Myndavél fyrir iPhone 17
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi með rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
44 mm hálfmánabiti með krosshaus
50 mm krosshausabiti
ESD-örugg töng
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nælonnemi (svartur teinn)
Átaksmælir (grár, 0,55 kgf. cm)
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm)
44 mm trilobe-hálfmánabiti
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Varúð
Forðist að snerta myndavélarlinsurnar, fjaðrir fremri myndavélarinnar eða nálæga íhluti.
Mikilvægt
Ef skipt er um þennan hlut er ráðlagt að keyra viðgerðaraðstoð til að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Sundurhlutun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Mikilvægt
Ráðlagt er að nota hanska og hylja myndavélarlinsurnar til að forðast að óhreinka linsurnar.
Ljúkið sundurhlutunarskrefum 1 til og með 4 fyrir glerbakstykki. Haldið síðan áfram í skref 1.
Notið átaksmæli og trilobe-bitann til að fjarlægja þrjár trilobe-skrúfur. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er í næsta skref.
Fjarlægið neðri tengihlíf móðurborðsins og geymið hana fyrir samsetningu.
Lyftið endum sveigjanlega rafhlöðukapalsins (1) og sveigjanlega kapalsins fyrir glerbakstykkið (2) af tengjunum.
Varúð: Aftengja verður sveigjanlega rafhlöðukapalinn fyrst til að tryggja að slökkt sé á iPhone-símanum.
Haldið um brúnir glerbakstykkisins. Togið í flipana á sogskálunum til að losa þær af glerbakstykkinu. Leggið síðan glerbakstykkið á hvolf á hreint, flatt yfirborð.
Notið átaksmæli og krosshausabita til að fjarlægja krosshausaskrúfurnar. Ljúkið síðan öllu skrefinu áður en haldið er í næsta skref.
Fjarlægið þrjár krosshausaskrúfur úr efri tengihlíf móðurborðsins og tvær krosshausaskrúfur úr myndavélinni.
Fjarlægið efri tengihlíf móðurborðsins og geymið hana fyrir samsetningu.
Fjarlægið eina krosshausaskrúfu úr myndavélinni.
Lyftið endanum á sveigjanlega kaplinum fyrir hnappinn af tenginu.
Varúð: Sveigjanlegi kapallinn fyrir hnappinn er viðkvæmur. Gætið þess því vel að hvorki brjóta hann né slíta.
Lyftið endunum á sveigjanlegu köplum myndavélarinnar af tengjunum.
Fjarlægið myndavélina.
Samsetning
Skýringarmynd fyrir skrúfur

Athugið: Sumar skrúfur kunna að koma í poka sem er merktur með 452 hlutarnúmeri. Þær fylgja með skrúfusettunum en einnig er hægt að panta þær sér með því að nota jafngilt 923 hlutarnúmer.
452-13290 = 923-13876
452-11850 = 923-13864
452-12603 = 923-13872
452-11882 = 923-13867
452-12363 = 923-13855
452-11831 = 923-13862
Mikilvægt
Hlíf fylgir með nýrri myndavél. Látið hlífina vera áfram á meðan nýja myndavélin er sett upp.
Klæðist hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Áður en myndavélin er sett saman aftur skal skoða fjaðrirnar til að kanna hvort þær séu skemmdar. Gangið úr skugga um að jarðtengifjaðrirnar séu hvorki bognar né brotnar.
Mikilvægt: Ef fjaðrirnar eru beygðar eða brotnar gæti þurft að skipta um myndavélina.
Komið myndavélinni fyrir inni í hulstrinu.
Ýtið endunum á tveimur sveigjanlegum köplum myndavélarinnar í tengin.
Ýtið enda sveigjanlegs kapals hnappsins í tengið.
Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 19 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og krosshausabita til að skrúfa eftirfarandi þrjár nýjar krosshausaskrúfur í myndavélina:
Ein skrúfa (923-13864) (1)
Ein skrúfa (923-13867) (2)
Ein skrúfa (923-13876) (3)
Setjið efri tengihlíf móðurborðsins aftur í. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 10 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og krosshausabita til að skrúfa eina nýja krosshausaskrúfu (923-13872) í efri tengihlíf móðurborðsins.
Notið gráa átaksmælinn og krosshausabita til að skrúfa tvær nýjar krosshausaskrúfur (923-13855) í efri tengihlíf móðurborðsins.
Notið græna átaksmælinn og trilobe-bita til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu (923-13862) í efri tengihlíf móðurborðsins.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Mikilvægt
Fjarlægið hlífina af nýju myndavélinni áður en glerbakstykkið er sett aftur upp.
Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið og mælt er með að keyra hana til að ljúka viðgerðinni. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.