MacBook Pro (14 tommu, 2023) Touch ID-spjald
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
ESD-örugg flísatöng
Kapton-límband
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Átaksskrúfjárn (grænblátt, 0,75 kgf cm)
Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti
Verkfærasett til að jafna Touch ID
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/mbp-14-2023-j414/102727-touch-id-board/REM_001_TID_Locator_V1.jpg)
Varúð
Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Mikilvægt
Í þessu verklagi gæti þurft þynnusett fyrir Touch ID -spjald en slíkt sett fylgir eingöngu nýju Touch ID -spjaldi. Þetta er ekki aðskilinn íhlutur sem hægt er að panta.
Losun
Notið slétta enda svarta pinnans til að fletta sveigjanlega kapli Touch ID -spjaldsins af Y-laga hlífinni.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að losa eina 3IP skrúfu (923-06940).
Varúð: Ekki losa skrúfuna um meira en einn hring rangsælis til að skemma hana ekki.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að fjarlægja eina 3IP skrúfu (923-06940).
Notið ESD-örugga töng til að renna Y-laga hlífinni undan lausu skrúfunni. Fjarlægið síðan hlífina úr topphulstrinu og geymið hana fyrir samsetningu.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að fjarlægja tvær 3IP miðjuskrúfur (923-06942) (1) og fjórar ytri 3IP skrúfur (923-06955) (2) úr sveigjanlegri hlíf Touch ID -spjaldsins.
Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja sveigjanlega hlíf Touch ID -spjaldsins úr topphulstrinu. Geymið hlífina fyrir samsetningu.
Opnið skjáinn og látið tölvuna standa á hlið.
Styðjið við Touch ID -spjaldið (1) þegar sveigjanlegur kapall Touch ID (2) er þræddur í gegnum raufina eins og sýnt er.
Mikilvægt
Ef Touch ID -spjaldið sat ekki alveg rétt í áður en það var fjarlægt, eða skipt er um Touch ID -spjald skal fara í sundurliðunarskref 9 til að fjarlægja Touch ID -þynnuna.
Gangið úr skugga um að vinnusvæðið sé hreint. Undir Touch ID -spjaldinu er Touch ID -þynna, sem er lítill hringlaga hlutur. Ef hún dettur er auðveldara að finna hana á hreinu yfirborði.
Ef notaðar eru núverandi þynnur Touch ID skal fara í samsetningarskref 5.
Látið tölvuna snúa með hægri hliðina upp. Glennið sundur ESD-öruggu töngina og notið annan enda hennar til að fjarlægja þynnuna úr hringlaga grópinni undir Touch ID -spjaldinu.
Athugið: Þynnan er með örlitlu lími og getur límst við topphulstrið.
Samsetning
Mikilvægt
Ef skipt er um Touch ID -þynnu skal fylgja samsetningarskrefum 1 til 4. Ef notuð er upprunaleg þynna skal fara í samsetningarskref 5.
Látið tölvuna snúa með hægri hliðina upp og skjáinn opinn áfram.
Varúð: Gangið úr skugga um að tölvan sé sett á hreint yfirborð til að koma í veg fyrir skemmdir á innri hlutum.
Notið ESD-örugga töng til að taka upp miðlungsstóru Touch ID -þynnuna í þynnusettinu.
Athugið: Þynnan er svört á límhliðinni og silfurlituð á hinni hliðinni.
Komið Touch ID -þynnunni fyrir í hringlaga grópinni í topphulstrinu og látið límhliðina snúa niður.
Athugið: Y-laga jöfnunarverkfærin eru sýnd á myndunum en eru ekki nauðsynleg til að framkvæma þetta skref og næsta skref.
Þrýstið varlega á Touch ID -þynnuna til að festa hana við topphulstrið.
Opnið skjáinn og látið tölvuna standa á hlið.
Þræðið sveigjanlegan kapal Touch ID-spjaldsins í gegnum rauf topphulstursins. Komið síðan Touch ID -spjaldinu fyrir í opinu í topphulstrinu.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja bláu filmuvörnina eða límfilmuna strax ef nýtt Touch ID -spjald er sett í.
Stillið tveimur Y-laga jöfnunarverkfærum upp á móti Touch ID -hnappinum eins og sýnt er. Festið Y-laga verkfærin í hornin með Kapton-límbandi.
Gangið úr skugga um að Y-laga verkfærin haldi Touch ID -hnappinum á sínum stað þegar skjánum er lokað.
Athugið: Ef nýtt Touch ID -spjald er sett í skal taka verndarfilmuna af Touch ID -hnappinum.
Setjið tölvuna þannig að skjárinn snúi niður.
Notið ESD-örugga töng til að setja hlíf Touch ID -spjaldsins á eins og sýnt er.
Mikilvægt: Gangið úr skugga um að sveigjanleg hlíf Touch ID -spjaldsins sé sett í með hægri hliðina upp.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa eftirfarandi sex 3IP skrúfur lauslega í:
Tvær 3IP-skrúfur (923-06942) (1)
Fjórar 3IP skrúfur (923-06955) (2)
Mikilvægt: Hættið að herða skrúfurnar áður en þið finnið fyrir mótstöðu.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa efri vinstri 3IP skrúfur lauslega í.
Mikilvægt: Hættið að herða skrúfuna þegar þið finnið fyrir mótstöðu og áður en heyrist smellur í átaksmælinum.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að herða 3IP skrúfurnar fjórar í þeirri röð sem sýnd er.
Notið grænbláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa tvær 3IP miðjuskrúfur alveg í.
Látið tölvuna standa á hlið með skjáinn opinn. Fjarlægið síðan Kapton-límbandið og Y-laga jöfnunarverkfærin.
Ýtið á Touch ID -hnappinn til að tryggja að hann smelli.
Mikilvægt:
Ef Touch ID -hnappurinn er of laus skal endurtaka sundurliðunarskref 5 til 9. Endurtakið síðan samsetningarskref 2 til 15 með stærri Touch ID þynnu.
Ef Touch ID -hnappurinn er of stífur eða ekki er hægt að smella honum skal endurtaka sundurliðunarskref 5 til 9. Endurtakið síðan samsetningarskref 2 til 15 með minni Touch ID þynnu.
Horfið ofan frá og beint niður á Touch ID -hnappinn. Bilin á hvorri hlið eiga að birtast jöfn og Touch ID -hnappurinn á að vera í samræmi við aðgerðatakkana.
Mikilvægt: Ef ekki er sama bilið umhverfis hliðarnar skal losa um skrúfurnar á sveigjanlegri hlíf Touch ID -spjaldsins og endurtaka síðan samsetningarskref 10 til 16.
Lokið skjánum og setjið tölvuna niður þannig að skjárinn vísi niður.
Notið ESD-örugga töng til að koma Y-laga hlífinni fyrir í topphulstrinu(1). Gangið úr skugga um að hakið sé undir lausu skrúfunni (2).
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-06940) í Y-laga hlífina.
Mikilvægt
Ef verið er að setja upprunalegt Touch ID -spjald aftur í skal fara í samsetningarskref 22.
Ef verið er að setja nýtt Touch ID -spjald í skal fara í samsetningarskref 21.
Notið ESD-örugga töng til að fletta límleifum af Y-laga hlífinni.
Flettið límfilmunni af neðra svæðinu á sveigjanlegum kapli Touch ID -spjaldsins.
Mikilvægt: Skiljið hina límfilmuna á endanum á sveigjanlegum kapli Touch ID -spjaldsins eftir þar til móðurborðið hefur verið sett aftur í.
Þrýstið varlega á sveigjanlegan kapal Touch ID -spjaldsins til að festa hann við Y-laga festinguna.
Mikilvægt: Ef sveigjanlegur kapall Touch ID -spjaldsins flúttar ekki við Y-laga hlífina gæti hluti af kaplinum verið klemmdur á milli Touch ID -hnappsins og topphulstursins. Endurtakið sundurhlutunarskref 1 til 8 og fylgið síðan samsetningarskrefum 5 til 22 til að tryggja rétta stöðu á sveigjanlega kaplinum og hlífinni.
Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.