Framgler og skjár fyrir iPad (A16)
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa.
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlaðna áður en hafist er handa.
Varúð
Slökkvið á tækinu. Áður en þessi viðgerð er hafin verður að slökkva á iPad-spjaldtölvunni. Sé það ekki gert veldur það skemmdum á skjánum og íhlutum hans.
Verkfæri
11 tommu upphitaður skjávasi
11 tommu viðgerðarbakki
Aðgangskort (2)
Límvirkjunarrúlla
Límbandsskeri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
ESD-örugg töng
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Hitabúnaður til að fjarlægja skjá
Hitaþolnir hanskar
Stillingarbakki fyrir lím á framgleri iPad (A16)
JCIS-skrúfbiti fyrir krosshausaskrúfur
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Málningarlímband
Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf cm)
Torx Plus 3IP 25 mm biti
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt
Lesið Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp hitabúnaðinn í fyrsta skipti.
Ef skipt er um þennan íhlut er ráðlagt að keyra Repair Assistant fyrir hugbúnað til að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Athugið: Þetta verklag gæti sýnt myndir af öðrum gerðum en verklagið er það sama. Gætið þess að nota rétt verkfæri fyrir þá gerð sem verið er að gera við.
Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Viðvörun
Ráðlagt er að klæðast hitaþolnum hönskum þegar þessi hluti viðgerðarinnar er framkvæmdur.
Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita límið á skjánum. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók fyrir hitabúnað til að fjarlægja skjá. Haldið svo áfram að skrefi 2.
Varúð
Gætið þess að þrýsta varlega á framglerið þegar iPad-spjaldtölvan er sett í upphitaða skjávasann.
Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá.
Áður en upphitaði skjávasinn er settur í hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá skal staðsetja fremri myndavélina á iPad-spjaldtölvunni. Setjið síðan blátt málningarlímband yfir svæðin sem hylja myndavélalinsuna (1) og birtuskynjarann (2), eins og sýnt er. Til að forðast skemmdir skal nota grunn horn þegar skorið er nálægt yfirlímdu svæðunum.
Þegar bil kemur í ljós á milli framglersins og hulstursins, eins og sýnt er, skal stinga brún límskerans inn í bilið.
Varúð: Til að forðast skemmdir á sveigjanlegu skjáköplunum og á öðrum íhlutum skal ekki skera dýpra en 3,5 mm niður fyrir brún framglersins. Ytri brúnin á upphleypta hringnum á límskeranum gefur þessa hámarksdýpt til kynna.
Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram hægri hlið framglersins. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Varúð: Notið ekki skerann til að lyfta framglerinu upp.
Rennið límskeranum hægt meðfram efri brún framglersins, á milli sogskálarinnar og fremri myndavélarinnar. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Rennið límskeranum meðfram hægri hlið framglersins. Skerið síðan hægt utan um neðra hægra hornið.
Rennið límskeranum fram og aftur meðfram efri brún framglersins, á milli sogskálarinnar og fremri myndavélarinnar. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Rennið límskeranum fram og aftur meðfram efri brún framglersins, vinstra megin við fremri myndavélina.
Rennið límskeranum hægt meðfram efra vinstra horninu.
Rennið límskeranum fram og aftur meðfram hægri hlið framglersins.
Stingið aðgangskorti undir efra vinstra hornið, eins og sýnt er, til að hindra að framglerið festist aftur.
Mikilvægt: Þegar aðgangskortinu er stungið inn skal gæta þess að það fari ekki lengra en svarti jaðarinn á skjánum.
Rennið límskeranum hægt meðfram neðri hluta framglersins. Rennið síðan límskeranum fram og aftur meðfram neðra vinstra horninu.
Stingið aðgangskorti undir neðra hægra hornið, eins og sýnt er, til að hindra að framglerið festist aftur.
Smellið handfanginu upp yfir sogskálina á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá. Rennið síðan slétta endanum á svarta teininum varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana frá framglerinu.
Varúð: Ekki snúa hnúðinum til að losa sogskálina. Ef hnúðinum er snúið getur það skemmt sveigjanlega kapalinn.
Gangið úr skugga um að svarta sogskálin hafi losnað. Snúið síðan svarta hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá rangsælis til að færa sogskálina frá framglerinu.
Ýtið á losunarhnappinn (1) á hlið hitabúnaðarins til að losa hitaða skjávasann. Rennið síðan vasanum út úr búnaðinum (2).
Smellið klemmunum á vinstri brún og neðri brún upphitaða skjávasans til að losa iPad-spjaldtölvuna. Ýtið síðan á hnappinn sem er undir vinstri hlið vasans til að fjarlægja iPad-spjaldtölvuna.
Setjið iPad-spjaldtölvuna í viðgerðarbakkann þannig að USB-C tengið snúi að hakinu á hægri hliðinni, eins og sýnt er (1). Togið síðan í flipann á vinstri hlið viðgerðarbakkans til að festa iPad-spjaldtölvuna (2).
Setjið sogskálarnar í raufarnar á viðgerðarbakkanum, eins og sýnt er.
Hallið framglerinu gætilega upp og látið það festast við sogskálarnar með því að þrýsta á hliðar framglersins.
Varúð: Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar framglerinu er hallað upp.
Leggið hlífðarfilmu skjásins yfir skjáinn og látið rauðu filmuna snúa niður. Togið síðan rauðu filmuna rólega undan hlífðarfilmunni (1) um leið og henni er þrýst á skjáinn (2). Fjarlægið síðan bláu filmuna (3).
Varúð: Ef hlífðarfilman er ekki sett á getur það haft áhrif á myndgæði.
Mikilvægt: Gætið þess að filman hylji allan skjáinn. Loftbólur eða krumpur hafa ekki áhrif á virkni filmunnar.
Notið átaksmæli og 3IP-bitann til að fjarlægja 10 3IP-skrúfur úr skjánum. Geymið skrúfurnar.
Aðeins fyrir Wi-Fi + Cellular-gerðir: Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja tvær krosshausaskrúfur úr skjánum. Geymið skrúfurnar.
Lyftið horninu á skjánum (1) varlega og hallið upp á við (2) eins og sýnt er.
Varúð: Forðist að láta framglerið og skjáinn snertast.
Setjið sogskálarnar í raufina á viðgerðarbakkanum, eins og sýnt er. Festið afturhluta skjásins við sogskálarnar með því að þrýsta á hliðar skjásins.
Varúð
Ekki ýta á bakhlið skjásins til að festa hann við sogskálarnar. Ef ýtt er á bakið getur það haft áhrif á virkni.
Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar skjánum er hallað upp.
- Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á
Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja sex krosshausaskrúfur úr tengihlíf Multi-Touch, tengihlíf hljóðnemans, og tengihlíf skjásins/Multi-Touch. Geymið skrúfurnar.
Fjarlægið tengihlíf Multi-Touch (1), tengihlíf hljóðnemans (2) og tengihlíf skjásins/Multi-Touch (3). Geymið hlífarnar fyrir samsetningu.
Takið endana á sveigjanlegu köplunum fyrir Multi-Touch (1, 3), sveigjanlega kaplinum fyrir hljóðnemann (2) og sveigjanlega skjákaplinum (4) af tengjunum.
Haldið um brún skjásins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum. Leggið síðan skjáinn á hreinan, sléttan flöt þannig að hann snúi upp.
Haldið um brún framglersins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af framglerinu. Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum. Leggið síðan framhlið framglersins á stillingarbakkann fyrir lím á framgleri iPad (A16).
Notið pinnana á stillingarbakkanum til að leggja hlífðarfilmu framglersins yfir framglerið þannig að rauða filman snúi niður (1). Togið síðan rauðu filmuna rólega undan hlífðarfilmunni um leið og henni er þrýst á framglerið (2). Fjarlægið síðan bláu filmuna (3).
Varúð: Ef hlífðarfilman er ekki sett á getur það haft áhrif á myndgæði.
Mikilvægt: Gætið þess að filman hylji allt framglerið. Loftbólur eða krumpur hafa ekki áhrif á virkni filmunnar.
Samsetning
Mikilvægt
Sjáið til þess að allt lím sé fjarlægt af framglerinu og hulstrinu áður en nýtt lím er borið á.
Setjið hulstrið í viðgerðarbakkann. Hreinsið brúnir hulstursins vandlega með etanól- eða IPA-þurrkum.
Varúð: Forðist að snerta fremri myndavélina eða birtuskynjarana.
Ef nýtt framgler er sett í skal halda áfram með þetta skref. Ef sama framglerið er sett aftur á skal fara í skref 3.
Flettið hlífðarfilmunum af yfirborðinu (1) og myndavélaropinu (3). Ekki fjarlægja hlífðarfilmuna af yfirborðinu að innanverðu (2). Komið framglerinu fyrir í stillingarbakkanum fyrir skjálím þannig að það snúi niður. Farið síðan í skref 5.
Flettið rykþéttinu af framglerinu. Notið svarta teininn, ef með þarf, til að lyfta rykþéttinu varlega af framglerinu.
Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að fjarlægja lím framglersins af brúnum framglersins. Togið síðan í límið til að fjarlægja það, en gætið þess að mynda ekki horn undir 45 gráðum. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt. Hreinsið síðan brúnir framglersins með etanólþurrkum eða IPA-þurrkum.
Varúð
Notið aðeins etanól- eða IPA-þurrkur til að hreinsa brúnir framglersins. Ekki snerta neinn annan hluta hulstursglersins með etanól- eða IPA-þurrkum. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt framglerið og haft áhrif á myndgæði.
Til að forðast skemmdir á málningunni á skífunni skal ekki nota hvöss verkfæri til að fjarlægja límið af framglerinu.
Komið nýja rykþéttinu fyrir þannig að það flútti við jöfnunarpinnana á stillingarbakkanum fyrir skjálím. Grípið um flipann á botnfilmunni. Togið síðan neðstu filmuna hægt út undan líminu á rykþéttinu og notið jöfnunarpinnana til að staðsetja rykþéttið rétt á framglerinu.
Notið svartan tein til að festa rykþéttið við framglerið. Færið síðan slétta enda svarta teinsins minnst þrisvar sinnum eftir brúnum rykþéttisins til að tryggja að rykþéttið festist jafnt.
Fjarlægið glæru efri filmurnar fjórar af rykþéttinu.
Festið enda sveigjanlegu kaplanna fyrir Multi-Touch við frauðið, eins og sýnt er.
Varúð: Skoðið rykþéttið til að ganga úr skugga um að því sé rétt komið fyrir á framglerinu. Ef svo er ekki skal endurtaka skref 3 til að fjarlægja rykþéttið. Endurtakið síðan skref 5 til 8 til að setja nýtt rykþétti í. Ef rykþéttið er ekki rétt stillt af festist framglerið ekki rétt og virkni þess gæti orðið fyrir áhrifum.
Komið lími nýja framglersins fyrir þannig að það flutti við jöfnunarpinnana á stillingarbakkanum fyrir skjálím. Grípið um flipann á botnfilmunni. Togið síðan neðstu filmuna hægt út undan líminu og notið jöfnunarpinnana til að staðsetja límið rétt á framglerinu.
Mikilvægt: Bíðið með að fjarlægja efstu filmuna.
Athugið: Nýja límið fyrir framglerið er með filmu á efri hlutanum, fyrir miðju og á neðri hlutanum.
Notið svartan tein til að festa lím framglersins við framglerið. Færið slétta enda svarta teinsins að minnsta kosti þrisvar sinnum eftir brúnum framglersins til að tryggja að límið festist jafnt.
Varúð: Ekki snerta fremri myndavélarsamstæðuna á meðan límið fyrir framglerið er sett á.
Fjarlægið efstu filmuna.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja miðjufilmurnar í kringum brúnir framglersins.
Fjarlægið filmurnar fjórar af skjálíminu.
Varúð
Skoðið límið á framglerinu til að tryggja að það sé á réttum stað og sé ekki skemmt eða krumpað.
Skoðið rykþéttið til að ganga úr skugga um að því sé rétt komið fyrir á framglerinu.
Ef límið á framglerinu er skemmt skal endurtaka skref 4 til að fjarlægja límið. Endurtakið síðan skref 9 til 12 til að setja nýtt lím fyrir framgler á.
Ef bæði límið og rykþéttið eru skemmd skal endurtaka skref 3 til 12 til að setja upp nýtt rykþétti og lím.
Ef límið eða rykþéttið er ekki rétt stillt af festist framglerið ekki rétt og virkni þess gæti orðið fyrir áhrifum.
Fjarlægið enda sveigjanlegu kaplanna fyrir Multi-Touch af frauðstoðunum. Fjarlægið síðan frauðið af framglerinu.
Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann eins og sýnt er. Festið síðan framglerið við sogskálarnar.
Varúð: Ekki ýta á bakhlið framglersins til að festa það við sogskálina.
Mikilvægt: Ef verið er að setja upp nýtt framgler skal gæta þess að búið sé að fjarlægja hlífðarfilmuna af yfirborðinu áður en það er fest við sogskálarnar.
Þrýstið endunum á sveigjanlegu köplunum fyrir Multi-Touch (1, 3) og sveigjanlegum kapli hljóðnemans (2) á tengin.
Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann eins og sýnt er. Festið síðan skjáinn við sogskálarnar.
Varúð: Ekki ýta á bakhlið skjásins til að láta hann festast tryggilega við sogskálina. Þrýstingur á bakhlið skjásins getur haft áhrif á virkni hans.
Mikilvægt: Ef nýr skjár er settur á skal fjarlægja allar hlífðarfilmur eða límband af bakhlið skjásins áður en hann er festur við sogskálarnar.
Ýtið enda sveigjanlega kapalsins fyrir skjáinn í tengið.
Komið tengihlífinni fyrir Multi-Touch fyrir yfir enda sveigjanlega kapalsins fyrir Multi-Touch (1). Komið tengihlíf hljóðnemans fyrir yfir enda sveigjanlega kapalsins fyrir hljóðnemann (2). Komið síðan tengihlíf skjásins/Multi-Touch fyrir yfir enda sveigjanlega kapalsins fyrir skjáinn/Multi-Touch (3).
Notið svarta átaksmælinn og JCIS-skrúfbita til að skrúfa sex nýjar krosshausaskrúfur í tengihlífarnar þrjár:
Tvær skrúfur (452-11908) (tengihlíf fyrir Multi-Touch) (til vinstri)
Tvær skrúfur (452-11908) (tengihlíf fyrir hljóðnema) (í miðjunni)
Tvær skrúfur (452-11908) (tengihlíf fyrir skjá/Multi-Touch) (til hægri)
Skoðið hvort lausar skrúfur eða aðrir smáhlutir eru í hulstrinu sem gætu valdið öryggisvandamálum. Setjið síðan skjáinn á hulstrið.
- Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á
- Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á
Stillið stillanlega átaksmælinn á 1,0 Ncm. Notið síðan 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 3IP-bita til að skrúfa 10 nýjar 3IP-skrúfur í skjáinn í þeirri röð sem sýnd er.
Fjórar skrúfur (452-11931) (efst)
Sex skrúfur (452-11932) (neðst)
Stillið stillanlega átaksmælinn á 1,3 Ncm þegar allar skrúfurnar 10 hafa verið skrúfaðar í. Notið síðan átaksmælinn og 3IP-bitann til að herða efstu fjórar skrúfurnar að fullu.
Aðeins fyrir Wi-Fi + Cellular-gerðir: Notið svarta átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að skrúfa tvær nýjar krosshausaskrúfur (452-12144) í hægri hlið skjásins, eins og sýnt er.
Flettið fyrstu filmunni af framglerinu réttsælis og byrjið efst í vinstra horninu, eins og sýnt er.
Flettið annarri filmunni af framglerinu réttsælis og byrjið efst í hægra horninu, eins og sýnt er.
Flettið límfilmunum (1–7) af rykþéttinu réttsælis og byrjið á brúninni efst til vinstri eins og sýnt er.
Takið hlífðarfilmuna af framglerinu.
Fjarlægið hlífðarfilmuna af skjánum.
Haldið um framglerið án þess að snerta límið og togið í flipana á sogskálunum til að losa þær. Fjarlægið sogskálarnar síðan úr viðgerðarbakkanum.
Haldið áfram í framglerið og flettið síðustu tveimur límfilmunum af framglerinu í neðra vinstra og hægra horninu á framglerinu eins og sýnt er.
Varúð: Forðist að snerta fremri myndavélina og nálæga íhluti.
Setjið framglerið á hulstrið og ýtið á öll fjögur hornin. Þrýstið síðan eftir brúnum framglersins þar til hann flúttar við hulstrið.
Mikilvægt: Þreifið á brúnum framglersins í leit að misfellum. Ef framglerið er ekki í flútti skal endurtaka öll sundurhlutunarskref og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtakið síðan samsetningarskref 1 til 30.
Notið límvirkjunarrúlluna til að festa framglerið við hulstrið:
Haldið um rúlluna með báðum höndum og komið henni fyrir við eina brún framglersins þannig að hluti rúllunnar hangi yfir hulstrinu, eins og sýnt er.
Þrýstið rúllunni niður þar til línurnar á silfurlitu pinnunum flútta við miðjuna á hvítu ræmunni.
Varúð: Notið ekki meira afl en þarf til að komast að hvítu ræmunni.
Haldið jöfnum þrýstingi og rúllið meðfram brún framglersins, tíu sinnum fram og til baka. Snúið síðan viðgerðarbakkanum og endurtakið þetta skref á hinum þremur brúnunum.
Kveikið á greiningarstillingu:
Tryggið að slökkt sé á iPad-spjaldtölvunni.
Haldið inni báðum hljóðstyrkshnöppunum.
Á meðan hnöppunum er haldið inni skal stinga iPad-spjaldtölvunni í samband við straumbreyti með 20 W eða meira afli, eða beint við tölvu sem bæði er kveikt á og er tengd við rafmagn.
Athugið: Miðstöðvar, skjáir eða aðrar óbeinar tengingar eru ekki studdar.
Sleppið hnöppunum þegar Apple-lógóið birtist.
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig hefja á viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð gæti varahluta- og þjónustuferill tækisins sýnt stöðu íhlutar sem „ljúka viðgerð“ og Apple Diagnostics fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu kann að sýna stöðu íhlutar sem „óþekkt“.