfram botni símans á meðan hann er í búnaðinum. 
- Það gæti tekið lengri tíma að losa límið á þessari gerð en gefið er til kynna í notkunarhandbókinni. Bíðið þar til bil myndast. 
 
 
- Fjarlægið iPhone úr hitabúnaði til að fjarlægja skjá. Setjið iPhone svo aftur í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn vísi upp og USB-C tengið snúi að hakinu. 
- Notið límskerann til að skera meðfram hliðum og toppi iPhone-símans þar til skjárinn hefur losnað frá. - Stingið brún límskerans á milli skjásins og hulstursins. Haldið límbandsskeranum í 45 gráðu horni og skerið meðfram báðum hliðum.  
- Setjið fleygana sem nota skal til að taka skjáinn af í viðgerðarbakkann. Táknin á endum fleyganna samsvara táknunum á viðgerðarbakkanum.  
- Rennið skjánum niður að neðsta hluta iPhone-símans þar til sést í svolitla glufu. Stingið límskeranum inn í efsta hluta iPhone-símans í 45 gráðu horni og skerið meðfram efsta hlutanum þar til skjárinn losnar frá.  
- Varúð: Til að forðast að skemma sveigjanlega kapla skjásins skal ekki halla neðri hluta skjásins upp meira en sem nemur 5 gráðum. 
 - Setjið sogskálarnar á viðgerðarbakkanum í raufarnar á viðgerðarbakkanum. 
- Athugið: Táknið neðst á bakkanum gefur til kynna í hvaða átt á að lyfta glerbakstykkinu og hvorum megin eigi að setja sogskálarnar. 
- Lyftið einni hlið skjásins að sogskálunum. Ýtið á efri og neðri brúnir skjásins til að festa hann við sogskálarnar.  
- Varúð - Til að koma í veg að hulstrið eða skjárinn skemmist skal ganga úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu losaðar áður en skjánum er lyft. 
- Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar skjánum er hallað upp. 
- Forðist að ýta á bakhlið skjásins þegar hann er festur við sogskálarnar. 
 
 
- Notið átaksmæli og trilobe-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna úr tengihlíf skjásins. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er í næsta skref.  - Fjarlægið tengihlíf skjásins. Geymið hlífina fyrir samsetningu.  
- Takið enda sveigjanlegu kaplanna fyrir skjáinn og birtuskynjarann úr sambandi við tengin.  
- Haldið um brúnir skjásins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Leggið síðan framhlið skjásins á hreinan, sléttan flöt. 
 
Samsetning
Skýringarmynd fyrir skrúfur
 
                                    
                                
                                    
                                        - Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum. 
- Notið ESD-örugga töng eða verkfærið til að fjarlægja lím til að fjarlægja skjálímfilmuna. Togið síðan í límið í 45 gráðu horni til að fjarlægja það. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins.   - Varúð: Ekki snerta fremri myndavélina, fjaðrirnar eða nálæga íhluti. 
 
- Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar af hulstrinu og skjánum, en þó aðeins af brúnum skjásins.  - Varúð - Ekki snerta neinn annan hluta skjáglersins með etanól- eða IPA-þurrkum. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt skjáinn og haft áhrif á myndgæði. 
- Ekki nota verkfærið til að fjarlægja lím til að þrífa skjáinn. 
 
 
- Skoðið fjaðrirnar á þeim stöðum sem sýndir eru í skrefi 6. Ef fjöður er bogin eða skemmd skal halda áfram í skref 5. Annars skaltu fara í skref 9. 
- Athugið stefnu fjaðrarinnar sem á að skipta um. Notið ESD-örugga töng til að halda beygðu eða skemmdu fjöðrinni. Notið síðan átaksmæli og trilobe-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna úr fjöðrinni. - Athugið: Fjarlægið tvær trilobe-skrúfur úr fjöðrinni efst hægra megin. 
 
- Finnið nýja fjöður af réttri gerð í stað þeirrar fyrri, í samræmi við teikninguna.  - 923-13678 (1) 
- 923-13675 (2) 
- 923-13676 (3) 
- 923-13677 (4) 
 
- Notið ESD-örugga töng til að koma nýju fjöðrinni fyrir. Notið síðan græna átaksmælinn og trilobe-bita til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu í fjöðrina. - 923-13685 (1) 
- 923-13689 (2) 
- 923-13679 (3, 4) 
 
- Ef aðrar fjaðrir eru bognar eða skemmdar skal endurtaka skref 5 til 7 til að skipta um þær. Haldið svo áfram að skrefi 9. 
- Skoðið innri skjáklemmurnar í leit að skemmdum fyrir samsetningu. Gangið úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu í 90 gráðu horni og séu ekki bognar eða skemmdar. - Mikilvægt - Ef innri skjáklemmurnar eru skemmdar gæti þurft að skipta um skjá. 
- Ef verið er að setja upp nýjan skjá skal fjarlægja hlífðarfilmuna ofan og neðan af honum. 
 
 
- Látið nýja skjálímið vera í flútti við hulstrið. Gangið úr skugga um að efstu götin á límfilmunni flútti við fremri myndavélina. - Varúð: Gangið úr skugga um að allar límleifar hafi verið fjarlægðar af skjánum og hulstrinu áður en nýja skjálímið er sett á. 
 
- Grípið um flipann og togið filmuna hægt af líminu á meðan því er þrýst á hulstrið.  - Mikilvægt: Ekki fjarlægja filmurnar á hulstrinu strax. 
 
- Skoðið skjálímið til að tryggja að það sé staðsett á brún hulstursins. Ef líminu er ekki komið rétt fyrir á hulstrinu skal endurtaka samsetningarskref 2 til og með 8. Endurtakið síðan samsetningarskref 9 til og með 12 með nýju skjálími. 
- Notið svarta teininn til að festa skjálímfilmuna við hólfið. Færið slétta enda svarta teinsins eftir brún hulstursins að minnsta kosti þrisvar sinnum til að tryggja að límið festist jafnt.  - Varúð - Ekki snerta fremri myndavélina á meðan skjálímið er sett á. 
- Ekki skemma ristina yfir efri hátalaranum eða svampana. Ef ristin eða svamparnir eru skemmd skal skipta um ristina. 
 
 
- Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann. 
- Látið vinstri brún skjásins nema við vinstri brún hulstursins. Þrýstið svo létt eftir brúnum skjásins til að festa hann við sogskálarnar. 
- Þrýstið endum sveigjanlega skjákapalsins og sveigjanlega birtuskynjarakapalsins á tengin. Þrýstu jafnt eftir endilöngum tengjunum.  
- Setjið tengihlíf skjásins yfir enda sveigjanlegu kaplanna.  
- Notið græna átaksmælinn og trilobe-bita til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu (923-13681) í tengihlíf skjásins.  
- Flettið fyrstu ræmunni af losunarfilmunni í miðjunni (1) af rangsælis, byrjið neðst á hulstrinu. Flettið annarri ræmunni (2) af réttsælis. Flettið þriðja borðanum (3) af réttsælis. - Varúð: Þriðji borðinn á miðjufilmunni fer undir tvo sveigjanlega kapla. Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar filman er fjarlægð. 
- Mikilvægt: Forðist að snerta íhluti fremri myndavélarinnar og nálæga íhluti.  
 
- Skoðið skjálímið til að ganga úr skugga um að það sé á réttum stað og sé ekki skemmt eða krumpað. Ef límið er skemmt skal fjarlægja það og setja nýtt lím á. - Viðvörun: Athugið hvort lausar skrúfur eða aðrir smáhlutir, sem gætu skemmt rafhlöðuna eða valdið annars konar skemmdum, séu í hulstrinu. 
 
- Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Hallið skjánum niður á við þannig að hann hvíli á hólfinu. 
- Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum. 
- Þrýstið öllum hornum skjásins niður samtímis. Ýtið síðan eftir brúnum skjásins þar til smellur finnst og hann flúttar við hólfið.  - Varúð: Gakktu úr skugga um að sveigjanlegu kaplarnir séu ekki fastir á milli skjásins og hulstursins. Þreifið á skjábrúnunum í leit að misfellum. Ef skjárinn stenst ekki á skal endurtaka öll sundurhlutunarskrefin og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtakið síðan samsetningarskref 1 til og með 23. 
 
- Setjið viðgerðarbakkann með iPhone-símanum í skjápressuna og látið skjáinn vísa upp. Dragið niður arminn þar til skjápressan læsist.  
- Bíðið þar skjápressan gefur frá sér hljóðmerki og tímastillirinn sýnir 0. Ýtið handfanginu niður (1) og togið losunarhnúðinn út (2). Lyftið síðan arminum (3).  
- Fjarlægið viðgerðarbakkann úr skjápressunni. 
- Notið bláa átaksmælinn og PL1.1-bita til að skrúfa tvær nýjar PL1.1-skrúfur í, sitt hvorum megin við USB-C tengið. Þegar skrúfurnar eru skrúfaðar í skal ýta létt á skjáinn nærri USB-C tenginu. Teljið fimm smelli þegar hver skrúfa er sett í til að tryggja að hún sé alveg föst.  - Athugið: Notið réttan skrúfulit fyrir gerðina. - 923-13877, geimsvart 
- 923-13878, skýjahvítt 
- 923-13879, ljósgyllt 
- 923-13880, himinblátt 
 
- Varúð: Ef skrúfurnar flútta ekki skal fjarlægja skrúfurnar. Setjið því næst upp nýtt sett af öryggisskrúfum. Ef nýju skrúfurnar standast ekki á skal endurtaka öll skref sundurhlutunar og samsetningar. 
 
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð mun varahluta- og þjónustuferill tækisins hugsanlega sýna stöðu íhlutar sem „Ljúka viðgerð“ og Apple-greining fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu sýnir hugsanlega stöðu íhlutar sem „Óþekkt“.
Annað verkferli
Aðeins ef ekki er hægt að slökkva á iPhone-símanum: ljúkið eftirfarandi skrefum áður en skjárinn er fjarlægður:
- Ljúkið öllum sundurhlutunarskrefum í Glerbakstykki. 
- Setjið Kapton-límband yfir rafhlöðutengið á móðurborðinu. 
- Þrýstið endanum á sveigjanlega kapli glerbakstykkisins á tengið. 
- Ekki setja sveigjanlega rafhlöðukapalinn aftur í samband strax. 
- Ekki setja efri og neðri hlífarnar á sinn stað eða lím á glerbakstykkið núna. 
- Setjið glerbakstykkið ofan á hólfið. Fjarlægið hólfið úr viðgerðarbakkanum. Setjið hólfið svo aftur í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn vísi upp og USB-C tengið snúi að hakinu. 
- Haldið áfram í sundurhlutunarskref 1.