iPhone 16-myndavél
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Átaksmælir (grár, 0,55 kgf. cm)
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf cm)
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Micro stix-biti
JCIS-skrúfbiti fyrir fastan átaksmæli
ESD-örugg töng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Skoðið ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Varúð
Forðist að snerta myndavélarlinsurnar, fjaðrir TrueDepth-myndavélarinnar eða nálæga hluta.
Mikilvægt
Ef skipt er um þennan hlut er ráðlagt að keyra viðgerðaraðstoð fyrir hugbúnað til að ljúka viðgerðinni. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Mikilvægt
Ráðlagt er að nota hanska og hylja myndavélarlinsurnar til að forðast að óhreinka linsurnar.
Notið átaksmæli og JCIS-skrúfbitann fyrir fastan átaksmæli til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar þrjár (2) úr hlíf TrueDepth-myndavélarinnar. Geymið skrúfurnar.

Notið átaksmæli og Micro stix-bitann til að fjarlægja trilobe-skrúfuna (1) úr hlíf TrueDepth-myndavélarinnar. Geymið skrúfuna. Fjarlægið hlífina og geymið hana til síðari nota.

Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og JCIS-skrúfbita fyrir stillanlega átaksmælinn til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar þrjár úr myndavélinni. Geymið skrúfurnar.
Varúð: Forðist að snerta linsurnar á myndavélinni.

Lyftið endunum á sveigjanlegu köplunum þremur upp af tengjunum og byrjið á kaplinum fyrir hnappinn, sem er efstur. Ekki má nota sveigjanlegu kaplana til að lyfta myndavélinni. Nú hefur myndavélin verið fjarlægð.
Varúð: Sveigjanlegi kapallinn fyrir hnappinn er viðkvæmur. Gætið þess því vel að hvorki brjóta hann né slíta.


Samsetning
Mikilvægt
Hlíf fylgir með nýrri myndavél. Látið hlífina vera áfram á meðan nýja myndavélin er sett upp.
Klæðist hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Áður en myndavélin er sett saman aftur skal skoða fjaðrirnar til að kanna hvort þær séu skemmdar. Gangið úr skugga um að jarðtengifjaðrirnar séu hvorki bognar né brotnar.
Mikilvægt: Ef fjaðrirnar eru beygðar eða brotnar gæti þurft að skipta um myndavélina.
Komið myndavélinni fyrir inni í hulstrinu.
Ýtið endunum á tveimur sveigjanlegum köplum myndavélarinnar í tengin.

Ýtið enda sveigjanlegs kapals hnappsins í tengið.

Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 16 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann fyrir stillanlega átaksmælinn til að setja eftirfarandi þrjár nýjar stjörnuskrúfur í myndavélina.
923-11180 (1)
923-11177 (2)
923-11200 (3)

Setjið hlíf TrueDepth-myndavélarinnar aftur á. Notið gráa átaksmælinn og JCIS-skrúfbitann fyrir fasta átaksmælinn til að setja eftirfarandi þrjár nýjar stjörnuskrúfur í hlíf TrueDepth-myndavélarinnar:
Tvær stjörnuskrúfur (923-11198) (1)
Ein stjörnuskrúfa (923-11181) (2)

Notið græna átaksmælinn og Micro stix-bitann til að skrúfa eina nýja trilobe-skrúfu (923-11192) (3) í hlífina.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Mikilvægt
Fjarlægið hlífina af nýju myndavélinni áður en glerbakstykkið er sett aftur upp.
Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið og mælt er með að keyra hana til að ljúka viðgerðinni. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.