iPhone 16 Plus skjár
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa.
Verkfæri
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf cm)
Öryggisbiti
Micro stix-biti
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Verkfæri til að fjarlægja lím
ESD-örugg töng
Límskeri
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
6,7 tommu viðgerðarbakki
Skjápressa
Fleygar sem nota skal til að taka skjá af
Kapton-límband
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Varúð
Ekki snerta TrueDepth-myndarvélasamstæðuna eða nálæga hluti til að forðast skemmdir á linsunum.
Ekki snerta bakhlið skjásins. Það getur haft áhrif á myndgæði ef komið er við bakhlið skjásins.
Mikilvægt
Lesið Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp búnaðinn í fyrsta skipti.
Ef þessum íhlut er skipt út er mælt með að keyra viðgerðaraðstoð fyrir hugbúnað til að ljúka viðgerðinni.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Varúð
Áður en þessi viðgerð er hafin verður að slökkva á iPhone-símanum. Sé það ekki gert veldur það skemmdum á skjánum og íhlutum hans. Ef ekki er hægt að slökkva á iPhone-símanum skal fylgja skrefunum sem tilgreind eru í Annað verkferli áður en viðgerð er hafin.
Notið átaksmælinn og öryggisbitann til að fjarlægja öryggisskrúfurnar tvær, eina sitt hvorum megin við USB-C-tengið. Geymið skrúfurnar.

Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita skjálímið. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók hitabúnaðar til að fjarlægja skjá.
Fjarlægið iPhone-símann úr hitabúnaði til að fjarlægja skjá og setjið iPhone-símann svo aftur í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn vísi upp og USB-C-tengið snúi að hakinu.
Notið límbandsskerann til að skera meðfram hliðum og toppi iPhone-símans þar til skjárinn hefur losnað frá.
Stingið brún límskerans á milli skjásins og hulstursins. Haldið límskeranum í 45 gráðu horni og skerið meðfram báðum hliðum.

Setjið fleygana sem nota skal til að taka skjáinn af í viðgerðarbakkann. Táknið á endum fleyganna samsvarar tákninu á viðgerðarbakkanum.

Rennið skjánum niður að neðsta hluta iPhone-símans þar til sést í svolitla glufu. Stingið límskeranum inn í efsta hluta iPhone-símans í 45 gráðu horni og skerið meðfram efsta hlutanum þar til skjárinn losnar frá.
Varúð: Til að forðast að skemma sveigjanlega kapla skjásins skal ekki halla neðri hluta skjásins upp meira en sem nemur 5 gráðum.
Setjið sogskálarnar á viðgerðarbakkanum í raufarnar á viðgerðarbakkanum.
Athugið: Táknið neðst á bakkanum gefur til kynna í hvaða átt á að lyfta skjánum og hvorum megin eigi að setja sogskálarnar.
Lyftið einni hlið skjásins að sogskálunum. Ýtið á efri og neðri brúnir skjásins til að festa hann við sogskálarnar.
Varúð
Til að koma í veg fyrir að hulstrið eða skjárinn skemmist skal ganga úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu losaðar áður en skjánum er lyft.
Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar skjánum er hallað upp.
Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfurnar tvær, aðra úr tengihlífinni fyrir skjáinn og hina úr tengihlífinni fyrir birtuskynjarann. Geymið skrúfurnar. Fjarlægið tengihlíf skjásins og tengihlíf birtuskynjarans. Geymið hlífarnar fyrir samsetningu.

Takið enda sveigjanlegu kaplanna fyrir skjáinn og birtuskynjarann úr sambandi við tengin. Haldið um brúnir skjásins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Leggið síðan framhlið skjásins á hreinan, sléttan flöt.

Samsetning
Fjarlægið sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.
Notið ESD-örugga töng eða verkfærið til að fjarlægja lím til að taka upp skjálímið. Togið síðan í límið í 45 gráðu horni til að fjarlægja það. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins.



Varúð: Ekki snerta TrueDepth-myndavélarsamstæðuna, fjaðrirnar eða nálæga hluti.
Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar af hulstrinu og af brúnum skjásins.
Varúð
Ekki snerta neinn annan hluta skjáglersins með etanól- eða IPA-þurrkunum. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt skjáinn og haft áhrif á myndgæði.
Ekki nota verkfærið til að fjarlægja lím til að þrífa skjáinn.
Skoðið fjaðrirnar á þeim stöðum sem sýndir eru í skrefi 6. Ef fjöður er bogin eða skemmd skal halda áfram í skref 5. Annars skal fara í skref 9.
Athugið stefnu fjaðrarinnar sem á að skipta um. Notið ESD-örugga töng til að halda beygðu eða skemmdu fjöðrinni. Síðan skal nota átaksmælinn og Micro stix-bitann til að fjarlægja krosshausaskrúfuna úr fjöðrinni. Setjið skrúfuna til hliðar. Fleygið skrúfunni.
Fjarlægið tvær trilobe-skrúfur úr jarðtengifjöðrinni efst hægra megin.
Finnið nýja jarðtengifjöður af réttri gerð í stað þeirrar fyrri, í samræmi við teikninguna.
923-11702 (1)
923-11703 (2)
923-11704 (3)
923-11705 (4)

Notið ESD-örugga töng til að koma nýju jarðtengifjöðrinni fyrir. Notið síðan græna átaksmælinn og Micro stix-bitann til að skrúfa nýju trilobe-skrúfuna eða -skrúfurnar (923-11184) í jarðtengifjöðrina.
Ef aðrar fjaðrir eru bognar eða skemmdar skal endurtaka skref 5 til og með 7 til að skipta um þær. Haldið svo áfram að skrefi 9.
Skoðið innri skjáklemmurnar í leit að skemmdum fyrir samsetningu. Gangið úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu í 90 gráðu horni og séu ekki bognar eða skemmdar.
Mikilvægt
Ef innri skjáklemmurnar eru skemmdar gæti þurft að skipta um skjá.
Ef verið er að setja upp nýjan skjá skal fjarlægja hlífðarfilmuna ofan og neðan af honum.
Gætið þess að tveir svampar séu til staðar í rist efri hátalara, eins og sýnt er á myndinni vinstra megin. Ef annan hvorn þessara svampa vantar skal halda áfram að skrefi 11. Ef báðir svampar eru til staðar skal fara beint í skref 14.

Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja ristina yfir efri hátalaranum af hulstrinu, eins og sýnt er á myndinni í miðjunni. Notaðu verkfærið til að fjarlægja lím til að hreinsa allar límleifar úr hulstrinu.
Fjarlægið filmuna af bakhlið nýju ristarinnar yfir efri hátalarann og komið henni rétt fyrir með því að láta hana flútta við hakið á hulstrinu.
Notið svarta teininn eða ESD-örugga töng til að banka létt á nýju ristina yfir efri hátalaranum þar til hún fellur á réttan stað, eins og sýnt er á myndinni hægra megin.
Staðsetjið nýja skjálímið rétt yfir hulstrinu. Gangið úr skugga um að efstu götin á límfilmunni flútti við TrueDepth-myndavélarsamstæðuna.
Varúð: Gangið úr skugga um að allar límleifar hafi verið fjarlægðar af skjánum og hulstrinu áður en nýja skjálímið er sett á.
Nýja skjálímið er með losunarfilmu á efri hlutanum, fyrir miðju og neðri hlutanum. Grípið um flipann á botnfilmunni. Togið svo neðstu filmuna hægt út undan límfilmunni á meðan límfilmunni er þrýst í hulstrið.

Mikilvægt: Ekki fjarlægja efstu filmuna strax.
Athugið: Nýja skjálímið fyrir gerðina gæti litið öðruvísi út en á myndinni en aðferðin er sú sama.
Skoðið skjálímið til að tryggja að það sé staðsett á syllu hulstursins. Ef límið er ekki rétt staðsett á hulstrinu skal endurtaka samsetningarskref 2 til og með 13. Endurtakið síðan samsetningarskref 14 til og með 16 með nýju skjálími.
Notið svarta teininn til að festa skjálímið við hulstrið. Færið slétta enda svarta teinsins minnst þrisvar sinnum um brún hulstursins til að tryggja að límefnið festist jafnt.

Varúð
Ekki snerta TrueDepth-myndavélina á meðan skjálímið er sett á.
Ekki skemma ristina yfir efri hátalaranum eða svampana. Ef ristin eða svamparnir eru skemmd skal skipta um ristina.
Fjarlægið efri filmuna eins og sýnt er.



Mikilvægt: Ekki fjarlægja miðfilmuna strax.
Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann.
Látið vinstri brún skjásins mæta vinstri brún hulstursins. Þrýstið svo létt eftir brúnum skjásins til að festa hann við sogskálarnar.
Þrýstið endum sveigjanlega skjákapalsins og sveigjanlega birtuskynjarakapalsins á tengin. Þrýstið jafnt eftir endilöngum tengjunum.

Setjið tengihlíf skjásins og tengihlíf birtuskynjarans yfir endana á sveigjanlegu köplunum.

Notið græna átaksmælinn og Micro stix-skrúfbita til að skrúfa tvær nýjar trilobe-skrúfur (923-11193) (1) og (923-08381) (2) í, eina í tengihlíf birtuskynjara og aðra í tengihlíf skjásins.

Flettið fyrstu ræmunni af losunarfilmunni í miðjunni (1) af rangsælis, byrjið neðst á hulstrinu. Flettið annarri ræmunni (2) af réttsælis. Flettið þriðju ræmunni (3) réttsælis.

Mikilvægt: Forðist að snerta íhlutina í TrueDepth-myndavélunum og íhlutina næst þeim.
Varúð: Þriðji borðinn á miðfilmunni fer undir tvo sveigjanlega kapla. Ekki skemma sveigjanlegu kaplana þegar filman er fjarlægð.
Skoðið skjálímið til að ganga úr skugga um að það sé á réttum stað og sé hvorki skemmt né krumpað. Ef límið er skemmt skal fjarlægja það og setja nýtt lím á.
Viðvörun: Skoðið hulstrið vel til að leita eftir lausum skrúfum eða öðrum smáhlutum sem gætu orsakað öryggisvandamál.
Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Hallið skjánum niður á við þannig að hann hvíli á hulstrinu.
Fjarlægið sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.
Þrýstið öllum hornum skjásins niður samtímis. Ýtið síðan eftir brúnum skjásins þar til smellur finnst og hann flúttar við hulstrið.

Varúð: Gangið úr skugga um að sveigjanlegu kaplarnir séu ekki fastir á milli skjásins og hulstursins. Þreifið á skjábrúnunum í leit að misfellum. Ef skjárinn flúttar ekki skal endurtaka öll losunarskrefin og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtakið síðan samsetningarskref 1 til 28.
Setjið viðgerðarbakkann með iPhone-símanum í skjápressuna og látið skjáinn vísa upp. Dragið niður arminn þar til skjápressan læsist.

Bíðið þar til skjápressan gefur frá sér hljóðmerki og teljarinn sýnir 0. Ýtið handfanginu niður (1) og togið losunarhnúðinn út (2). Lyftið síðan arminum (3).

Fjarlægið viðgerðarbakkann úr skjápressunni.
Notið bláa átaksmælinn og öryggisbita til að skrúfa tvær nýjar öryggisskrúfur í, sitt hvorum megin við USB-C-tengið. Þegar skrúfurnar eru skrúfaðar í skal ýta létt á skjáinn nærri USB-C-tenginu.

Athugið: Notið réttan skrúfulit fyrir gerðina.
923-11208 (svört)
923-11209 (hvít, bleik, skærblá, blágræn)
Varúð: Ef skrúfurnar flútta ekki skal fjarlægja þær og leggja þær til hliðar. Setjið því næst upp nýtt sett af öryggisskrúfum. Ef nýju skrúfurnar flútta enn ekki skal endurtaka öll skref sundurhlutunar og samsetningar.
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð mun varahluta- og þjónustuferill tækisins hugsanlega sýna stöðu íhlutar sem „Ljúka viðgerð“ og Apple-greining fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu sýnir hugsanlega stöðu íhlutar sem „Óþekkt“.
Annað verkferli
Aðeins ef ekki er hægt að slökkva á iPhone-símanum: Ljúkið eftirfarandi skrefum áður en skjárinn er fjarlægður:
Ljúkið öllum sundurhlutunarskrefum í Glerbakstykki.
Setjið Kapton-límband yfir rafhlöðutengið á móðurborðinu.
Þrýstið endanum á sveigjanlega kapli glerbakstykkisins á tengið.
Ekki setja sveigjanlega rafhlöðukapalinn aftur í samband strax.
Ekki setja efri og neðri hlífarnar eða lím glerbakstykkisins á sinn stað núna.
Komið glerbakstykkinu fyrir ofan á hulstrinu. Fjarlægið hólfið úr viðgerðarbakkanum. Setjið hólfið svo aftur í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn vísi upp og USB-C-tengið snúi að hakinu.
Haldið áfram í sundurhlutunarskref 1.