iPad mini (A17 Pro) skjár

Áður en hafist er handa

null Viðvörun

null Varúð

Slökkvið á tækinu. Áður en þessi viðgerð er hafin verður að slökkva á iPad-spjaldtölvunni. Sé það ekki gert veldur það skemmdum á skjánum og íhlutum hans.

Verkfæri

  • 8,3 tommu upphitaður skjávasi

  • 8,3 tommu viðgerðarbakki

  • Aðgangskort (2)

  • Límvirkjunarrúlla

  • Límbandsskeri

  • ESD-örugg töng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

  • Hitabúnaður til að fjarlægja skjá

  • Hitaþolnir hanskar

  • Stillingarbakki fyrir skjálím fyrir iPad mini (A17 Pro)

  • JCIS-skrúfbiti fyrir stjörnuskrúfur

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Málningarlímband

  • Átaksskrúfjárn (svart, 0,35 kgf. cm)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt

  • Lesið Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp hitabúnaðinn í fyrsta skipti.

  • Ef skipt er um þennan íhlut er ráðlagt að keyra Repair Assistant fyrir hugbúnað til að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.

Athugið: Myndir gætu verið af öðrum gerðum en verklagið er það sama. Gætið þess að nota rétt verkfæri fyrir þá gerð sem gert er við.

Losun

Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

null Viðvörun

Ráðlagt er að klæðast hitaþolnum hönskum þegar þessi hluti viðgerðarinnar er framkvæmdur.

  1. Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita límið á skjánum. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók fyrir hitabúnað til að fjarlægja skjá. Haldið svo áfram að skrefi 2.

    • null Varúð

      • Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá.

      • Áður en upphitaði skjávasinn er settur í hitabúnaðinn skal finna fremri myndavélina. Setjið síðan bláa málningarlímbandið yfir linsu myndavélarinnar og tvö önnur svæði, eins og sýnt er. Skerið í gleið horn nálægt yfirlímdu svæðunum til að koma í veg fyrir skemmdir.

  2. Þegar bil kemur í ljós á milli skjásins og hulstursins eins og sýnt er á myndinni skal stinga brún límskerans inn í bilið.

    • null Varúð: Til að forðast skemmdir á sveigjanlegu skjáköplunum og á öðrum íhlutum skal ekki skera dýpra en 3,5 mm niður fyrir brún skjásins. Ytri brúnin á upphleypta hringnum á límskeranum gefur þessa hámarksdýpt til kynna.

  3. Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram hægri hlið skjásins. Hættið þegar vart verður við viðnám.

    • null Varúð: Notið ekki skerann til að lyfta skjánum upp.

    • Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram efri brún skjásins. Hættið þegar vart verður við viðnám.

    • Rennið límskeranum fram og aftur meðfram hægri hlið skjásins. Skerið síðan hægt meðfram horninu.

    • Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram vinstri hlið skjásins.

  4. Stingið aðgangskorti undir efra vinstra hornið á skjánum til að koma í veg yfir að skjárinn festist aftur.

    • Mikilvægt: Þegar aðgangskortinu er stungið inn skal gæta þess að það fari ekki lengra en svarti jaðarinn á skjánum.

  5. Rennið límskeranum fram og aftur meðfram vinstri hliðinni. Skerið síðan hægt meðfram horninu.

    • Rennið límskeranum meðfram neðri hlutanum.

  6. Stingið aðgangskorti undir neðra hægra hornið á skjánum til að koma í veg yfir að skjárinn festist aftur.

    • Mikilvægt: Þegar aðgangskortinu er stungið inn skal gæta þess að það fari ekki lengra en svarti jaðarinn á skjánum.

    • Smellið handfanginu upp yfir sogskálina á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá. Rennið slétta enda svarta teinsins varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana frá skjánum.

      • null Varúð: Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum efst á hitabúnaðinum. Ef hnúðinum er snúið getur það skemmt sveigjanlega kapalinn.

      • Gangið úr skugga um að sogskálin hafi losnað. Snúið síðan svarta hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá rangsælis til að færa sogskálina frá skjánum.

    • Ýtið á losunarhnappinn (1) á hlið hitabúnaðarins til að fjarlægja skjá til að losa hitaða skjávasann. Rennið síðan vasanum út úr hitabúnaðinum (2).

    • Smellið klemmunum á hliðum upphitaða skjávasans upp til að losa iPad-spjaldtölvuna. Fjarlægið iPad-spjaldtölvuna úr vasanum.

  7. Setjið iPad-spjaldtölvuna í viðgerðarbakkann þannig að USB-C-tengið snúi að hakinu á hægri hliðinni. Togið í flipann á vinstri hlið viðgerðarbakkans, eins og sýnt er, til að festa iPad-spjaldtölvuna.

  8. Fjarlægið málningarlímbandið og aðgangskortin. Setjið síðan sogskálarnar á viðgerðarbakkanum í raufarnar á viðgerðarbakkanum eins og sýnt er.

  9. Hallið skjánum varlega upp og þrýstið á hliðar skjásins til að festa hann við sogskálarnar.

    • null Varúð

      • Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar skjánum er hallað upp.

      • Ýtið ekki á bakhlið skjásins til að festa hann við sogskálarnar. Ef ýtt er á bakið getur það haft áhrif á virkni.

    • null Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á support.apple.com/repair.

  10. Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja fimm krosshausaskrúfur úr tengihlíf skjásins. Setjið skrúfurnar til hliðar.

    • Fjarlægið tengihlíf skjátengjanna og geymið hana fyrir samsetningu.

    • Lyftið enda sveigjanlega rafhlöðukapalsins af tenginu.

    • Takið endann á sveigjanlega kaplinum fyrir skjáinn úr sambandi við tengið.

    • Takið endann á sveigjanlega kaplinum fyrir Multi-Touch úr sambandi við tengið.

  11. Haldið um brúnir skjásins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Leggið síðan framhlið skjásins á hreinan, sléttan flöt. Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum.

Samsetning

iPad mini (A17 Pro) Skjá lokað

Mikilvægt

Gangið úr skugga um að allt lím hafi verið fjarlægt af skjánum og hulstrinu áður en nýtt lím er borið á.

  1. Setjið hulstrið í viðgerðarbakkann. Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að fjarlægja allt það skjálím sem eftir er. Togið síðan í límið til að fjarlægja það, en gætið þess að mynda ekki horn undir 45 gráðum. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins.

    • null Varúð: Forðist að snerta myndavélina að framan, birtuskynjarana og loftnetin.

  2. Hreinsið brúnir hulstursins vandlega með etanól- eða IPA-þurrkum.

  3. Ef skipt er um skjá skal fletta hlífðarfilmunni af fram- og bakhlið skjásins og koma skjánum fyrir á hvolfi í bakkanum fyrir skjálím. Farið síðan í skref 5. Farið í skref 4 ef það á að setja sama skjáinn aftur á.

  4. Komið skjánum fyrir á hvolfi í stillingarbakkanum fyrir skjálím. Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að ná tökum á skjálíminu sem eftir er á brúnum skjásins. Togið síðan í límið til að fjarlægja það, en gætið þess að mynda ekki horn undir 45 gráðum. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt. Hreinsið brúnir skjásins vandlega með etanól- eða IPA-þurrkum.

    • null Varúð

      • Ekki snerta neinn annan hluta skjáglersins með etanól- eða IPA-þurrkum. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt skjáinn og haft áhrif á myndgæði.

      • Til að forðast skemmdir á málningunni á skífunni skal ekki nota hvöss verkfæri til að fjarlægja límið af skjánum.

  5. Komið nýju skjálímfilmunni fyrir þannig að hún flutti við jöfnunarpinnana á stillingarbakkanum. Grípið um flipann á botnfilmunni. Togið síðan neðstu filmuna hægt út undan límfilmunni og notið jöfnunarpinnana til að staðsetja límfilmuna rétt á skjánum.

    • Athugið: Nýja skjálímið skiptist í efri filmu, miðjufilmu og neðri filmu.

    • Mikilvægt: Bíðið með að fjarlægja efstu filmuna.

    • null Varúð: Þegar skrefi 5 er lokið skal gengið úr skugga um að límfilmunni sé rétt komið fyrir á skjánum. Ef svo er ekki skal endurtaka skref 4 til að fjarlægja límið. Endurtakið síðan skref 5 til að setja nýtt skjálím á. Ef límið er ekki rétt stillt af festist skjárinn ekki rétt og það gæti haft áhrif á virkni hans.

  6. Notið svarta teininn til að festa skjálímið við skjáinn. Færið svo slétta enda svarta teinsins minnst þrisvar sinnum eftir brúnum skjásins til að tryggja að límið festist jafnt. Gangið úr skugga um að Wi-Fi-þynnurnar hafi fest sig við báðum megin við myndavélarop að framan.

    • null Varúð: Ekki snerta fremri myndavélarsamstæðuna á meðan skjálímfilman er sett á.

  7. Fjarlægið efri filmuna eins og sýnt er.

    • Mikilvægt: Ekki fjarlægja miðjufilmurnar í kringum brúnir skjásins.

  8. Skoðið skjálímið til að tryggja að það sé á réttum stað og ekki skemmt eða krumpað. Ef límið er skemmt skal endurtaka skref 4 til að fjarlægja límið. Endurtakið síðan skref 5 til 8 til að setja nýtt skjálím á.

  9. Fjarlægið afskurðinn fyrir jarðtenginguna af miðjufilmunni.

  10. Fjarlægið glæru botnfilmuna. Látið síðan jarðtengingarlímbandið flútta eins og sýnt er og ýtið á það til að festa svarta límbandsleiðarann.

  11. Fjarlægið bláu filmuna.

  12. Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið til að festa það við láréttu brúnina á skjánum.

  13. Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta því sem eftir er af jarðtengingarlímbandinu á bakhlið skjásins.

  14. Fjarlægið glæru filmuna.

  15. Flettið svarta límbandsleiðaranum af jarðtengingarlímbandinu og skjánum.

  16. Aðeins fyrir Wi-Fi-gerðir:

    • Fjarlægið skrúfuopin á jarðtengingarlímbandinu af miðjufilmunni á skjálíminu.

    • Fjarlægið glæru botnfilmuna. Setjið jarðtengingarlímbandið á eins og sýnt er. Notið slétta endann á svarta oinnanum til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið svo það festist við bakhliðina á skjánum.

    • Fjarlægið bláu filmuna varlega af jarðtengingarlímbandinu.

    • Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið til að festa það við láréttu brúnina á skjánum.

    • Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta því sem eftir er af jarðtengingarlímbandinu á bakhlið skjásins.

    • Fjarlægið glæru filmuna varlega af jarðtengingarlímbandinu eins og sýnt er.

      • Mikilvægt: Jarðtengingarlímbandið er mjög viðkvæmt.

    • Notið slétta endann á svarta oinnanum til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið svo það festist við bakhliðina á skjánum.

    • Flettið svarta límbandsleiðaranum af jarðtengingarlímbandinu og skjánum.

  17. Aðeins fyrir Wi-Fi + Cellular-gerðir:

    • Fjarlægið skrúfuopin á jarðtengingarlímbandinu af miðjufilmunni á skjálíminu.

    • Fjarlægið glæru botnfilmuna. Notið jöfnunarpinnana í stillingarbakkanum til að stilla jarðtengingarlímbandið af, eins og sýnt er. Notið síðan slétta enda svarta pinnans til að þrýsta á límbandið (1, 2) til að festa það við skjáinn.

    • Fjarlægið bláu filmurnar (1, 2) gætilega af jarðtengingarlímbandinu.

    • Notið slétta enda svarta pinnans til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið (1, 2) til að festa það við lóðréttu brúnina á skjánum.

    • Notið slétta enda svarta pinnans til að þrýsta því sem eftir er af jarðtengingarlímbandinu (1, 2) á bakhlið skjásins.

    • Fjarlægið glæru filmuna varlega af jarðtengingarlímbandinu eins og sýnt er.

      • Mikilvægt: Jarðtengingarlímbandið er mjög viðkvæmt.

    • Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta á jarðtengingarlímbandið til að festa það við skjáinn.

    • Flettið svarta límbandsleiðaranum af jarðtengingarlímbandinu og skjánum.

  18. Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann.

  19. Festið skjáinn við sogskálarnar.

    • null Varúð: Þrýstið ekki á bakhlið skjásins þegar hann er festur við sogskálina. Ef þrýst er á bakhlið skjásins getur það haft áhrif á virkni hans.

  20. Þrýstið endunum á sveigjalega kaplinum fyrir Multi-Touch (1), sveigjalega kaplinum fyrir skjáinn (2) og sveigjalega kaplinum fyrir rafhlöðuna (3) á tengin.

  21. Komið tengihlíf skjátengjanna fyrir yfir endunum á sveigjanlegu köplunum. Notið svarta átaksmælinn og JCIS-skrúfbita til að skrúfa fimm nýjar stjörnuskrúfur (452-11675) í tengihlífina.

  22. Flettið miðjufilmunum fjórum af skjánum:

    • Flettið fyrstu filmunni af réttsælis, frá vinstri hlið skjásins, eins og sýnt er.

    • Flettið annarri filmunni af rangsælis, frá efra hægra horni skjásins, eins og sýnt er.

    • Flettið þriðju filmunni af rangsælis, frá miðju efri hluta skjásins, eins og sýnt er.

    • Flettið fjórðu filmunni af réttsælis, frá efra hægra horni skjásins, eins og sýnt er.

  23. Togaðu í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Fjarlægið sogskálarnar síðan úr viðgerðarbakkanum.

  24. Flettið síðustu miðjufilmunni af réttsælis, frá neðra vinstra horni skjásins, og flettið ræmunni af að framhlið skjásins.

    • null Viðvörun

      • Ef rafhlaðan er dælduð, sprungin eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á support.apple.com/repair.

      • Skoðið hulstrið í leit að lausum skrúfum eða aukaskrúfum og litlum hlutum sem geta valdið öryggishættu.

    • null Varúð: Forðist að snerta fremri myndavélina og nálæga hluta.

  25. Setjið síðan skjáinn á hulstrið.

  26. Gætið þess að sveigjanlegi kapallinn fyrir skjáinn sé ekki klemmdur. Þrýstið öllum hornum skjásins niður. Þrýstið síðan meðfram brúnum skjásins niður þar til hann flúttar við hulstrið.

    • Mikilvægt: Þreifið á skjábrúnunum í leit að misfellum. Ef skjárinn stenst ekki á skal endurtaka öll sundurhlutunarskrefin og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtaktu síðan samsetningarskref 1 til 26.

  27. Notið límvirkjunarrúlluna til að festa skjáinn við hulstrið.

    • Haldið um rúlluna með báðum höndum og komið henni fyrir við eina brún skjásins þannig að hluti rúllunnar hangi yfir hulstrinu, eins og sýnt er.

    • Þrýstið rúllunni niður þar til línurnar á silfurlitu pinnunum flútta við miðjuna á hvítu ræmunni.

      • null Varúð: Notið ekki meira afl en þarf til að komast að hvítu ræmunni.

    • Haldið jöfnum þrýstingi og rúllið meðfram brún skjásins, tíu sinnum fram og til baka. Snúið síðan viðgerðarbakkanum og endurtakið þetta skref á hinum þremur brúnunum.

  28. Kveikið á greiningarstillingu:

    • Tryggið að slökkt sé á iPad-spjaldtölvunni.

    • Haldið báðum hljóðstyrkshnöppunum inni.

    • Á meðan hnöppunum er haldið inni skal stinga iPad-spjaldtölvunni í samband við straumbreyti með 20 W eða meira afli, eða beint við tölvu sem kveikt er á og er tengd við rafmagn.

      • Athugið: Miðstöðvar, skjáir eða aðrar óbeinar tengingar eru ekki studdar.

    • Sleppið hnöppunum þegar Apple-lógóið birtist.

Mikilvægt

Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig hefja á viðgerðaraðstoð.

Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð gæti varahluta- og þjónustuferill tækisins sýnt stöðu íhlutar sem „ljúka viðgerð“ og Apple Diagnostics fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu kann að sýna stöðu íhlutar sem „óþekkt“.

Birt: