iPad Air 13 tommu (M2) skjár
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlaðna áður en hafist er handa.
Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa.
Varúð
Slökkvið á tækinu. Áður en þessi viðgerð er hafin verður að slökkva á iPad-spjaldtölvunni. Sé það ekki gert veldur það skemmdum á skjánum og íhlutum hans.
Verkfæri
13 tommu hitaður skjávasi
13 tommu viðgerðarbakki
Aðgangskort (3)
Límvirkjunarrúlla
Límbandsskeri
ESD-örugg töng
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Hitabúnaður til að fjarlægja skjá
Hitaþolnir hanskar
Stillingarbakki fyrir skjálím fyrir iPad Air, 13 tommu
JCIS-skrúfbiti fyrir krosshausaskrúfur
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Málningarlímband
Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf cm)
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt
Lesið Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp hitabúnaðinn í fyrsta skipti.
Ef skipt er um þennan íhlut er ráðlagt að keyra Repair Assistant fyrir hugbúnað til að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Athugið: Þetta verklag gæti sýnt myndir af öðrum gerðum en viðgerðarskrefin eru þau sömu. Gætið þess að nota rétt verkfæri fyrir þá gerð sem verið er að gera við.
Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Viðvörun
Ráðlagt er að klæðast hitaþolnum hönskum þegar þessi hluti viðgerðarinnar er framkvæmdur.
Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita límið á skjánum. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók fyrir hitabúnað til að fjarlægja skjá. Haldið svo áfram að skrefi 2.
Varúð
Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá.
Áður en upphitaði skjávasinn er settur í hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá skal staðsetja fremri myndavélina. setja blátt málningarlímband yfir linsu myndavélarinnar og önnur svæði eins og sýnt er. Til að forðast skemmdir skal nota grunn horn þegar skorið er nálægt yfirlímdu svæðunum.
Þegar bil kemur í ljós á milli skjásins og hulstursins skal stinga brún límskerans inn í bilið.
Varúð: Til að forðast skemmdir á sveigjanlegu skjáköplunum og á öðrum íhlutum skal ekki skera dýpra en 3,5 mm niður fyrir brún skjásins. Brúnin á hringlaga dældinni á skeranum er kvarði fyrir þessa hámarksdýpt.
Rennið límskeranum fram og aftur meðfram hægri hlið skjásins. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Varúð: Notið ekki skerann til að lyfta skjánum upp.
Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram efri brún skjásins, á milli sogskálarinnar og myndavélarinnar að framan. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Snúið hnúðinum fjórðung úr hring réttsælis. Skerið síðan meðfram hægri hlið skjásins. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Rennið límskeranum fram og aftur meðfram efri brún skjásins, á milli sogskálarinnar og myndavélarinnar að framan. Hættið þegar vart verður við viðnám.
Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram hægri hlið skjásins þar til búið er að skera á límið.
Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram efri brún skjásins, vinstra megin við myndavélina að framan. Skerið síðan hægt utan um hornið.
Stingið aðgangskorti undir efra vinstra hornið á skjánum til að koma í veg yfir að skjárinn festist aftur.
Mikilvægt: Þegar aðgangskortinu er stungið inn má það ekki ná inn fyrir svarta jaðarinn á skjánum.
Ýtið handfanginu upp til að losa sogskálina. Rennið síðan slétta endanum á svarta teininum varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana frá skjánum.
Varúð: Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá. Ef hnúðinum er snúið getur það skemmt sveigjanlega kapalinn.
Gangið úr skugga um að sogskálin hafi losnað. Snúið síðan svarta hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá rangsælis til að færa sogskálina frá skjánum.
Smellið klemmunum á vinstri og neðri brún hitaða skjávasans upp til að losa iPad-spjaldtölvuna. Ýtið á hnappinn sem er undir vinstri hlið vasans til að fjarlægja iPad-spjaldtölvuna. Snúið iPad-spjaldtölvunni um 180 gráður. Smellið síðan klemmunum niður til að festa iPad-spjaldtölvuna.
Snúið svarta hnúðinum efst á hitabúnaðinum réttsælis til að færa sogskálina að skjánum. Ýtið síðan handfanginu á sogskálinni niður til að festa hana tryggilega við skjáinn.
Mikilvægt: Hugsanlega þarf að lyfta upp öðrum endanum á málningarlímbandsræmunni til að festa sogskálina við skjáinn.
Snúið svarta hnúðinum á hitunarbúnaðinum hægt í tvo og hálfan hring rangsælis. Bíðið í 30 sekúndur. Snúið svarta hnúðinum síðan tvo heila hringi í viðbót.
Varúð: Ekki snúa silfurlitaða hnúðinum.
Þegar bil myndast á milli skjásins og hulstursins skal stinga brún límskerans inn í bilið. Rennið síðan skeranum á milli skjásins og hulstursins eins og sýnt er á myndinni þar til skjárinn losnar úr hulstrinu að hluta til.
Varúð: Til að forðast skemmdir á sveigjanlegu skjáköplunum og á öðrum íhlutum skal ekki skera dýpra en 3,5 mm niður fyrir brún skjásins. Brúnin á hringlaga dældinni á skeranum er kvarði fyrir þessa hámarksdýpt.
Rennið límskeranum hægt og gætilega fram og aftur meðfram hægri hlið skjásins, eins og sýnt er.
Varúð
Ekki nota límskerann til að lyfta skjánum.
Þegar skorið er á svæðinu sem merkt er með bláa málningarlímbandinu skal halda skeranum í gleiðu horni.
Rennið límskeranum hægt utan um neðra horn skjásins, eins og sýnt er, þar til búið er að skera gegnum límið. Stingið síðan aðgangskorti undir hornið á skjánum til að koma í veg fyrir að skjárinn festist aftur.
Mikilvægt: Ekki setja aðgangskortið lengra en svarti jaðarinn á skjánum.
Rennið límskeranum hægt fram og aftur meðfram efri brún skjásins þar til búið er að skera á límið.
Stingið aðgangskorti undir efra vinstra hornið á skjánum. Stingið aðgangskorti undir neðra vinstra hornið á skjánum. Stingið síðan aðgangskorti undir neðra hægra hornið á skjánum.
Smellið handfanginu upp yfir sogskálina á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá. Rennið síðan slétta endanum á svarta teininum varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana frá skjánum.
Varúð: Ekki snúa hnúðinum til að losa sogskálina. Ef hnúðinum er snúið getur það skemmt sveigjanlega kapalinn.
Gangið úr skugga um að sogskálin hafi losnað. Snúið síðan svarta hnúðinum efst á hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá rangsælis til að færa sogskálina frá skjánum.
Ýtið á losunarhnappinn (1) á hlið hitabúnaðarins til að losa hitaða skjávasann. Rennið síðan vasanum út úr hitabúnaðinum (2).
Smellið klemmunum á vinstri brún og neðri brún hitabúnaðarins til að fjarlægja skjá upp til að losa iPad-spjaldtölvuna. Ýtið síðan á hnappinn sem er undir vinstri hlið vasans til að fjarlægja iPad-spjaldtölvuna.
Setjið iPad-spjaldtölvuna í viðgerðarbakkann þannig að USB-C-tengið snúi að hakinu á hægri hliðinni. Togið síðan í flipann á vinstri hlið viðgerðarbakkans eins og sýnt er á myndinni til að festa iPad-spjaldtölvuna.
Fjarlægið bláa málningarlímbandið og öll aðgangskort sem eftir standa. Snúið viðgerðarbakkanum þannig að fremri myndavélin vísi að þér. Lyftið skjánum svolítið upp og snúið honum rangsælis, nægilega langt til að hægt sé að komast að skrúfunni í tengihlíf fyrir hljóðnematengið, eins og sýnt er.
Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja krosshausaskrúfuna úr tengihlíf hljóðnemans. Setjið skrúfuna til hliðar.
Lyftið tengihlíf hljóðnemans örlítið svo að hægt sé að fjarlægja hana. Geymið hlífina fyrir samsetningu.
Takið endann á sveigjanlega kaplinum fyrir hljóðnemann úr sambandi við tengið.
Setjið sogskálarnar á viðgerðarbakkanum í raufarnar á viðgerðarbakkanum, eins og sýnt er.
Hallið skjánum varlega upp og þrýstið á hliðar skjásins til að festa hann við sogskálarnar.
Varúð
Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar skjánum er hallað upp.
Ekki ýta á bakhlið skjásins til að festa hann við sogskálarnar. Ef ýtt er á bakið getur það haft áhrif á virkni.
- Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á
Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbita til að fjarlægja krosshausaskrúfurnar fjórar úr tengihlíf skjásins. Geymið skrúfurnar.
Fjarlægið tengihlíf skjátengjanna og geymið hana fyrir samsetningu.
Lyftið endum sveigjanlegu kaplanna fjögurra af tengjunum (1–4).
Haldið um brúnir skjásins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Fjarlægið sogskálarnar af viðgerðarbakkanum. Leggið síðan framhlið skjásins á hreinan, sléttan flöt.
Samsetning
Mikilvægt
Gangið úr skugga um að allt lím hafi verið fjarlægt af skjánum og hulstrinu áður en nýtt lím er borið á.
Setjið hulstrið í viðgerðarbakkann. Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að fjarlægja allt það skjálím sem eftir er. Togið síðan í límið til að fjarlægja það, en gætið þess að mynda ekki horn undir 45 gráðum. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins. Hreinsið brúnir hulstursins vandlega með etanól- eða IPA-þurrkum.
Varúð: Forðist að snerta birtuskynjarana og myndavélina að framan.
Ef skipt er um skjá skal fjarlægja hlífðarfilmuna af fram- og bakhlið skjásins og koma skjánum fyrir á hvolfi í stillingarbakkanum. Farið síðan í skref 4. Farið í skref 3 ef festa á skjáinn aftur.
Komið skjánum fyrir á hvolfi í stillingarbakkanum fyrir skjálím, eins og sýnt er. Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að ná tökum á skjálíminu sem eftir er á brúnum skjásins. Togið síðan í límið til að fjarlægja það, en gætið þess að mynda ekki horn undir 45 gráðum. Endurtaktu þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt.
Varúð
Notið eingöngu etanól- eða IPA-þurrkur til að hreinsa brúnir skjásins. Gætið þess að snerta ekki aðra hluta skjáglersins með neinu sem inniheldur alkóhól. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt skjáinn og haft áhrif á myndgæði.
Til að forðast skemmdir á málningunni á skífunni skal ekki nota hvöss verkfæri til að fjarlægja límið af skjánum.
Komið nýja skjálíminu fyrir þannig að það sé í flútti við pinnana á stillingarbakkanum. Gríptu um flipann á botnfilmunni. Togið síðan neðstu filmuna hægt út undan límfilmunni og notið jöfnunarpinnana til að staðsetja límfilmuna rétt á skjánum.
Athugið: Nýja skjálímið skiptist í efstu filmu, millifilmur og neðstu filmu.
Mikilvægt: Bíðið með að fjarlægja efstu filmuna.
Varúð: Þegar skrefi 4 er lokið skal sannprófa að líminu hafi verið komið fyrir á skjánum. Ef svo er ekki skal endurtaka skref 3 til að fjarlægja límið. Endurtakið síðan skref 4 til að setja nýtt skjálím á. Ef límfilman er ekki rétt stillt af festist skjárinn ekki rétt og virkni hans kann að skerðast í kjölfarið.
Notið svarta teininn til að festa skjálímið við skjáinn. Færið síðan slétta enda svarta teinsins minnst þrisvar sinnum um brún hólfsins til að tryggja að límefnið festist jafnt.
Mikilvægt: Ekki setja aðgangskortið lengra en svarti jaðarinn á skjánum.
Varúð: Ekki snerta fremri myndavélarsamstæðuna á meðan skjálímfilman er sett á.
Fjarlægið efstu filmuna.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja eftirstandandi filmur í kringum brún hulstursins.
Skoðið skjálímið til að tryggja að það sé á réttum stað og ekki skemmt eða krumpað. Ef límið er skemmt skal endurtaka skref 3 til að fjarlægja límið. Endurtakið síðan skref 4 til 7 til að setja nýtt skjálím á.
Fjarlægið litlu filmuna af skjálíminu.
Fjarlægið litlu bláu filmuna af jarðtengingarlímbandi hljóðnemans.
Setjið jarðtengingarlímbandið yfir koparpúðann á hljóðnemanum eins og sýnt er á myndinni.
Festið jarðtengingarlímbandið við hljóðnemann.
Fjarlægið glæru filmuna af jarðtengingarlímbandinu.
Fjarlægið bláu filmuna af jarðtengingarlímbandinu.
Aðeins fyrir Wi-Fi + Cellular: Fylgið þessum skrefum til að setja jarðtengingarlímbandið á skjáinn.
Fjarlægið fyrstu millifilmuna.
Fjarlægið aðra millifilmuna.
Fjarlægið bláu filmurnar af jarðtengingarlímbandinu.
Setjið jarðtengingarlímbandið á skjáinn eins og sýnt er á myndinni.
Þrýstið jarðtengingarlímbandinu á brúnir skjásins og yfir á lárétta flötinn.
Fjarlægið glæru filmuna af jarðtengingarlímbandinu fyrir skjáinn.
Þrýstið jarðtengingarlímbandinu á skjálímið.
Fjarlægið bláu filmuna af jarðtengingarlímbandinu fyrir skjáinn.
Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann.
Festið skjáinn við sogskálarnar.
Varúð: Ekki ýta á bakhlið skjásins til að láta hann festast tryggilega við sogskálina. Þrýstingur á bakhlið skjásins getur haft áhrif á virkni hans.
Ýtið endum sveigjanlegu kaplanna fjögurra í tengin (1–4).
Setjið tengihlíf skjátengjanna yfir endana á sveigjanlegu köplunum fyrir skjáinn.
Notið svarta átaksmælinn og JCIS-skrúfbita til að skrúfa fjórar nýjar krosshausaskrúfur í tengihlífar skjásins, eins og sýnt er:
Aðeins fyrir gerðir með Wi-Fi: Ein skrúfa (452-05343) (efst til vinstri)
Aðeins fyrir gerðir með Wi-Fi + Cellular: Ein skrúfa (452-06580) (efst til vinstri)
Þrjár skrúfur (452-06580) (efst til hægri, neðst til vinstri, neðst til hægri)
Aðeins fyrir gerðir með Wi-Fi: Flettið fjórum filmum í miðjunni af eins og sýnt er.
Aðeins fyrir gerðir með Wi-Fi + Cellular: Flettið tveimur filmum í miðjunni af réttsælis, frá neðri vinstri hluta skjásins, eins og sýnt er.
Haldið í skjáinn án þess að snerta límið og togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Fjarlægið sogskálarnar síðan úr viðgerðarbakkanum.
Snúið skjánum örlítið til að komast að sveigjanlega hljóðnemakaplinum.
Varúð: Forðist að snerta fremri myndavélina og nálæga íhluti.
Ýtið enda sveigjanlega hljóðnemakapalsins í tengið. Komið síðan tengihlíf hljóðnemans fyrir yfir enda sveigjanlega kapalsins.
Notið svarta átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að festa eina nýja krosshausaskrúfu (452-05343) í tengihlíf hljóðnemans.
Flettið síðustu filmunni af réttsælis, frá vinstri hlið skjásins, eins og sýnt er.
Setjið síðan skjáinn á hulstrið.
Viðvörun
Ef rafhlaðan er dælduð, sprungin eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á support.apple.com/repair.
Skoðið hvort lausar skrúfur eða aðrir smáhlutir eru í hulstrinu sem gætu valdið öryggisvandamálum.
Gangið úr skugga um að sveigjanlegu skjákaplarnir séu ekki fastir á milli skjásins og hulstursins. Þrýstið öllum hornum skjásins niður. Þrýstið síðan eftir brúnum skjásins þar til hann flúttar við hulstrið.
Mikilvægt: Þreifið meðfram brúnum skjásins til að ganga úr skugga um að engin bil séu til staðar. Ef skjárinn stenst ekki á skal endurtaka öll sundurhlutunarskrefin og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtakið síðan samsetningarskref 1 til 28.
Notið límvirkjunarrúlluna til að festa skjáinn við hulstrið:
Haldið um rúlluna með báðum höndum og komið henni fyrir við eina brún skjásins þannig að hluti rúllunnar hangi yfir hulstrinu, eins og sýnt er.
Þrýstið rúllunni niður þar til línurnar á silfurlitu pinnunum flútta við miðjuna á hvítu ræmunni.
Varúð: Notið ekki meira afl en þarf til að komast að hvítu ræmunni.
Haldið jöfnum þrýstingi og rúllið meðfram brún skjásins tíu sinnum fram og til baka. Snúið síðan viðgerðarbakkanum og endurtakið þetta skref á hinum brúnunum þremur.
Kveikið á greiningarstillingu:
Tryggið að slökkt sé á iPad-spjaldtölvunni.
Haldið inni báðum hljóðstyrkshnöppunum.
Á meðan hnöppunum er haldið inni skal stinga tækinu í samband við straumbreyti með 20 W eða meira afli, eða beint í tölvu sem kveikt er á og er tengd við rafmagn.
Athugið: Miðstöðvar, skjáir eða aðrar óbeinar tengingar eru ekki studdar.
Sleppið hnöppunum þegar Apple-lógóið birtist.
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig hefja á viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð gæti varahluta- og þjónustuferill tækisins sýnt stöðu íhlutar sem „ljúka viðgerð“ og Apple Diagnostics fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu kann að sýna stöðu íhlutar sem „óþekkt“.