iPhone 12 Myndavél
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægðu eftirfarandi hlut áður en þú byrjar:
Verkfæri
15 cm viðgerðarbakki
ESD-örugg flísatöng
JCIS-biti
Micro stix-biti
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf. cm)
Átaksskrúfjárn (grænt, 0,45 kgf. cm)
Varúð
Ekki snerta TrueDepth-myndarvélasamstæðuna eða nálæga hluti til að forðast skemmdir á linsunum.
Forðastu fjaðrir á myndavélarhlífinni og hulstrinu.
Varúð
Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að lokið hefur verið við að fjarlægja allt og setja saman skal fylgja leiðbeiningunum til að ræsa kerfisstillingu.
Losun
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja stjörnuskrúfuna af myndavélarhlífinni. Settu skrúfuna til hliðar.
Notaðu átaksskrúfjárn og Micro stix-bita til að fjarlægja fjórar þríblaða skrúfur af myndavélarhlífinni í þeirri röð sem sýnd er. Settu skrúfurnar til hliðar.
Notaðu ESD-örugga töng til að fjarlægja myndavélarhlífina. Geymdu hlífina fyrir samsetningu.
Notaðu ESD-töngina til að lyfta enda efri myndavélarsnúrunnar varlega af tenginu.
Athugaðu: Önnur myndavélarsnúran liggur yfir hina.
Notaðu ESD-töng til að lyfta varlega enda neðstu myndavélarsnúrunnar af tenginu.
Haltu snúrunum gætilega saman og lyftu myndavélunum úr hulstrinu.
Samsetning
Vertu í hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar. Haltu síðan nýju myndavélunum með linsurnar niður á við og fjarlægðu hlífina af myndavélarlinsunum.
Hallaðu myndavélunum niður undir brún hulstursins. Láttu síðan myndavélarnar síga á sinn stað.
Ýttu endanum á neðstu myndavélarsnúrunni að tenginu.
Ýttu enda efstu myndavélarsnúrunnar að tenginu.
Þrýstu myndavélunum létt inn í hulstrið.
Myndavélarhlífin er með flipa sem passa í raufar undir brúninni hægra megin á hulstrinu. Haltu um hlífina með ESD-töng og renndu hlífarflipunum inn í raufina. Láttu síðan hlífina síga niður á myndavélarnar.
Varúð
Forðastu að snerta fjöðrina þegar þú setur myndavélarhlífina aftur upp.
Gakktu úr skugga um að skrúfugötin í myndavélarhlífinni flútti við skrúfuholurnar. Rangt staðsett myndavélarhlíf getur haft áhrif á myndgæði skjásins.
Notaðu græna átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa fjórar nýjar þríblaða skrúfur (923-05068) í myndavélarhlífina í þeirri röð sem sýnd er.
Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa eina nýja krosshausaskrúfu (923-05069) í hlíf myndavélar.
Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að þú hefur lokið öllum skrefum við að taka í sundur og setja saman aftur skaltu hefja kerfisstillingu með því að setja tækið í greiningarham. Ýttu á Start Session (hefja lotu) og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
Þú færð eina tilraun til að ljúka kerfisstillingu. Ef tilraunin er trufluð, hætt er við eða villa kemur upp mun tækið birta skilaboð þar sem þér er bent á að hafa samband við verkstæði með sjálfsafgreiðslu til að fá aðstoð.