iPhone 16 efri hátalari
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi íhluti áður en hafist er handa:
iPhone-sími með mmWave

iPhone-sími án mmWave

Verkfæri
Átaksmælir (appelsínugulur, 0,85 kgf cm)
Átaksmælir (grár, 0,55 kgf cm)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf cm)
JCIS-skrúfbiti fyrir fastan átaksmæli
ESD-örugg töng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Athugið: Loftnet á glerbakstykki 1 (fyrir gerðir með mmWave) eða þynnu (fyrir gerðir án mmWave) þarf að færa yfir á nýja efri hátalarann.
Lyftið endunum á sveigjanlegum kapli fyrir loftnet á glerbakstykki 1 og sveigjanlegum kapli efri hátalarans af tengjunum.
Athugið: Ef iPhone-síminn er ekki með mmWave-loftnet skal lyfta endunum á sveigjanlegum kapli myndavélarinnar af tenginu.


Notið ESD-örugga töng til að grípa um límflipann á loftnetinu á neðri hægri brún loftnetsins á glerbakstykki 1 (fyrir gerðir með mmWave-loftneti) eða þynnunni (fyrir gerðir án mmWave-loftnets) og byrjið að draga hann varlega út. Færið töngina fram og til baka, vindið límið utan um hana og haldið áfram að toga og snúa þar til loftnetið (eða þynnan) losnar. Setjið loftnetið eða þynnuna til hliðar fyrir samsetninguna.

Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbita til að fjarlægja sex stjörnuskrúfur úr efri hátalaranum. Geymið skrúfurnar.

Fjarlægið efri hátalarann úr hulstrinu.
Samsetning
Notið ESD-örugga töng til að hreinsa límið af loftnetinu eða þynnunni á glerbakstykki 1.
Varúð: Ef loftnet á glerbakstykki 1 er skemmt skal hætta viðgerðinni og skipta iPhone-símanum út fyrir nýjan.

Setjið nýja efri hátalarann í hulstrið og látið pakkninguna flútta við dældina.

Ýtið enda sveigjanlegs kapals efri hátalarans í tengið.

Flettið filmunni af líminu á efri hátalaranum.

Notið gráa átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að skrúfa þrjár nýjar stjörnuskrúfur (923-11182) í efri hátalarann.

Notið bláa átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-11201) í efri hátalarann.

Notið appelsínugula átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann til að skrúfa tvær nýjar stjörnuskrúfur (923-11948) í efri hátalarann.

Staðsetjið loftnetið eða þynnuna á glerbakstykki 1 með því að skáhalla henni til vinstri eins og sýnt er hér fyrir neðan.

Fyrir gerðir með mmWave-loftneti skal ýta enda sveigjanlegs kapals loftnetsins á glerbakstykki 1 í tengið.
Loks skal ýta loftnetinu eða þynnunni á glerbakstykki 1 upp að efri hátalaranum og halda í 15 sekúndur.
Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu: