iPhone 15 Pro TrueDepth-myndavél
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
TrueDepth-myndavélin inniheldur einn eða fleiri leysigeisla. Ef TrueDepth-myndavélin er tekin í sundur eða hún skemmist eða ef ekki eru notaðir ósviknir Apple-varahlutir getur það leitt af sér útsetningu fyrir hættulegum innrauðum geislum sem geta valdið skaða á augum eða húð.
Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:
Verkfæri
15 cm viðgerðarbakki
ESD-örugg töng
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
USB-C hleðslusnúra
Varúð
Forðastu að snerta linsur myndavélarinnar eða nálæga hluta.
VarúðÞessi aðferð krefst TrueDepth-myndavélarstillingar. Til að framkvæma TrueDepth-myndavélarstillingu þarftu eftirfarandi:
Mac-tölvu með uppsetta nýjustu útgáfu af Apple Service Utility. Þú þarft einnig að setja upp iPhone Repair fyrir TrueDepth-myndavél sem finna má í glugganum Apple Service Utility Resources.
Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af iOS.
Internetaðgang
USB-C hleðslusnúru
Eftir að þú hefur lokið öllum skrefum við að taka í sundur og setja saman aftur og setja upp Apple Service Utility á Mac-tölvu skaltu læra hvernig að á hefja stillingarferli TrueDepth-myndavélar á support.apple.com/self-service-repair.
Losun
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að USB-C tengið snúi að hakinu.
Vertu í hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Lyftu enda efri loftnetssnúrunnar af tenginu.
Athugaðu: Tvær TrueDepth-myndavélarsnúrur liggja undir efri loftnetssnúrunni.
Lyftu endunum á snúrunum tveimur á TrueDepth-myndavélinni af tengjunum.
Haltu TrueDepth-myndavélarsnúrunum varlega saman og lyftu TrueDepth-myndavélinni upp úr hulstrinu.
Samsetning
Vertu í hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Hallaðu efri enda TrueDepth-myndavélarinnar niður í hulstrið. Gakktu úr skugga um að TrueDepth-myndavélin liggi flöt í hulstrinu.
Þrýstu báðum endum TrueDepth-myndavélarsnúranna að tengjunum.
Þrýstu enda efri loftnetssnúrunnar að tenginu.
Settu efri hátalarann aftur í.
Fjarlægðu hlífarnar af TrueDepth-myndavélinni.
Varúð: Ekki snerta TrueDepth-myndavélarlinsurnar eftir að þú hefur fjarlægt hlífarnar.
Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að þú hefur lokið við öll fjarlægingar- og samsetningarskref skaltu læra hvernig á að hefja stillingarferli TrueDepth-myndarvélar á support.apple.com/self-service-repair.
Þú þarft Mac-tölvu með uppsett Apple Service Utility til að gera True Depth-myndavélarstillingu.
Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af iOS.