MacBook Pro (14-tommu, M5 Pro eða M5 Max) rafhlaða
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Afhlaða þarf rafhlöðuna niður í 30 prósent með verkfærinu fyrir afhleðslu rafhlöðu áður en þetta ferli er hafið. Sjá verkferli fyrir afhleðslu MacBook Pro rafhlöðu.
Ekki tengja tölvuna við ytri aflgjafa meðan á viðgerð stendur.
Aðeins tæknimenn með þekkingu og reynslu til að gera við rafeindatæki ættu að skipta um rafhlöðu. Ef ekki er skipt um rafhlöðu á réttan hátt, ekki er farið rétt með varahluti eða ef ekki er farið eftir uppgefnum leiðbeiningum getur það valdið eldsvoða, meiðslum, gagnatapi eða skemmdum á tækinu, hlutum eða öðrum eignum.
Ef rafhlaðan er dælduð, útþanin, sprungin eða skemmd á annan hátt skal hætta viðgerðinni. Fjarlægið ekki rafhlöðuna úr tækinu. Skiptið um topphulstrið með nýju topphulstri með rafhlöðu og lyklaborði.
Ekki skal endurnota eða setja upp aftur lausa rafhlöðu eða rafhlöðu sem er búið að fjarlægja. Setjið nýja rafhlöðu í.
Fjarlægið hulstrið af tölvunni.
Þegar slitnir rafhlöðuborðar eru fjarlægðir skal aðeins setja svarta teininn á staðina sem sýndir eru (1-8). Ekki stinga svarta teininum eða öðrum verkfærum inn í svæðin sem merkt eru með rauðu til að forðast að gera gat á mjúka enda rafhlöðunnar og koma í veg fyrir skemmdir á öðrum íhlutum.
Varúð
Rafhlaðan inniheldur sex stakar rafhlöðueiningar (cells) sem tengdar eru með málmumgjörð. Ekki beygja eða sveigja málmumgjörðina.
Þegar límborðar rafhlöðunnar eru fjarlægðir má ekki nýta íhluti í topphulstrinu sem stuðning. Aðeins má styðja sig við álumgjörðina ef þörf er á þegar límborðarnir eru fjarlægðir.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Límvirkjunarrúlla
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Staðsetningarpinnar rafhlöðu
Rafhlöðupressuplata
ESD-örugg töng (með ávölum enda)
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Torx Plus 5IP 50 mm biti
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Athugið: Nýrri rafhlöðu fylgir rafhlöðulím. Rafhlöðulím er ekki aðskilinn íhlutur sem hægt er að panta sérstaklega.
Losun
Athugið: Ef hluturinn hefur þegar verið fjarlægður skal fara beint í samsetningu.
Mikilvægt
Fjarlægið límborðana einn í einu af rafhlöðueiningum 1, 2, 3 og 4. Fjarlægið síðan límborðana af rafhlöðueiningum 5 og 6. Hafið þessa mynd til hliðsjónar meðan rafhlaðan er fjarlægð.
Viðvörun
Ef límflipi eða -borði rafhlöðu slitnar í þessu verkferli skal fylgja leiðbeiningunum í Slitið rafhlöðulím fjarlægt úr MacBook Pro.
Leggið tölvuna niður með rafhlöðuna næst ykkur.

Notið 10–34 Ncm-stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að fjarlægja 5IP-skrúfuna (923-13420) úr rafhlöðusamstæðunni.

Fjarlægið lokið af rafhlöðunni. Leggið síðan tölvuna niður þannig að rafhlöðueiningar 1 og 2 séu næstar ykkur og rafhlöðulímfliparnir snúi að ykkur.
Notið ESD-örugga töng til að grípa um miðjan rafhlöðulímflipann sem festur er við hlið rafhlöðueiningar 1. Ekki toga strax í límflipann sem festur er við einingu 2.
Viðvörun: Ekki snerta hlið rafhlöðueiningarinnar með tönginni.

Notið ESD-örugga töng til að draga límflipann varlega frá hlið rafhlöðueiningarinnar. Togið í flipann þar til límflipinn er alveg skilinn frá hlið rafhlöðueiningarinnar.

Mikilvægt: Ekkert lím er á miðju límflipans. Lím er á endum flipans sem festir hann við hlið rafhlöðueiningarinnar.
Notið ESD-örugga töng til að grípa um allan rafhlöðulímflipann í rásinni við hliðina á rafhlöðueiningunni.
Varúð: Sé aðeins gripið um hluta flipans getur hann slitnað.
Haldið ESD-öruggu tönginni í rásinni við hliðina á rafhlöðueiningunni. Vefjið svo rafhlöðulímflipanum varlega utan um endann á tönginni þar til hvíta límið sést á tönginni.
Varúð: Snúið tönginni þannig að efsti hluti hennar snúist í átt að rafhlöðunni.

Togið rafhlöðulímborðann varlega skáhalt frá rafhlöðueiningunni, í átt að hlið tölvunnar. Togið límborðann upp um 2 tommur í einu. Haldið ESD-öruggu tönginni samsíða tölvunni og vefjið borðanum upp á enda tangarinnar þannig að límið liggi flatt, eins og sýnt er.
Varúð
Ekki nudda borðunum utan í umgjörð topphulstursins. Ekki snerta móðurborðið með tönginni. Ekki ýta á rafhlöðuna eða aðra íhluti.
Ekki nudda borðanum á rafhlöðueiningum 2 og 4 utan í svampinn á hátalaranum. Ef límið skemmir svampinn skal skipta um báða hátalarana.
Mikilvægt: Hugsanlega þarf að styðja sig við álumgjörðina þegar togað er í límborðann.

Endurtakið tog- og vafningsferlið varlega þar til límborðinn hefur verið fjarlægður undan rafhlöðueiningunni.
Viðvörun: Ef límflipi eða -borði slitnar skal fylgja leiðbeiningunum í Slitið rafhlöðulím fjarlægt úr MacBook Pro.
Endurtakið skref 4 til 9 á seinni rafhlöðuflipanum á einingu 1. Haldið svo áfram í skref 11.
Endurtakið skref 4 til 9 til að fjarlægja rafhlöðulímborðana af rafhlöðueiningum 2, 3 og 4. Haldið svo áfram í skref 12.
Mikilvægt: Snúið tölvunni þannig að rafhlöður 3 og 4 séu næstar ykkur þegar rafhlöðulímborðar þessara tveggja eininga eru fjarlægðir.

Endurtakið skref 4 til 9 til að fjarlægja rafhlöðulímborðana af rafhlöðueiningum 5 og 6. Haldið svo áfram í skref 13.
Mikilvægt: Snúið tölvunni þannig að skjálamirnar séu næstar ykkur þegar límborðarnir eru fjarlægðir af einingum 5 og 6.

Varúð: Setjið aldrei nein verkfæri undir rafhlöðueiningar 5 og 6 við staðina sem merktir eru með rauðu hér fyrir neðan. Þetta kemur í veg fyrir skemmdir á rafbúnaði sem styður snertiborðið.

Eftir að allir rafhlöðulímborðar hafa verið fjarlægðir skal leggja tölvuna niður með rafhlöðusamstæðuna næsta ykkur. Hallið upp enda samstæðunnar þar til hægt er að komast undir hana. Rennið síðan samstæðunni út undan málmflipanum fyrir stjórneiningu rafhlöðunnar (BMU) (1) og fjarlægið hana úr topphulstrinu.
Varúð
Styðjið við rafhlöðusamstæðuna þegar hún er fjarlægð til að forðast að beygla umgjörðina.
Gætið þess að rafhlöðusamstæðan festist ekki í málmflipanum fyrir stjórneiningu rafhlöðunnar (1). Ekki halla rafhlöðunni of mikið frá topphulstrinu þegar henni er rennt út.

Ljúkið við sundurhlutunarskrefin í Sveigjanlegur kapall stjórneiningar rafhlöðunnar. Leggið sveigjanlega kapalinn til hliðar. Hann verður settur aftur á nýju rafhlöðuna meðan á samsetningu stendur. Haldið svo áfram í skref 15.
Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar af topphulstrinu.
Varúð: Ekki snerta rafbúnaðinn með etanól- eða IPA-þurrkunni. Ekki snerta hátalarasvampinn með etanól- eða IPA-þurrkunni til að koma í veg fyrir að svampurinn skemmist.

Samsetning
Leggið tölvuna niður með sveigjanlega kapal snertiborðsins næstan ykkur. Stingið staðsetningarpinnum rafhlöðunnar í fremra vinstra og hægra hornið á topphulstrinu. Herðið staðsetningarpinnana með handafli.

Gætið þess að sveigjanlegi kapall snertiborðsins sé ekki fyrir.

Opnið kassann sem nýja rafhlaðan er afhent í og fjarlægið pappaspjaldið. Fjarlægið síðan plasthulstrið.
Mikilvægt: Gætið þess að plasthulstrið snúi áfram eins og það snýr í kassanum.
Snúið rafhlöðunni við svo bláa og bleika límfilman snúi upp og götin fyrir staðsetningarpinna rafhlöðunnar séu staðsett nálægt tölvunni. Leggið síðan hulstrið og rafhlöðuna á borðið á milli ykkar og tölvunnar.

Grípið um tvö horn hulstursins eins og sýnt er. Togið þau varlega í sundur til að opna bakkann.
Varúð: Togið bakkann varlega í sundur til að forðast að skemma rafhlöðuna.


Flettið bláu og bleiku límfilmunni af rafhlöðunni.

Lyftið rafhlöðunni úr plastbakkanum með því að halda í gegnsæju filmurnar á hvorri hlið eins og sýnt er. Snúið síðan rafhlöðunni við þannig að filman snúi upp og götin fyrir staðsetningarpinna rafhlöðunnar séu næst ykkur.
Varúð
Á meðan rafhlöðunni er lyft skal toga hvora hlið filmunnar varlega út til að koma í veg fyrir að rafhlaðan sígi eða beygist, til að vernda tengingarnar milli rafhlöðueininga og forðast skemmdir á rafhlöðunni.
Ekki láta rafhlöðulímið snerta ESD-vörðu mottuna, tölvuíhluti eða verkfæri áður en rafhlaðan er sett í.

Hallið niður brún rafhlöðunnar sem snýr frá ykkur og rennið henni undir flipa stjórneiningar rafhlöðunnar. Staðsetjið staðsetingargötin á gegnsæju filmunni yfir staðsetningarpinnum rafhlöðunnar á tölvunni. Leggið síðan gegnsæju filmuna á staðsetningarpinnana og rafhlöðuna í topphulstrið.


Ýtið létt á svampinn fyrir ofan hverja rafhlöðueiningu til að byrja að líma rafhlöðulímið við topphulstrið.
Varúð: Ekki ýta á brúnir rafhlöðueininganna.

Opnið skjáinn alveg, leggið tölvuna á hvolf á hreinan flöt og látið skjáinn hanga niður af borðbrúninni.

Byrjið á vinstri enda gegnsæju filmunnar og flettið henni varlega af rafhlöðunni.
Varúð: Það gæti þurft að halda rafhlöðunni niðri þegar filmunni er flett af.
Mikilvægt: Ekki taka bláu filmurnar af rafhlöðunni.

Stillið rafhlöðupressuplötuna af yfir staðsetningarpinnum rafhlöðunnar, eins og sýnt er. Lækkið síðan pressuplötuna á rafhlöðuna.

Haldið á límvirkjunarrúllunni með báðum höndum og komið henni fyrir yfir rafhlöðueiningu 1. Stillið síðan rúlluna af við neðri brún einingarinnar eins og sýnt er.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar, eins og sýnt er.
Mikilvægt: Þegar límvirkjunarrúllan er notuð þarf appelsínugula röndin að flútta við hvítu ræmuna.

Byrjið á vinstri brún rafhlöðueiningarinnar eins og sýnt er og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að hægri brún hennar. Rúllið síðan til baka að vinstri brún einingarinnar. Þetta er einn hringur. Ljúkið 5 hringjum, samtals 10 yfirferðir.

Endurtakið skref 13 til 15 fyrir rafhlöðueiningar 2, 3 og 4. Haldið svo áfram í skref 17.
Haldið á límvirkjunarrúllunni með báðum höndum og komið henni fyrir yfir rafhlöðueiningu 5. Stillið síðan rúlluna af við vinstri brún einingar 5, eins og sýnt er.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar.
Byrjið á efri brún rafhlöðueiningarinnar og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að neðri brún hennar. Rúllið síðan til baka að efri brún einingarinnar. Þetta er einn hringur. Ljúkið 5 hringjum, samtals 10 yfirferðir.

Látið límvirkjunarrúlluna flútta við hægri brún rafhlöðueiningar 5 eins og sýnt er.

Þrýstið á límvirkjunarrúlluna svo appelsínugula röndin á rúllukeflinu flútti við miðju hvítu ræmunnar.
Byrjið á efri brún rafhlöðueiningarinnar og rúllið límvirkjunarrúllunni yfir að neðri brún hennar. Rúllið síðan til baka að efri brún einingarinnar. Þetta er einn hringur. Ljúkið 5 hringjum, samtals 10 yfirferðir.

Endurtakið skref 17 til 22 fyrir rafhlöðueiningu 6. Haldið svo áfram í skref 24.
Lyftið rafhlöðupressuplötunni af rafhlöðunni og leggið hana til hliðar.
Takið tölvuna upp og lokið skjánum. Setjið tölvuna niður á borðið þannig að lamirnar snúi frá ykkur.

Flettið bláu filmunum sex af rafhlöðueiningunum.

Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna.

Ljúkið samsetningarskrefunum í Sveigjanlegur kapall stjórneiningar rafhlöðunnar til að setja sveigjanlega kapalinn aftur í nýju rafhlöðuna. Haldið svo áfram í skref 29.
Losið staðsetningarpinna rafhlöðunnar og fjarlægið þá úr topphulstrinu. Hægt er að endurnýta staðsetningarpinnana.
Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 16 Ncm.
Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP-bita til að skrúfa 5IP-skrúfuna (923-13420) aftur í rafhlöðusamstæðuna.


Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: