iPhone 16, neðri hátalari
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Átaksmælir (grænblár, 0,75 kgf cm)
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm)
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Micro stix-biti
JCIS-skrúfbiti fyrir stillanlegan átaksmæli
JCIS-skrúfbiti fyrir fastan átaksmæli
ESD-örugg töng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Varúð
Forðist að snerta fjaðrirnar á eða nálægt neðri hátalaranum.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Notið átaksmæli og JCIS-bitann til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar úr neðri hátalaranum (1). Geymið skrúfurnar.

Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna úr neðri hátalaranum (2). Geymið skrúfuna.

Fjarlægið neðri hátalarann úr hulstrinu.
Varúð: Ekki skemma fjöðrina á neðri hátalaranum.
Samsetning
Gangið úr skugga um að gúmmíþéttingunni sé komið fyrir eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki í réttri stöðu skal nota ESD-örugga töng til að koma henni aftur fyrir.

Komið neðri hátalaranum fyrir í hulstrinu. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 10 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og JCIS-skrúfbita fyrir stillanlegan átaksmæli til að setja eina nýja stjörnuskrúfu (923-11718) (1) í neðri hátalarann.

Notið græna átaksmælinn og JCIS-bitann til að skrúfa þrjár nýjar stjörnuskrúfur í neðri hátalarann:
Tvær stjörnuskrúfur (923-11196) (2)
Ein stjörnuskrúfa (923-11197) (3)

Notið græna átaksmælinn og Micro stix-bitann til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu (923-11712) í neðri hátalarann.
Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: