iPhone 16 Pro aðalhljóðnemi

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi íhluti áður en hafist er handa:

Verkfæri

  1. Átaksmælir (appelsínugulur, 0,85 kgf cm)

  2. Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm)

  3. Micro stix-biti

  4. Super-skrúfubiti

  5. ESD-örugg töng

  6. Nemi úr næloni (svartur teinn)

  7. Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið átaksmæli og super-skrúfubitann til að fjarlægja tvær super-skrúfur úr aðalhljóðnemanum. Geymið skrúfurnar.

  2. Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja eina trilobe-skrúfu. Setjið skrúfuna til hliðar.

  3. Takið aðalhljóðnemann úr hulstrinu.

    Mikilvægt: Aðalhljóðnemanum er haldið á sínum stað með sterku lími. Togið aðalhljóðnemann í átt að efri hluta hulstursins þangað til hljóðneminn losnar frá líminu.

Samsetning

  1. Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja allt lím úr hulstrinu. Hreinsið svæðið með etanólþurrku eða IPA-þurrku.

  2. Notið ESD-örugga töng til að fletta hlífðarfilmunni af líminu á aðalhljóðnemanum.

  3. Komið aðalhljóðnemanum fyrir í hulstrinu.

  4. Ýtið ofan á aðalhljóðnemann og haldið í 15 sekúndur til að tryggja að hann festist við hulstrið.

  5. Notið appelsínugula átaksmælinn og super-skrúfubitann til að skrúfa tvær nýjar super-skrúfur í aðalhljóðnemann.

    • Ein super-skrúfa (923-11138) (1)

    • Ein super-skrúfa (923-11139) (2)

  6. Notið græna átaksmælinn og Micro stix-bitaann til að setja eina nýja trilobe-skrúfu (923-09819) (3) í.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: