iPhone 13 TrueDepth-myndavél
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
TrueDepth-myndavélin inniheldur einn eða fleiri geisla. Ef TrueDepth-myndavélin er tekin í sundur eða hún skemmist eða ef ekki eru notaðir ósviknir Apple-varahlutir getur það leitt af sér útsetningu fyrir hættulegum innrauðum geislum sem geta valdið skaða á augum eða húð.
Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:
Verkfæri
15 cm viðgerðarbakki
ESD-örugg flísatöng
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/iphone-13/100415-truedepth-camera/TruDepthCamera_Locator.png)
Varúð
Þessi aðferð krefst TrueDepth-myndavélarstillingar. Til að framkvæma TrueDepth-myndavélarstillingu þarftu eftirfarandi:
Mac-tölvu með nýjustu útgáfu af Apple Service Utility uppsetta. Þú þarft líka að setja upp „iPhone Repair – TrueDepth Camera Resources“ í Apple Service Utility Resources-glugganum.
Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af iOS.
Internetaðgangur
Lightning-snúra
Eftir að þú hefur lokið öllum skrefum við að taka í sundur og setja saman aftur og setja upp Apple Service Utility á Mac-tölvu skaltu læra hvernig að á hefja stillingarferli TrueDepth-myndavélar á support.apple.com/self-service-repair.
Athugaðu: Þetta ferli sýnir myndir af iPhone 13 án mmWave loftnets. Hins vegar eru viðgerðarleiðbeiningarnar eins fyrir iPhone 13 án mmWave loftnets.
Losun
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að Lightning-tengið snúi að hakinu.
Haltu TrueDepth-myndavélarsnúrunum tveimur gætilega saman og lyftu upp neðri brún myndavélarsamstæðunnar. Lyftu síðan myndavélunum frá brún hulstursins.
Samsetning
Vertu í hönskum til að forðast að óhreinka TrueDepth-myndavélarlinsurnar.
Skoðaðu TrueDepth-myndavélarsamstæðuna til að ganga úr skugga um að jarðtengifrauðið og fjaðrirnar séu í heilu lagi. Ef annaðhvort þessara vantar eða er skemmt skaltu skipta um TrueDepth-myndavélarsamsetninguna.
Hallaðu efri brún TrueDepth-myndavélarsamstæðunnar undir brún hulstursins eins og sýnt er. Láttu svo myndavélina síga niður í hulstrið. Notaðu fingur eða svarta teininn til að stilla af.
Varúð: Gakktu úr skugga um að efri brún TrueDepth-myndavélarinnar sé undir brún hólfsins.
Fylgdu skrefum samsetningar 3 til 14 í Efri hátalari eða 3 til 16 í Efri hátalari (mmWave loftnet). Haltu svo áfram að skrefi 5.
Notaðu ESD-töng til að fjarlægja hlífina af TrueDepth-myndavélinni.
Varúð: Ekki snerta framhlið TrueDepth-myndavélarsamstæðunnar eftir að hlífarnar hafa verið fjarlægðar.
Skoðaðu TrueDepth-myndavélarsamstæðuna. Gakktu úr skugga um að efri brún myndavélarsamstæðunnar sé undir brún hulstursins og fyrir miðju á milli hliða hulstursins.
Varúð: Ef TrueDepth-myndavélin er ekki á réttum stað skal nota svarta teininn til að koma henni fyrir á sínum stað.
Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að þú hefur lokið við öll skref til að taka í sundur og setja saman aftur skaltu læra hvernig á að hefja stillingarferli TrueDepth-myndarvélar á support.apple.com/self-service-repair.
Þú þarft Mac-tölvu með uppsett Apple Service Utility til að gera True Depth-myndavélarstillingu.
Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af iOS.