iPhone 15 Plus-glerbakstykki
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa.
Ef rangt er staðið að skiptum eða meðhöndlun á íhlutum, eða ef meðfylgjandi leiðbeiningunum er ekki fylgt getur það valdið bilunum. Að auki getur þráðlaus hleðsla virst hæg eða iPhone hleður sig ekki rétt. Slík tilvik geta valdið meiðslum eða skemmdum á tækinu, íhlutum eða öðrum eignum.
Verkfæri
17 cm viðgerðarbakki
Límbandsskeri
Stillanlegur upphitaður skjávasi
Verkfæri til að fjarlægja lím
Myndavélarlok
Skjápressa
ESD-örugg flísatöng
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Hitabúnaður til að fjarlægja skjá
Hitaþolnir hanskar
Melamínsvampur
Micro stix-biti
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Hlífðargleraugu með hliðarhlífum
Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf. cm)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Torx-öryggisbiti
Varúð
Til að forðast að skemma linsurnar skal ekki snerta myndavélina eða nálæga íhluti.
Mikilvægt
Lestu Hitabúnaður til að fjarlægja skjá ef verið er að setja upp hitabúnaðinn í fyrsta skipti.
Ef þessum íhlut er skipt út er mælt með að keyra viðgerðaraðstoð til þess að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Losun
Notið átaksmæli og Torx-öryggisbitann til að fjarlægja öryggisskrúfurnar tvær, eina sitt hvorum megin við USB-C tengið. Setjið skrúfurnar til hliðar.
Notið hitabúnaðinn til að fjarlægja skjá til að hita límið á glerbakstykkinu. Frekari leiðbeiningar er að finna í notkunarhandbók hitabúnaðar til að fjarlægja skjá.
Fjarlægið iPhone-símann af hitabúnaðinum til að fjarlægja skjá og setjið hann í viðgerðarbakkann.
Notið límskerann til að skera meðfram hliðum og toppi iPhone-símans þar til glerbakstykkið hefur losnað frá. Renndu glerbakstykkinu lítillega í átt að neðri hluta iPhone. Opnið síðan iPhone-símann með því að halla glerbakstykkinu á sogskálar viðgerðarbakkans.
Varúð: Ekki halla glerbakstykkinu meira en sem nemur 5 gráðum til að forðast að skemma sveigjanlegu kaplana.
Setjið sogskálar viðgerðarbakkans í raufarnar á viðgerðarbakkanum og leggið myndavélarlokið við hliðina á bakkanum.
Athugið: Táknið neðst á bakkanum gefur til kynna í hvaða átt á að lyfta glerbakstykkinu og hvorum megin eigi að setja sogskálarnar.
Mælt er með því að hylja myndavélina til að koma í veg fyrir mengun.
Athugið: Mælt er með að klæðast nítrílhönskum þegar myndavélin er hulin.
Varúð: Ekki skemma sveigjanlegu kaplana í glerbakstykkinu þegar því er hallað upp.
- Viðvörun: Ef rafhlaðan er beygluð, götuð eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Þú finnur þjónustuvalkost á
Viðvörun: Ef glerbakstykkið er brotið skal skoða hulstrið. Ef það eru glerbrot í hulstrinu skal setja upp öryggisgleraugu með hliðarhlífum og skurðarþolna hanska. Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja brotin. Notið síðan etanól- eða ísóprópýlalkóhólþurrkur til að fjarlægja öll brot sem límið hefur skilið eftir sig á jöðrum hulstursins. Ryksugið öll glerbrot af vinnusvæðinu.
Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja þrjár krosshausaskrúfur úr tveimur tengihlífum. Setjið skrúfurnar til hliðar. Fjarlægið hlífarnar og geymið þær fyrir samsetningu.
Til að fjarlægja neðri tengihlífina skal ýta tengihlífinni örlítið í átt að efsta hluta iPhone-símans til að losa hana. Hallið síðan neðri tengihlífinni og rennið henni út í átt að Taptic Engine.
Til að fjarlægja efri tengihlífina skal ýta létt á efri brún tengihlífarinnar til að færa hana um 1 mm í átt að botni iPhone-símans og losa efsta krókinn á tengihlífinni. Grípið síðan um botn tengihlífarinnar og fjarlægið hana.
Lyftið enda sveigjanlega rafhlöðukapalsins af tenginu og lyftið síðan endanum á sveigjanlegum kapli glerbakstykkisins af tenginu. Glerbakstykkið hefur nú verið fjarlægt. Haldið í brúnir glerbakstykkisins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af glerbakstykkinu. Settu síðan glerbakstykkið á hvolf á hreint, flatt yfirborð.
Varúð: Undir sveigjanlega rafhlöðukaplinum er sterkt lím. Ekki slíta sveigjanlega rafhlöðukapalinn þegar hann er fjarlægður.
Varúð: Aftengja verður sveigjanlega rafhlöðukapalinn fyrst til að tryggja að slökkt sé á iPhone-símanum.
Samsetning
Fjarlægið sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.
Notið verkfærið til að fjarlægja lím eða svarta teininn til að fjarlægja límið úr hulstrinu. Notið ESD-örugga töng til að toga í límið. Endurtakið þetta ferli þar til allt lím hefur verið fjarlægt af brúnum hulstursins.
Varúð: Ekki snerta myndavélarsamsetninguna, fjaðrir TrueDepth-myndavélarinnar eða nálæga hluti.
Notið etanól- eða IPA-þurrkur til að hreinsa allar límleifar af brúnum glerbakstykkisins.
Setjið hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að USB-C tengið snúi að hakinu.
Mikilvægt: Ef þú ert að setja upp nýtt glerbakstykki skaltu fjarlægja varnarfilmuna ofan og neðan af því.
Skoðið TrueDepth-myndavélina. Gangið úr skugga um að efri brún TrueDepth-myndavélarinnar sé undir brún hulstursins.
Varúð: Ef TrueDepth-myndavélin er ekki á réttum stað er svarti teinninn notaður til að koma henni fyrir á sínum stað.
Viðvörun: Athugið hvort lausar skrúfur eða aðrir smáhlutir sem gætu skemmt rafhlöðuna eða valdið annars konar skemmdum, séu í hulstrinu.
Setjð límið á nýja glerbakstykkinu yfir hulstrið. Gangið úr skugga um að efsta gatið á líminu sé í flútti yfir myndavélinni.
Varúð: Gangið úr skugga um að allar límleifar hafi verið fjarlægðar af glerbakstykkinu og hulstrinu áður en nýja límið fyrir glerbakstykkið er sett á.
Límfilman fyrir nýja glerbakstykkið er með filmu efst, í miðjunni og neðst. Grípið um flipann á botnfilmunni. Togið svo neðstu filmuna hægt út undan límfilmunni á meðan límfilmunni er þrýst í hulstrið.
Varúð: Fjarlægið myndavélarlokið rétt áður en þriðjungurinn sem eftir er af neðstu filmunni er dreginn af. Settu myndavélarlokið aftur á eftir að límið er komið á sinn stað.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja efstu filmuna strax.
Filma á neðri hlutanum (1)
Lím (2)
Athugið: Nýja límfilman fyrir glerbakstykkið fyrir gerðina gæti litið öðruvísi út en á myndinni en aðferðin er sú sama.
Skoðið límið á glerbakstykkinu til að tryggja að það sé staðsett á brún hulstursins. Ef límið er ekki rétt staðsett á hulstrinu skal endurtaka samsetningarskref 2 og 3. Endurtakið síðan samsetningarskref 5 til 8.
Notið svarta teininn til að festa límið á glerbakstykkinu við hulstrið. Færið svarta teininn um brún hulstursins að minnsta kosti þrisvar sinnum til að tryggja að límið festist jafnt.
Fjarlægið efstu filmuna.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja filmurnar á brúnum hulstursins.
Efri filma
Setjið sogskálarnar í viðgerðarbakkann.
Hafið hægri brún glerbakstykkisins í flútti við hægri brún hulstursins. Ýtið varlega á brúnir glerbakstykkisins til að festa það við sogskálarnar.
Varúð: Ekki ýta á bakhlið glerbakstykkisins til að festa það við sogskálarnar. Ef ýtt er á bakið getur það haft áhrif á virkni.
Þrýstið endanum á sveigjanlega kapli glerbakstykkisins á tengið.
Staðsetjið efri tengihlífina í hulstrinu.
Notið svarta teininn til að þrýsta létt á brún tengihlífarinnar til að færa hana um 1 mm í átt að botni iPhone-símans og festa krókana neðst í tengihlífinni. Gangið úr skugga um að tengihlífin liggi flöt.
Notið svarta átaksmælinn og Micro stix-bitann til að skrúfa eina nýja krosshausaskrúfu (923-10010) í efri tengihlífina.
Þrýstið enda sveigjanlega rafhlöðukapalsins að tenginu.
Notið ESD-örugga töng til að koma neðri tengihlífinni fyrir.
Notið svarta átaksmælinn og Micro stix-bita til að skrúfa tvær nýjar krosshausaskrúfur (923-09819) í neðri tengihlífina.
Flettið fyrsta borðanum af miðjufilmunni (1) réttsælis og byrjið neðst til vinstri á hulstrinu. Flettið öðrum borðanum (2) af rangsælis og byrjið á neðri hluta hólfsins hægra megin. Flettið þriðja borðanum af (3) réttsælis og byrjið efst til hægri á hulstrinu.
Varúð: Ekki snerta myndavélarsamsetninguna, fjaðrir TrueDepth-myndavélarinnar eða nálæga hluti.
Miðjufilma
Skoðaðu límið á glerbakstykkinu til að tryggja að það sé á réttum stað og ekki skemmt eða krumpað. Ef límið er skemmt skal fjarlægja það og bera nýtt lím á.
Viðvörun: Athugið hvort lausar skrúfur eða aðrir smáhlutir sem gætu skemmt rafhlöðuna eða valdið annars konar skemmdum, séu í hulstrinu.
Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af glerbakstykkinu.
Fjarlægðu myndavélarlokið og hallaðu glerbakstykkinu niður þannig að það hvíli á hulstrinu.
Fjarlægið sogskálarnar úr viðgerðarbakkanum.
Þrýstið glerbakstykkinu samtímis á þau fimm svæði sem sýnd eru. Þrýstið síðan meðfram brúnum glerbakstykkisins þar til það smellur á sinn stað og það er í flútti við hulstrið.
Varúð
Gangið úr skugga um að sveigjanlegu kaplarnir séu ekki klemmdir á milli glerbakstykkisins og hulstursins. Þreifið meðfram brúnum glerbakstykkisins til að leita að misfellum eða bilum. Ef glerbakstykkið er ekki í flútti skal endurtaka öll sundurhlutunarskref og athuga hvort sveigjanlegu kaplarnir séu skemmdir. Endurtakið síðan samsetningarskref 1 til 25 áður en farið er í skref 26.
Ekki snerta myndavélarlinsurnar.
Upphækkaðar brúnir
Brúnir í réttri stöðu
Snúið iPhone við í viðgerðarbakkanum þannig að skjárinn snúi upp.
Setjið viðgerðarbakkann í skjápressuna þannig að skjárinn snúi upp. Dragið niður arminn þar til skjápressan læsist.
Bíðið þar til tímamælirinn á skjápressunni gefur frá sér hljóðmerki og tímamælirinn sýnir 0. Ýtið handfanginu niður (1) og togið losunarhnúðinn út (2). Lyftið síðan arminum (3).
Fjarlægið viðgerðarbakkann úr skjápressunni.
Notið bláa átaksmælinn og Torx-öryggisbita til að skrúfa tvær nýjar öryggisskrúfur í, sitt hvorum megin við USB-C tengið. Þegar skrúfurnar eru skrúfaðar í skal ýta létt á skjáinn nærri USB-C tenginu.
Varúð: Ef skrúfurnar flútta ekki skal fjarlægja þær og leggja þær til hliðar. Endurtakið síðan skref 30 til að setja nýtt sett af öryggisskrúfum í. Ef nýju skrúfurnar eru enn ekki í flútti skal endurtaka öll sundurhlutunar- og samsetningarskref.
Athugið: Notið réttar skrúfur fyrir gerðina.
Svartur (923-09817)
Blár, grænn, bleikur, gulur (923-09818)
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð gæti varahluta- og þjónustuferill tækisins sýnt stöðu íhlutar sem „ljúka viðgerð“ og Apple Diagnostics fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu kann að sýna stöðu íhlutar sem „óþekkt“.