Stuðningur við varahluti fyrir MacBook Pro
Íhlutirnir sem notaðir eru við viðgerð geta haft veruleg áhrif á öryggi og afköst tækisins. Varahluta- og þjónustuferill, sem finna má í kerfisstillingum í macOS Tahoe 26.0 eða nýrri, veitir upplýsingar um viðgerðarferil tækisins fyrir flesta stærstu varahlutina.
Gerðir varahluta
Upprunalegir Apple-varahlutir
Upprunalegir Apple-varahlutir eru nýir varahlutir frá Apple sem hafa farið í gegnum strangt hönnunar- og prófunarferli til að uppfylla öryggis- og afkastastaðla okkar.
Upplýsingar um hvernig eigi að panta upprunalega Apple-varahluti er að finna á support.apple.com/self-service-repair.
Notaðir Apple-varahlutir
Notaðir Apple-varahlutir eru upprunalegir íhlutir sem teknir hafa verið úr fyrirliggjandi tæki af sömu gerð. Notaðir Apple-varahlutir sem eru í góðu ástandi geta skilað sömu afköstum og öryggi og nýir upprunalegir Apple-varahlutir. Þar sem þessir varahlutir koma ekki frá Apple, og uppruni þeirra er ekki þekktur, geta gæði þeirra verið breytileg.
Notaðir Apple-varahlutir og viðgerðir sem gerðar eru með notuðum Apple-varahlutum falla ekki undir vöruábyrgð Apple eða AppleCare-tryggingu.
Varahlutir frá þriðju aðilum
Þriðju aðilar kunna að halda því fram að sínir varahlutir séu samhæfir við Apple-vörur. Ekki er víst að þessir varahlutir skili sömu afköstum og upprunalegir Apple-varahlutir eða notaðir Apple-varahlutir og hugsanlega kunna þeir að ógna persónuvernd eða öryggi.
Apple mun ekki gera varahlut frá þriðja aðila óvirkan nema hann hafi áhrif á öryggi og persónuvernd viðskiptavina, svo sem varahlutir sem notaðir eru við auðkenningu með lífkennum (Touch ID). Aðrir eiginleikar þessara varahluta, svo sem hnappar, munu halda áfram að virka samkvæmt afkastagetu viðkomandi uppsetts íhlutar.
Varahlutir frá þriðju aðilum og viðgerðir sem gerðar eru með varahlutum frá þriðju aðilum falla ekki undir vöruábyrgð Apple eða AppleCare-tryggingu.
Stuðningur við notaða Apple-varahluti
Eftirfarandi MacBook Pro-gerðir styðja notaða Apple-varahluti fyrir upptalda íhluti.
MacBook Pro (14 tommu, M4, 2024) | MacBook Pro (14 tommu, M4 Pro eða M4 Max og 16 tommu, 2024) | |
---|---|---|
Hljóðspjald | ✓ | ✓ |
Botnhulstur | ✓ | ✓ |
Skjár | ✓ | ✓ |
Vifta(viftur) | ✓ | ✓ |
Lyklaborðshnappar | ✓ | ✓ |
MagSafe 3-spjald | ✓ | ✓ |
Hátalarar | ✓ | ✓ |
Touch ID-spjald1 | ✓ | |
Topphulstur | ✓ | ✓ |
Snertiflötur | ✓ | ✓ |
USB-C-spjöld | ✓ | ✓ |
Loftops-/loftnetseining | ✓ | ✓ |
1 Viðgerðaraðstoðar er krafist til að virkja auðkenningu með Touch ID. Frekari upplýsingar um viðgerðaraðstoð.