iPad mini (A17 Pro) USB-C-tengi
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlaðna áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
8,3 tommu viðgerðarbakki
JCIS-skrúfbiti fyrir krosshausaskrúfur
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm)
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann til að fjarlægja tvær krosshausaskrúfur úr USB-C-tenginu. Setjið skrúfurnar til hliðar.
Takið endann á sveigjanlegum kapli USB-C-tengisins af tenginu.
Flettið sveigjanlega kapli USB-C-tengisins af hulstrinu.
Takið USB-C tengið úr hólfinu.
Samsetning
Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar úr hólfinu.
Fjarlægið filmur límbands af nýja USB-C-tenginu og sveigjanlega kapli USB-C-tengis.
Þrýstið á USB-C-tengið til að líma það við hulstrið.
Þrýstið enda sveigjanlegs kapals USB-C-tengisins í tengið.
Notið græna átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að skrúfa tvær nýjar krosshausaskrúfur (452-06436) í USB-C-tengið.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: