MacBook Air (15 tommu, M3, 2024) Vinstri hátalari

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti

  • Torx Plus 4IP-biti, 25 mm

  • Torx T6-öryggisbiti

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

 Varúð

Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.

Mikilvægt

Ef skipt er um vinstri hátalarann þarf einnig að skipta um þann hægri.

Losun

  1. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja tvær 3IP skrúfur (923-08925) úr tengihlíf vinstri hátalarans. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

  2. Notið svarta teininn til að taka endann á sveigjanlegum kapli vinstri hátalara úr sambandi við tengið.

  3. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 4IP bita til að fjarlægja tvær 4IP skrúfur úr vinstri hátalaranum.

    • Mikilvægt: Skrúfurnar tvær eru ólíkar. Hafið staðsetningu þeirra í huga fyrir samsetningu.

    • 923-10463 (1)

    • 923-09234 (2)

  4. Notið stillanlega átaksmælinn og T6 öryggisbita til að fjarlægja eina T6 skrúfu (923-09232) úr vinstri hátalaranum.

  5. Notið slétta enda svarta teinsins til að lyfta upp horni vinstri hátalarans (1).

    •  Varúð: Gangið úr skugga um að sveigjanlegur kapall vinstri hátalarans sé aftengdur (2).

  6. Notið svarta teininn til að leiða sveigjanlega kapal vinstri hátalarans (1) undan loftnetinu þegar vinstri hátalaranum er rennt til hægri (2). Fjarlægið vinstri hátalarann úr topphulstrinu.

    •  Varúð: Gætið þess að endi sveigjanlega kapals vinstri hátalarans (1) festist ekki í móðurborðinu þegar hátalarinn er fjarlægður.

Samsetning

  1. Notið svarta teininn til að leiða sveigjanlega kapal vinstri hátalarans (1) undir loftnetið eins og sýnt er. Leggið síðan vinstri hátalarann í topphulstrið (2).

  2. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 16 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og T6 öryggisbita til að skrúfa T6 skrúfuna (923-09232) aftur í vinstri hátalarann.

  3. Stillið herslugildi stillanlega átaksmælisins á 19 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og 4IP bita til að skrúfa eina 4IP skrúfu (923-10463) í vinstri hátalarann.

  4. Stillið herslugildi stillanlega átaksmælisins á 11,5 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og 4IP bita til að skrúfa eina 4IP skrúfu (923-09234) í vinstri hátalarann.

  5. Stingið enda sveigjanlega kapals vinstri hátalarans í tengið.

  6. Setjið tengihlíf vinstri hátalarans yfir endann á sveigjanlega kaplinum. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-08925) aftur í tengihlíf vinstri hátalarans.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

 Varúð

Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.

Birt: