MacBook Pro Kynning

Þessi handbók inniheldur tæknilegar leiðbeiningar um hvernig skuli skipta um upprunalega Apple-varahluti í Mac og er ætluð tæknimönnum með þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki.

Mikilvægt

  • Lestu alla handbókina áður en lengra er haldið. Ef þú treystir þér ekki til að framkvæma viðgerðir samkvæmt leiðbeiningunum í þessari handbók, skaltu ekki halda áfram.

  • Notaðu alltaf nýjustu útgáfuna af þessari handbók sem finna má á support.apple.com/en_US/manuals/maclaptops.

 Viðvörun

Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá Apple eða rétt verkfæri ekki notuð getur það valdið bruna eða öðrum öryggisvandamálum og leitt til líkamstjóns eða dauða.

 Varúð

Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá MAC eða rétt verkfæri ekki notuð getur það skemmt iPhone, íhluti eða aðrar eignir, eða skaðað virkni tækisins.

Upplýsingar um ábyrgð

Skemmdir af völdum viðgerða sem ekki eru framkvæmdar af Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple heyra ekki undir ábyrgð Apple eða AppleCare-áætlanir. Slíkar skemmdir geta valdið því að það þurfi að greiða fyrir viðgerðir og þær séu utan ábyrgðar eða orðið til þess að ekki verði hægt að gera við tækið hjá Apple eða viðurkenndum þjónustuaðilum Apple.

Verkfæri og varahlutir

Pantanir á verkfærum og varahlutum

Hægt er að finna upplýsingar um það hvernig á að panta upprunalega varahluti og verkfæri frá Apple á support.apple.com/self-service-repair. Við kaupin skal slá inn auðkenni handbókarinnar sem finna má neðst á efnissíðunni til að sýna að þú hafir lesið alla þessa handbók og staðfestir að þú hafir þekkingu og reynslu til að sinna fyrirhugaðri viðgerð.

Hugbúnaðarverkfæri

Notið Apple Diagnostics til að prófa Mac-tölvuna.

Kerfisstilling gæti verið nauðsynleg þegar viðgerð er lokið. Kerfisstilling (System Configuration) er hugbúnaðarverkfæri sem er notað að lokinni viðgerð á ósviknum íhlutum frá Apple til að ljúka viðgerðinni. Kerfisstilling hefur margvíslegan tilgang sem er mismunandi eftir því hvaða varahluti verið er að skipta um.

Það sem kerfisstilling gerir

Hvers vegna þetta er mikilvægt

Uppfærir nýtt móðurborð með raðnúmeri tækis

Uppfæra þarf móðurborð með raðnúmeri tækisins til að tryggja að þjónusta Apple Pay, FaceTime, iMessage, og iCloud þjónusta, á borð við Find My, geti átt í öruggum og traustum samskiptum við tækið.

Flytur verksmiðjustillt kvörðunargildi

Ákveðnir varahlutir á borð við skjái, myndavélar og skynjara fyrir umhverfislýsingu hafa sín kvörðunargildi sem eru sérsniðin fyrir hvern einstakan varahlut við framleiðslu. Flutningur á þessum gildum tryggir hámarksvirkni og gæði eftir viðgerð.

Tengir Secure Enclave við lífkennisannvottunarhluti

Eftir viðgerðir á móðurborði eða lífkennisannvottunarhlutum (Touch ID), þarf að tengja lífkenniskynjara við Secure Enclave á móðurborðinu til að tryggja öryggi tækisins.

Tryggir heilleika viðgerða

Eftir viðgerðir á vélbúnaði eru athuganir á hugbúnaði framkvæmdar til að tryggja heilindi viðgerðarinnar. Heilindi viðgerðar þýða að upprunalegur varahlutur frá Apple hafi verið réttilega settur í.

Úthlutar þráðlausu svæði

Til að uppfylla reglur um samskipti verður að úthluta móðurborðinu þráðlausu svæði.

Uppfærir fastbúnað

Ef fastbúnaður er uppfærður hefur tækið alla nýjustu öryggisvirkni og afköst.

Kerfisstilling krefst öflugrar Wi-Fi-tengingar með 1,0 Mbps niðurhals- og upphleðsluhraða, með minna en 400 ms biðtíma og minna en 2% pakkatapi. Áætluð gagnanotkun við að keyra kerfisstillingu er 6–22 MB.

Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af macOS en ekki prófunarútgáfu.

Hægt er að finna upplýsingar um það hvernig hefja á kerfisstillingarferlið á support.apple.com/self-service-repair.

Viðvaranir

Ef viðvörunum er ekki sinnt getur það leitt af sér eldsvoða, líkamstjón, gagnatap eða skemmdir á tækinu, varahlutum eða öðrum eignum.

Hætta

Leiðbeiningar til að draga úr hættu á raflosti og rafstuði

Viðvörun

Leiðbeiningar til að draga úr hættu á líkamstjóni

Varúð

Leiðbeiningar til að draga úr hættu á gagnatapi eða vélbúnaðarskemmdum

Mikilvægt

Viðbótarupplýsingar til að framkvæma aðgerðir á árangursríkan hátt; hvorki viðvörun né varnaðarorð

Birt: