iPhone 15 Plus neðri hátalari

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 17 cm viðgerðarbakki

  • ESD-örugg töng

  • JCIS-biti

  • Micro stix-biti

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksskrúfjárn (blátt, 0,65 kgf. cm)

  • Átaksskrúfjárn (grænt, 0,45 kgf. cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á eða nálægt neðri hátalaranum.

Losun

  1. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að USB-C tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bitann til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar (1). Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Notaðu átaksskrúfjárn og Micro stix-bita til að fjarlægja þríblaða skrúfuna (2). Settu skrúfuna til hliðar.

  4. Taktu neðri hátalarann úr hulstrinu.

    •  Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Samsetning

  1. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki í réttri stöðu skaltu nota ESD-örugga töng til að koma henni aftur fyrir.

  2. Hallaðu neðri hátalaranum í 45 gráðu horn og settu hann í hulstrið.

  3. Notaðu bláa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að setja fjórar nýjar stjörnuskrúfur í neðri hátalarann:

    • Tvær stjörnuskrúfur (923-09856) (1)

    • Tvær stjörnuskrúfur (923-09857) (2)

  4. Notaðu græna átaksskrúfjárnið og Micro stix-bitann til að setja eina nýja þríblaða skrúfu (923-09819) í neðri hátalarann (3). Ýttu létt á neðri hátalarann ​​til að tryggja að skrúfurnar flútti við skrúfugötin.

    •   Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Settu eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: