iPhone 16e, aðalhljóðnemi
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi íhluti áður en hafist er handa:
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
ESD-örugg töng
Micro stix-biti
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Super screw-biti fyrir stillanlegan átaksmæli
Super screw-biti fyrir fastan átaksmæli
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm)
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun
Lyftið skrúfuflipanum til að komast að superscrew-skrúfunni. Notið átaksmæli og super screw-bita með föstum átaksmæli til að fjarlægja super-skrúfurnar tvær úr aðalhljóðnemanum. Setjið skrúfurnar til hliðar.
Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna. Setjið skrúfuna til hliðar.
Takið endann á sveigjanlegum kapli aðalhljóðnemans úr sambandi við tengið. Fjarlægið svo aðalhljóðnemann úr hulstrinu.
Mikilvægt: Aðalhljóðnemanum er haldið á sínum stað með sterku lími. Togið aðalhljóðnemann í átt að efri hluta hulstursins þangað til hljóðneminn losnar frá líminu.
Samsetning
Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja allt lím úr hulstrinu. Notið etanólþurrku eða IPA-þurrku til að strjúka af hulstrinu.
Notið ESD-örugga töng til að fletta varnarfilmunni ofan af líminu á aðalhljóðnemanum. Komið því næst aðalhljóðnemanum fyrir í hulstrinu með því að stilla skrúfugötin af. Haldið efri hluta aðalhljóðnemans inni í 15 sekúndur til að festa hann við hulstrið.
Þrýstið enda sveigjanlegs kapals aðalhljóðnemans að tenginu.
Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksskrúfjárnsins á 10 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og stillanlega super screw-bitann fyrir átaksmælinn til að skrúfa tvær nýjar super-skrúfur alveg í aðalhljóðnemann:
Ein super screw-skrúfa (923-12369) (1)
Ein super screw-skrúfa (923-12370) (2)
Notið græna átaksmælinn og Micro stix-bitann til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu (923-08382) í.
Setjið svarta skrúfuflipann aftur á sinn stað.
Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu: