iPhone 16 Pro Max Taptic Engine

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  1. Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm) (923-02995)

  2. Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm) (923-00105)

  3. Átaksmælir (appelsínugulur, 0,85 kgf cm) (923-08131)

  4. Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf cm) (923-0248)

  5. JCIS-skrúfbiti fyrir stillanlegan átaksmæli (923-09177)

  6. JCIS-skrúfbiti fyrir fastan átaksmæli (923-0246)

  7. Micro stix-biti (923-01290)

  8. Nemi úr næloni (svartur teinn) (922-5065)

  9. ESD-örugg töng

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna úr neðri sveigjanlegum kapli hleðslutengissamstæðunnar. Setjið skrúfuna til hliðar.

  2. Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja þrjár stjörnuskrúfur úr tengihlíf Taptic Engine og eina stjörnuskrúfu úr Taptic Engine. Geymið skrúfurnar. Fjarlægið tengihlíf Taptic Engine og geymið hana fyrir samsetningu.

  3. Lyftið sveigjanlegum kapli hleðslutengissamstæðunnar úr tenginu á móðurborðinu (efst). Ofan á aðalhljóðnemanum eru tveir sveigjanlegir kaplar. Lyftið endum sveigjanlegs kapals aðalhljóðnema (hægra megin) og sveigjanlegum kapli Taptic Engine (vinstra megin) af tengjunum.

    1. Athugið hvort sveigjanlegu kaplarnir tveir flútta rétt á aðalhljóðnemanum fyrir samsetningu.

    2. Lyftið sveigjanlegum kapli hleðslutengissamstæðunnar upp og til vinstri, til að veita aðgang að krosshausaskrúfu.

      • null Varúð: Undir sveigjanlegum kapli hleðslutengissamstæðunnar er límefni.

  4. Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja eina stjörnuskrúfu úr Taptic Engine. Setjið skrúfuna til hliðar.

  5. Lyftið Taptic Engine upp til að aðskilja hana frá þynnu rafhlöðunnar og notið síðan svarta teininn til að lyfta sveigjanlegum kapli Taptic Engine af límefninu á aðalhljóðnemanum, til að hægt sé að fjarlægja Taptic Engine.

Samsetning

Athugið: Ný Taptic Engine er þegar með límefni. Ef verið er að setja aftur upp fyrirliggjandi Taptic Engine verður að bera nýtt límefni á Taptic Engine (923-11950) og á sveigjanlegan kapal Taptic Engine (923-11951).

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: