Mac mini (2023 með M2) Hátalari
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Torx T6 70 mm biti
Losun
Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og Torx T6 70 mm bitann til að fjarlægja tvær T6 skrúfur (923-02801) úr hátalaranum.
Varúð: Ekki fjarlægja hátalarann úr húsinu strax.
Hallið hátalaranum til hliðar eins og sýnt er. Notið svo slétta enda svarta teinsins til að taka endann á sveigjanlegum hátalarakaplinum úr sambandi við tengið.
Mikilvægt: Hátalarakapallinn er tengdur við móðurborðið undir hátalaranum.
Takið hátalarann úr móðurborðinu.
Samsetning
Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta endanum á hátalarakapli í tengið.
Látið skrúfugötin á hátalaranum flútta við skrúfugötin á móðurborðinu.
Setjið Torx T6 70 mm bitann á 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn. Stillið herslugildið á 14,5 Ncm.
Notið stillanlega átaksmælinn og Torx T6 70 mm bitann til að skrúfa tvær T6 skrúfur (923-02801) aftur í hátalarann.
Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningunn: