iPhone 15 Plus skjár

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Verkfæri

  • 17 cm viðgerðarbakki

  • Límbandsskeri

  • Verkfæri til að fjarlægja lím

  • Stillanlegur upphitaður skjávasi

  • Skjápressa

  • ESD-örugg töng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

  • Hitabúnaður til að fjarlægja skjá

  • Hitaþolnir hanskar

  • Kapton-límband

  • Melamínsvampur

  • Micro stix-biti

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksskrúfjárn (svart, 0,35 kgf. cm)

  • Átaksskrúfjárn (blátt, 0,65 kgf. cm)

  • Torx öryggisbiti

 Varúð

  • Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að lokið hefur verið að fjarlægja allt og setja saman skal fylgja leiðbeiningunum til að ræsa kerfisstillingu.

  • Ekki snerta TrueDepth-myndavélasamstæðuna eða nálæga hluti til að forðast skemmdir á linsunum.

  • Ekki snerta bakhlið skjásins. Það getur haft áhrif á myndgæði ef komið er við bakhlið skjásins.

Mikilvægt

Lestu Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef þú ert að setja upp hitabúnaðin í fyrsta skipti.

Losun

Mikilvægt

Ef þú getur slökkt á iPhone skaltu fara beint í skref 6. Ef þú getur ekki slökkt á iPhone skaltu fara í skref 1.

  1. Ljúktu við öll fjarlægingarskref í hlutanum um glerbakstykki. Haltu svo áfram í skref 2.

  2. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að myndavélin snúi upp og USB-C tengið vísi að hakinu.

  3. Settu Kapton-límband yfir tengið á rafhlöðusnúrunni á móðurborðinu.

  4. Þrýstu endanum á snúru glerbakstykkisins á tengið.

    •  Varúð

      • Ekki setja rafhlöðusnúruna aftur í samband strax.

      • Ekki setja efri og neðri hlífarnar á sinn stað eða lím á glerbakstykkið núna.

  5. Settu glerbakstykkið ofan á hulstrið. Fjarlægðu hulstrið úr viðgerðarbakkanum. Settu síðan hulstrið aftur í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn snúi upp og USB-C tengið snúi að hakinu.

  6. Notaðu átaksskrúfjárn og Torx öryggisbitann til að fjarlægja öryggisskrúfurnar tvær, eina sitt hvorum megin við USB-C tengið. Settu skrúfurnar til hliðar.

  7. Snúðu rofanum aftan á hitabúnaðinum til að kveikja á honum. Það mun kvikna á innri viftunni. Bíddu eftir að gátmerkið birtist á skjánum.

    • Athugaðu: Ef villukóði kemur upp á skjánum skal slökkva á búnaðinum og kveikja á honum aftur.

  8. Taktu iPhone úr viðgerðarbakkanum.

  9. Settu iPhone neðst í hægra hornið á stillanlega upphitaða skjávasanum þannig að skjárinn snúi upp og USB-C tengið vísi að botni vasans.

    •  Varúð: Ekki rispa iPhone þegar þú setur hann í stillanlega upphitaða skjávasann.

  10. Ýttu á svæðin sem sýnd eru til að halda iPhone á sínum stað. Snúðu síðan hnappinum neðst á vasanum réttsælis til að festa iPhone.

    •  Varúð: Ekki herða hnappinn of mikið.

    • Mikilvægt: Gakktu úr skugga um að iPhone sé fyrir miðju á milli látúnsbandanna innan á vasanum. Ef hann er það ekki skaltu snúa hnappinum rangsælis til að losa böndin. Fjarlægðu iPhone og endurtaktu síðan skref 9 og 10.

  11. Farðu í hitaþolnu hanskana. Láttu útskurðinn á neðri hluta vasans passa við brautina á búnaðinum. Renndu vasanum með iPhone-símanum á brautina á búnaðinum.

    •  Viðvörun: Ekki setja vasann í tækið án þess að vera með hitaþolnu hanskana.

  12. Renndu vasanum inn í tækið þangað til þú finnur að hann smellur á sinn stað.

    • Athugaðu: Skjárinn á búnaðinum verður rauður og teljarinn telur niður frá 2 mínútum þar til vasinn nær réttu hitastigi. Þegar teljarinn sýnir 0 byrjar tækið að pípa og skjárinn verður grænn.

  13. Snúðu hnappinum á búnaðinum réttsælis til að lækka sogskálina eins nálægt iPhone-símanum og mögulegt er án þess að snerta hann.

    •  Varúð: Til að forðast að skemma iPhone skaltu ekki snúa hnappinum fyrr en niðurtalningin er á enda.

    • Athugaðu: Búnaðurinn gefur frá sér hljóðmerki þar til sogskálin er látin síga.

  14. Taktu í handfangið og renndu sogskálinni beint út þar til brún hennar flúttar við neðri brún skjásins.

    •  Varúð: Ef brúnir sogskálarinnar og skjásins eru ekki í flútti getur það skemmt iPhone-símann.

  15. Snúðu hnappinum á búnaðinum réttsælis til að lækka sogskálina á skjáinn (1). Ýttu síðan handfangi sogskálarinnar niður til að festa sogskálina við skjáinn (2).

    • Mikilvægt: Eftir að sogskálin hefur verið látin síga niður á iPhone hefst 15 mínútna niðurtalning á skjánum. Þegar tímastillirinn sýnir 0 slokknar á hitabúnaðinum. Gakktu úr skugga um að þú ljúkir skrefum 16 og 17 innan þessa tímaramma.

  16. Snúðu hnappinum á búnaðinum rólega rangsælis þar til skjárinn byrjar að losna frá hulstrinu.

    • Mikilvægt: Ef þú sérð ekki strax bil á milli skjásins og hulstursins skaltu bíða í 30 sekúndur. Ef þú sérð enn ekki bil skaltu snúa silfurlita hluta hnappsins rangsælis þar til skjárinn byrjar að losna frá hulstrinu.

  17. Stingdu brún límbandsskerans á milli skjásins og hulstursins. Renndu skeranum á milli skjásins og hulstursins til hægri og vinstri eins og sýnt er þar til skjárinn losnar að hluta til frá hulstrinu.

    •  Varúð: Til að koma í veg fyrir skemmdir á snúrum skal ekki halla skjánum upp á við um meira en 5 gráður.

  18. Smelltu handfanginu upp til að losa sogskálina. Renndu síðan flata endanum á svarta teininum varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana frá skjánum.

    •  Varúð: Ekki snúa hnappinum. Ef hnappinum er snúið getur það skemmt snúrurnar.

  19. Þrýstu á losunarhnappinn á vasahliðinni til að losa vasann frá búnaðinum (1).

  20. Haltu um báðar hliðar vasans og renndu honum beint út úr búnaðinum (2).

  21. Snúðu hnappinum á stillanlega upphitaðaða skjávasanum rangsælis þar til þú getur tekið iPhone úr vasanum. Haltu í brún iPhone og fjarlægðu hann varlega úr vasanum.

    •  Varúð: Ekki rispa iPhone þegar þú tekur hann úr stillanlega upphitaða skjávasanum.

  22. Settu iPhone í viðgerðarbakkann þannig að skjárinn vísi upp og USB-C tengið snúi að hakinu. Farðu úr hönskunum.

  23. Renndu skjánum örlítið að neðri hluta iPhone-símans.

  24. Stingdu brún límbandsskerans í efri hluta iPhone á milli skjásins og hulstursins. Haltu límbandsskeranum í 45 gráðu horni. Byrjaðu í miðjunni og skerðu meðfram toppi og hliðum iPhone þar til skjárinn er laus.

    •  Varúð: Ekki halla skjánum meira en sem nemur 5 gráðum til að forðast að skemma snúrurnar.

  25. Settu sogskálarnar á viðgerðarbakkanum í raufarnar á viðgerðarbakkanum.

    • Athugaðu: Táknið neðst á bakkanum gefur til kynna í hvaða átt á að lyfta skjánum og hvorum megin eigi að setja sogskálarnar.

  26. Lyftu einni hlið skjásins að sogskálunum. Ýttu á efri og neðri brúnir skjásins til að festa hann við sogskálarnar.

    •  Varúð

      • Til að koma í veg fyrir að hulstrið eða skjárinn skemmist skal ganga úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu losaðar áður en skjánum er lyft.

      • Ekki skemma snúrurnar þegar skjánum er hallað upp.

      • Ekki þrýsta á bakhlið skjásins.

  27. Notaðu átaksskrúfjárn og Micro stix-bitann til að fjarlægja tvær þríblaða skrúfur, eina úr tengihlíf skjásins og aðra úr tengihlíf ljósskynjarans. Settu skrúfurnar til hliðar.

  28. Fjarlægðu tengihlíf skjásins og tengihlíf ljósskynjarans. Geymdu hlífarnar fyrir samsetningu.

  29. Lyftu endum á snúrum fyrir skjá og skynjara fyrir umhverfislýsingu af tengjunum.

  30. Haltu um brúnir skjásins. Togaðu í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Leggðu síðan framhlið skjásins á hreinan, sléttan flöt.

  31. Fjarlægðu sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.

  32. Notaðu verkfærið til að fjarlægja lím eða svarta teininn til að taka límið úr hulstrinu. Notaðu ESD-töngina til að toga í límið. Endurtaktu þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins.

    •  Varúð: Ekki snerta TrueDepth-myndavélarsamstæðuna, fjaðrirnar eða nálæga hluti.

  33. Notaðu etanól- eða IPA-þurrkur til að hreinsa allar límleifar úr hulstrinu.

  34. Notaðu etanól- eða IPA-þurrkur til að hreinsa allar límleifar af brúnum skjásins.

    •  Varúð

      • Ekki snerta neinn annan hluta skjáglersins með etanól- eða IPA-þurrkunum. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt skjáinn og haft áhrif á myndgæði.

      • Ekki nota verkfærið til að fjarlægja lím til að þrífa skjáinn.

Samsetning

  1. Skoðaðu fjaðrirar á þeim stöðum sem sýndir eru. Ef fjöður er bogin eða skemmd skaltu halda áfram í skref 2. Annars skaltu fara yfir í skref 6.

  2. Athugaðu legu fjaðrarinnar sem þú skiptir um. Notaðu ESD-töng til að halda beygðu eða skemmdu fjöðrinni. Síðan skaltu nota átaksskrúfjárn og Micro stix-bitann til að fjarlægja þríblaða skúfuna úr fjöðrinni.

  3. Finndu réttu fjöðrina sem á að koma í staðinn samkvæmt skýringarmyndinni.

    • Fjaðrir

      • 923-10034 (1)

      • 923-10033 (2)

      • 923-10035 (3)

      • 923-10036 (4)

      • 923-10037 (5)

  4. Notaðu ESD-töng til að staðsetja nýja fjöður. Notaðu síðan svarta átaksskrúfjárnið og Micro stix-bitann til að setja í eina nýja þríblaða skrúfu (923-10032) í fjöðrina.

    • Athugaðu: Fjöðrin efst til hægri notar tvær þríblaða skrúfur (923-10032).

  5. Ef aðrar fjaðrir eru bognar eða skemmdar skaltu endurtaka skref 2 til 4 til að skipta um þær. Haltu svo áfram að skrefi 6.

  6. Skoðaðu innri skjáklemmurnar í leit að skemmdum fyrir samsetningu. Gakktu úr skugga um að innri skjáklemmurnar séu í 90 gráðu horni og séu ekki bognar eða skemmdar.

    • Mikilvægt

      • Ef innri skjáklemmurnar eru skemmdar gæti þurft að skipta um skjá.

      • Ef þú ert að skipta um skjá og setja nýjan skaltu fjarlægja hlífðarfilmuna af fram- og bakhlið.

  7. Gakktu úr skugga um að efri hátalararistin sé með tvö frauðstykki eins og sýnt er. Ef bæði frauðustykkin eru til staðar skaltu fara beint í skref 11. Ef annað hvort frauðstykkið vantar skaltu haltu áfram í skref 8 til að skipta um efri hátalaragrind.

  8. Notaðu ESD-töng til að fjarlægja efri hátalaragrindina af á hulstrinu. Notaðu verkfærið til að fjarlægja lím til að hreinsa allar límleifar úr hulstrinu.

  9. Fjarlægðu filmuna af bakhlið efri hátalaragrindarinnar og settu hana á sinn stað með því að stilla því upp við hakið á hulstrinu.

  10. Notaðu svarta teininn eða ESD-töngina til að ýta grindinni á sinn stað.

  11. Fjarlægðu hlífðarfilmuna af efri og neðri hlið límsins.

  12. Settu límfilmuna yfir hulstrið. Gakktu úr skugga um að efstu götin á límfilmunni flútti við TrueDepth-myndavélina.

    •  Varúð: Gakktu úr skugga um að þú hafir fjarlægt allar límleifar af skjánum og hulstrinu áður en þú setur nýju límfilmuna á.

  13. Lím nýja skjásins er með losunarfilmu á efri hlutanum, fyrir miðju og neðri hlutanum. Gríptu um flipann á neðstu losunarfilmunni. Togaðu svo neðstu losunarfilmuna hægt út undan límfilmunni á meðan þú þrýstir límfilmunni í hulstrið.

    • Mikilvægt: Ekki fjarlægja efstu filmuna strax.

      • Neðsta losunarfilma (1)

      • Lím (2)

    • Athugaðu: Límfilman fyrir þína gerð gæti litið öðruvísi út en á myndinni, en aðferðin er sú sama.

  14. Skoðaðu skjálímið til að tryggja að það sé staðsett á syllu hulstursins. Ef límið er ekki rétt staðsett á hulstrinu skaltu endurtaka fjarlægingarskref 32 til 34. Endurtaktu síðan samsetningarskref 1 til 14 með nýju skjálími.

  15. Notaðu svarta teininn til að festa skjálímið við hulstrið. Færðu svarta teininn um brún hulstursins að minnsta kosti þrisvar sinnum til að tryggja að límið festist jafnt.

    •  Varúð

      • Ekki skemma efri hátalaragrindina eða frauðstykkin. Ef grindin eða frauðstykkin eru skemmd skaltu skipta um grindina.

      • Ekki snerta TrueDepth-myndavélarsamstæðuna.

  16. Fjarlægðu efri losunarfilmuna eins og sýnt er.

    • Mikilvægt: Ekki fjarlægja miðfilmuna strax.

      • Efsta losunarfilma

  17. Settu sogskálarnar í viðgerðarbakkann.

  18. Láttu vinstri brún skjásins mæta vinstri brún hulstursins. Ýttu varlega á skjábrúnirnar til að festa skjáinn við sogskálarnar.

    •  Varúð: Ekki ýta á bakhlið skjásins.

  19. Ýttu endum á snúrum skjásins og skynjara fyrir umhverfislýsingu að tengjunum. Þrýstu jafnt eftir endilöngum tengjunum.

  20. Settu skjátengishlífina (1) og hlífina á skynjaratengi fyrir umhverfislýsingu (2) yfir endana á snúrunum.

  21. Notaðu svarta átaksskrúfjárnið og Micro stix-bitann til að setja eina nýja þríblaða skrúfu (923-10010) í skjátengishlífina (1) og eina nýja þríblaða skrúfu (923-09853) í hlífina á skynjaratengi fyrir umhverfislýsingu (2).

  22. Flettu fyrstu ræmunni af miðfilmunni (1) réttsælis og byrjaðu neðst á hulstrinu. Flettu annarri ræmunni (2) af rangsælis og byrjaðu á neðri hluta hulstursins hægra megin. Flettu síðan þriðju (3) ræmunni af réttsælis (3), byrjaðu neðst til vinstri á hulstrinu.

    •  Varúð: Þriðja ræman á mið-losunarfilmunni liggur undir tveimur snúrum. Ekki skemma snúrurnar þegar losunarfilman er fjarlægð.

      • Miðjufilma

  23. Skoðaðu skjálímið til að ganga úr skugga um að það sé á réttum stað og sé ekki skemmt eða krumpað. Ef límið er skemmt skal fjarlægja það og setja nýtt lím á.

  24. Togaðu í flipana á sogskálunum til að losa þær af skjánum. Hallaðu skjánum niður þannig að hann hvíli á hulstrinu.

  25. Fjarlægðu sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.

  26. Þrýstu öllum hornum skjásins niður samtímis. Ýttu síðan meðfram brúnum skjásins þar til hann smellur á sinn stað og flúttar við hulstrið.

    •  Varúð: Gakktu úr skugga um að snúrurnar séu ekki fastar á milli skjásins og hulstursins. Þreifaðu meðfram brúnum skjásins til að leita að misfellum eða bilum. Ef skjárinn flúttar ekki skaltu endurtaka fjarlægingarskref 7 til 34 og athuga hvort snúrurnar séu skemmdar. Endurtaktu síðan samsetningarskref 1 til 26.

  27. Settu viðgerðarbakkann með iPhone-símanum í skjápressuna. Dragðu niður arminn þar til skjápressan læsist.

  28. Bíddu þar til skjápressan pípir og tímamælirinn sýnir 0. Ýttu arminum niður (1) og togaðu losunarhnappinn út (2). Lyftu síðan arminum (3).

  29. Fjarlægðu viðgerðarbakkann úr skjápressunni.

  30. Notaðu bláa átaksskrúfjárnið og Torx öryggisbitann til að setja tvær nýjar öryggisskrúfur í, eina sitt hvorum megin við USB-C tengið. Þegar þú setur skrúfurnar í skaltu ýta létt á skjáinn nálægt USB-C tenginu.

    • Athugaðu: Notaðu réttan skrúfulit fyrir hverja gerð.

      • Svartur (923-09817)

      • Blár, grænn, bleikur, gulur (923-09818)

    •  Varúð: Ef skrúfurnar eru ekki í flútti skaltu fjarlægja þær og setja þær til hliðar. Endurtaktu síðan skref 30 til að setja nýtt sett af öryggisskrúfum í. Ef nýju skrúfurnar eru enn ekki í flútti skaltu endurtaka öll skref til að taka í sundur og setja saman aftur.

  31. Hreinsaðu hliðar iPhone með melamínsvampi.

    • Mikilvægt: Ef þú hefur lokið við fjarlægingarskref 1 til 5 skaltu halda áfram í skref 32. Ef þú þurftir ekki að ljúka við skref 1 til 5 skaltu fara beint í Varúð í lok þessa hluta.

  32. Taktu iPhone úr viðgerðarbakkanum.

  33. Settu iPhone neðst í hægra hornið á stillanlega upphitaða skjávasanum þannig að myndavélin snúi upp og USB-C tengið vísi að botni vasans.

  34. Ýttu á svæðin sem sýnd eru til að halda iPhone á sínum stað. Snúðu síðan hnappinum neðst á vasanum réttsælis til að festa iPhone.

    •  Varúð: Ekki herða hnappinn of mikið.

    • Mikilvægt: Gakktu úr skugga um að iPhone sé fyrir miðju á milli látúnsbandanna innan á vasanum. Ef hann er það ekki skaltu snúa hnappinum rangsælis til að losa böndin. Fjarlægðu iPhone og endurtaktu síðan skref 33 og 34.

  35. Settu stillanlega upphitaða skjávasann í hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá. Ekki kveikja á búnaðinum.

  36. Taktu í handfangið og renndu sogskálinni beint út þar til brún sogskálarinnar flúttar við neðri brún glerbakstykkisins (1).

  37. Snúðu hnappinum á búnaðinum réttsælis til að láta sogskálina síga niður á glerbakstykkið (2). Snúðu svo handfanginu á sogskálinni niður til að festa sogskálina við glerbakstykkið (3).

    • Varúð: Ekki láta sogskálina hanga yfir brún glerbakstykkisins því það gæti skemmt iPhone. Hættu viðgerðinni ef skemmdir verða. Þú finnur þjónustuvalkost á support.apple.com/repair.

  38. Snúðu hnappinum á búnaðinum rangsælis þar til glerbakstykkið skilur sig frá hulstrinu.

    • Mikilvægt: Ekki halla glerbakstykkinu meira en sem nemur 5 gráðum til að forðast að skemma snúruna á glerbakstykkinu.

  39. Smelltu handfanginu upp til að losa sogskálina. Renndu síðan enda svarta teinsins varlega undir brún sogskálarinnar til að losa hana af glerbakstykkinu.

  40. Ýttu á losunarhnappinn á hlið vasans til að losa vasann úr búnaðinum.

  41. Snúðu hnappinum á stillanlega upphitaða skjávasanum rangsælis þar til þú getur tekið iPhone úr vasanum.

  42. Settu iPhone í viðgerðarbakkann þannig að myndavélin snúi upp og USB-C tengið vísi að hakinu. Settu glerbakstykkið til hliðar á hreint yfirborð.

  43. Taktu Kapton-límbandið af tenginu á rafhlöðusnúrunni.

    • Athugaðu: Ekki setja rafhlöðusnúruna aftur í samband strax.

  44. Ljúktu við öll samsetningarþrep í hlutanum um glerbakstykki. Lestu svo eftirfarandi kafla um varúð.

 Varúð

  • Kerfisstillingar er krafist ef skipt var um glerbakstykki, rafhlöðu, myndavél eða skjá. Stilling á TrueDepth-myndavél er nauðsynleg ef sett var upp ný TrueDepth-myndavél. Hunsaðu tilkynningar um eiginleika iPhone á lásskjánum þar til stillingu er lokið.

  • Eftir að öllum fjarlægingar- og samsetningarskrefum er lokið skal hefja nauðsynlegt stillingarferli. Aðferðin við að hefja stillingu er mismunandi eftir því hvaða íhlut eða íhlutum er skipt út.

    • Ef skipt var um glerbakstykki, rafhlöðu, myndavél eða skjá, skal hefja kerfisstillingu með því að setja tækið í greiningarham. Ýttu á Start Session (hefja lotu) og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

      • Þú færð eina tilraun til að ljúka við kerfisstillingu. Ef tilraunin er trufluð, hætt við hana eða ef villa kemur upp birtir tækið skilaboð sem segja þér að hafa samband við verkstæði með sjálfsafgreiðslu til að fá aðstoð.

    • Ef skipt var um TrueDepth-myndavél þarf eftirfarandi:

      • Mac-tölvu með nýjustu útgáfu af Apple Service Utility uppsett. Þú þarft líka að setja upp „iPhone Repair – TrueDepth Camera Resources“ í Apple Service Utility Resources-glugganum.

      • Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af iOS.

      • Internetaðgang

      • USB-C hleðslusnúru

      • Eftir að þú hefur sett Apple Service Utility upp á Mac-tölvu skaltu læra hvernig á að hefja stillingarferli TrueDepth-myndavélar á support.apple.com/self-service-repair.

Birt: