Mac Studio (M5 Max eða M5 Ultra) Hátalari

Áður en hafist er handa

Viðvörun

Lesið Öryggi rafbúnaðar í Mac-tölvum og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi íhluti áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • ESD-örugg töng

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Torx Plus 5IP 50 mm biti

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að fjarlægja tvær 5IP-skrúfur (923-12498) úr hátalaranum.

  2. Lyftið hátalaranum lítillega. Notið síðan slétta enda svarta teinsins til að taka endann á sveigjanlegum kapli hátalara úr sambandi við tengið á móðurborðinu.

  3. Fjarlægið hátalarann úr húsinu.

Samsetning

  1. Staðsetjið hátalarann yfir móðurborðinu.

  2. Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta endanum á sveigjanlegum kapli hátalara í tengið (1).

  3. Stillið skrúfugötin í hátalaranum af við tvö millistykki fyrir skrúfur hátalarans á móðurborðinu (2).

  4. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 18 Ncm. Notið síðan stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að skrúfa tvær 5IP-skrúfur (923-12498) aftur í hátalarann.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: