MacBook Neo – úrræðaleit vegna vandamála með hljóðnema
Athugið: Þetta verklag er eingöngu ætlað fyrir MacBook Neo.
Greining vandamála
Lesið viðeigandi hjálpargreinar ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:
Hljóðnemi virkar ekki en hljóðúttak virkar
Hljóð úr hljóðnema er óskýrt
Ekki er hægt að velja inntak innri hljóðnema
Þegar reynt er að taka upp birtist tilkynning um að hljóðinntakið sé ekki aðgengilegt
Afspilun hljóðupptöku er hljóðlaus
Viðeigandi hjálpargreinar
Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.
Prófa skjót skref fyrir úrræðaleit
Leitið eftir vökvaskemmdum í tölvunni. Snerting við vökva getur valdið skammhlaupi í innri rafrásum og valdið bilun í tölvunni.
Takið öll heyrnartól eða ytri hátalara úr sambandi.
Gangið úr skugga um að kaplar eða aðrir hlutir séu ekki settir í heyrnartólatengið, sem getur komið í veg fyrir að innri hljóðneminn sé valinn sem inntak.
Skoðið heyrnartólatengið til að athuga hvort það innihaldi óhreinindi.
Hreinsið tölvuna. Ef óhreinindi finnast í heyrnartólatenginu skal hreinsa það svæði varlega með litlum mjúkum bursta sem er ekki úr málmi. Gangið úr skugga um að burstinn sé hreinn og þurr. Burstið varlega út ló og óhreinindi. Notið rétt nógu mörg hár á burstanum til að komast inn í heyrnartólatengið. Snúið hárunum til að losa um og ná út óhreinindum. Burstið óhreinindi frá opinu til að koma í veg fyrir að þau séu burstuð í opið. Þurrkið burt óhreinindi sem hafa losnað með örtrefjaklút.
Varúð: Áður en tengi eru hreinsuð skal aftengja alla kapla og slökkva á tölvunni. Notið ekki úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu valdið skemmdum á yfirborðinu. Ekki skal nota málmhluti til að hreinsa burt óhreinindi eða hindranir þar sem þeir geta valdið skammhlaupi í tenginu og valdið skemmdum. Forðist að raki komist í op og ekki úða vökva beint á tölvuna. Ekki nota þrýstiloft í op tengis þar sem það gæti keyrt óhreinindi lengra inn í tengið.
Farið í „Kerfisstillingar > Hljóð“. Staðfestið eftirfarandi í inntaks- og úttaksflipunum:
Inntaksflipi:
Innri hljóðnemi er tiltækur og valinn fyrir hljóðinntak.
Inntakshljóðstyrksrennan er ekki stillt á núll.
Úttaksflipi:
Innri hátalarar eru tiltækir og valdir fyrir hljóðúttak.
Hvorki er slökkt á úttakshljóðstyrk né hann stilltur á núll og jöfnun er fyrir miðju.
Farið í „Kerfisstillingar > Hljóð > Inntaksflipi“ og staðfestið að inntaksvísirinn færist til þegar talað er í hljóðnemann.
Keyrið handvirk próf og greiningarpróf
Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða með því að prófa skjót skref fyrir úrræðaleit skal keyra þessi handvirku próf og greiningarpróf til að einangra orsök vandamálsins:
Opnið tölvuna og skoðið hana
Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja hjálpargreinum eða keyra greiningarpróf skal skoða viðgerðahandbók tölvunnar um hvernig á að opna og skoða tölvuna. Hluti sem hefur skemmst eða færst til gæti verið að valda einhverju vandamálanna.
Fylgið leiðbeiningum um verkferli í viðgerðahandbókinni til að fjarlægja botnhulstrið og takið rafhlöðuna úr sambandi við móðurborðið.
Skoðið innri hluti og hulstrið í leit að vísbendingum um hnjask, vökvaskemmdir, óhreinindi eða brunnin eða sviðin svæði. Skoðið alla viðeigandi sveigjanlega kapla og tengi í innra byrði tækisins með tilliti til ummerkja um skemmdir eða breytingar, svo sem filmur eða aðskotahluti sem gætu truflað virkni tengis.
Finnið tengi sveigjanlegs kapals hljóðnemans og tengi sveigjanlegs kapals hljóðspjaldsins á móðurborðinu. Takið sveigjanlega kapla og tengi úr sambandi og leitið eftir merkjum um klemmda víra eða skemmdir á tengli áður en þeim er komið aftur fyrir. Athugið hvort skemmdir eru á tengi móðurborðsins.
Athugið: Hljóðnemasamstæðan er hluti af topphulstrinu.
Komið öllum sveigjanlegum köplum aftur fyrir, tengið rafhlöðuna aftur og prófið tölvuna aftur með MRI- og hljóðgreiningu.
Ef vandamálið leysist eða skoðun greinir engin vandamál skal ljúka samsetningunni. Ef greiningarniðurstöður eða skoðun greindu gallaðan íhlut skal halda áfram í næsta hluta. Ef vandamálið er viðvarandi án þess að tiltekinn íhlutur greinist skal halda áfram í næsta hluta til að skipta um móðurborð.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um íhlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.
Skiptið um íhlutinn
Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja fyrri skrefum skal skipta um eftirfarandi íhluti fyrir hvert vandamál sem við á:
Ef vandamálið er einangrað við innri hljóðnemann skal skipta um topphulstrið, sem inniheldur hljóðnemasamstæðuna.
Athugið: Þegar skipt er um topphulstrið verður líka að skipta um lyklaborðið og grunnplötu og stilliskrúfu snertiborðsins.
Ef skemmdir finnast í heyrnartólstenginu eða ef vandamálið er aðeins tengt heyrnartólstenginu skal skipta um hljóðspjald.
Ef enginn tiltekinn bilaður íhlutur greindist hér fyrir ofan skal skipta um móðurborðið.
Viðgerð lokið
Viðgerðaraðstoð kann að vera í boði í tækinu til að ljúka viðgerðinni, allt eftir því hvaða íhlut er skipt út. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.
Staðfesting eftir viðgerð
Keyrið eftirfarandi greiningarpakka eftir viðgerðina:
Skoðunarbúnaður fyrir Mac-tölvu (MRI) (til að prófa heildarvirkni)
Hljóð (til að prófa hátalara og hljóðnema)
Þegar viðgerð er lokið skal kveikja á tölvunni og ganga úr skugga um að innri hljóðnemi sé tiltækur, valinn og virkur og að vísirinn fyrir inntaksstyrk hreyfist þegar talað er í hljóðnemann. Takið því næst upp prufuhljóðskrá og spilið hana til að ganga úr skugga um að hún sé ekki bjöguð.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um íhlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.