MacBook Air (15 tommu, M3, 2024) Botnhulstur

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Verkfæri

  • Hlíf fyrir rafhlöðu

  • Jöfnunarverkfæri fyrir sveigjanlegan rafhlöðukapal

  • Skurðarþolnir hanskar

  • ESD-örugg flísatöng

  • Fínn og varanlegur merkipenni

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Pentalobe-skrúfjárn

  • Sogskál

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

  1. Leggið tölvuna á hreint, slétt yfirborð og látið bakhliðina snúa upp.

  2. Notið pentalobe skrúfjárnið til að fjarlægja fjórar pentalobe skrúfur úr botnhulstrinu.

    • Athugið: Liturinn á skrúfunum segir til um gerðina.

      • Silfur- og drapplitað (923-08974)

      • Geimgrátt (923-09193)

      • Svarblátt (923-09237)

  3. Athugið staðsetningu sex innri klemma sem festa botnhulstrið við topphulstrið.

  4. Stillið hægri brún sogskálarinnar við vinstri brún gróparinnar í topphulstrinu eins og sýnt er. Þrýstið á sogskálina til að festa hana nálægt fremri brún botnhulstursins.

  5. Togið í handfang sogskálarinnar þar til innri klemmurnar tvær við fremri brúnina losna.

  6. Kreistið hliðar sogskálarinnar til að losa hana.

  7. Stillið hægri brún sogskálarinnar við vinstri brún gróparinnar í topphulstrinu eins og sýnt er. Þrýstið á sogskálina til að festa hana nálægt fremri brún botnhulstursins.

  8. Togið í handfang sogskálarinnar þar til innri klemmurnar tvær við fremri brúnina losna.

  9. Kreistið hliðar sogskálarinnar til að losa hana.

  10. Þrýstið á sogskálina til að festa hana við vinstri hlið botnhulstursins.

  11. Togið handfang sogskálarinnar upp þar til innri klemman vinstra megin losnar. Kreistið svo hliðar sogskálarinnar til að losa hana.

  12. Þrýstið á sogskálina til að festa hana við hægri hlið botnhulstursins.

  13. Togið handfang sogskálarinnar upp þar til innri klemman vinstra megin losnar. Kreistið svo hliðar sogskálarinnar til að losa hana.

  14. Klæðist skurðarþolnu hönskunum.

  15. Lyftið botnhulstrinu um u.þ.b. 10 mm til að mynda þröngt bil á milli botnhulstursins og topphulstursins við fremri brúnina. Togið síðan í báðar hliðar botnhulstursins til að fjarlægja það frá topphulstrinu.

    •  Varúð: Ekki lyfta botnhulstrinu meira en 15 mm.

    • Athugið: Ef botnhulstrið losnar ekki frá topphulstrinu skal endurtaka skref 3 til 9 til að tryggja að allar innri klemmur hafi verið losaðar. Haldið svo áfram að skrefi 16.

  16. Leggið botnhulstrið á hreinan, sléttan flöt og látið það snúa upp.

    • Mikilvægt: Ef verið er að skipta um botnhulstur:

      • Geymið eldra botnhulstrið þar til viðgerð er lokið.

      • Notið fínan og varanlegan merkipenna til að skrifa raðnúmer tölvunnar innan á botnhulstrið.

      • Ef eingöngu er skipt um botnhulstrið og ekki um aðra hluta skal fara í samsetningarskref 14.

  17. Setjið rafhlöðuhlífina á rafhlöðuna. Þrýstið síðan svörtu flipunum inn í klemmurnar á topphulstrinu þar til smellur finnst.

  18. Notið ESD-örugga töng til að fletta pólýesterfilmunni af báðum endum tengihlífar rafhlöðunnar til að komast að 3IP skrúfunum tveimur.

    • Mikilvægt: Fjarlægið ekki pólýesterfilmuna af hlífinni.

  19. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja tvær 3IP skrúfur (923-08925) úr tengihlíf rafhlöðunnar.

  20. Fjarlægið hlíf rafhlöðutengisins og geymið hana fyrir samsetningu.

  21. Notið ESD-örugga töng til að grípa um pólýesterfilmuna á sveigjanlega rafhlöðukaplinum. Togið svo flipann beint upp til að lyfta endanum á sveigjanlegum kapli rafhlöðunnar úr tenginu.

    • Mikilvægt: Gætið þess að pólýesterfilmunni sé lyft beint upp. Ef pólýesterfilman rifnar skal nota flata endann á svarta teininum til að lyfta endanum á sveigjanlega rafhlöðukaplinum af tenginu.

Samsetning

  1. Setjið pinna fyrir jöfnunarverkfæri sveigjanlegs rafhlöðukapals við hliðina á skrúfugötin eins og sýnt er (1).

  2. Leggið verkfærið flatt þegar jöfnunarpinnunum er stungið í skrúfugötin (2).

  3. Ýtið enda sveigjanlegs kapals rafhlöðunnar í tengið (3). Þrýstið á pólýesterfilmuna til að hún festist við sveigjanlega rafhlöðukapalinn. Fjarlægið svo jöfnunarverkfæri sveigjanlega rafhlöðukapalsins.

  4. Notið bláa átaksmælinn og Torx Plus 3IP bita til að skrúfa eina 3IP skrúfu (923-08925) lauslega í eins og sýnt er.

  5. Setjið tengihlíf rafhlöðunnar yfir endann á sveigjanlegum kapli rafhlöðunnar (1). Rennið enda hlífarinnar undir 3IP skrúfuna eins og sýnt er (2).

  6. Notið ESD-örugga töng til að fletta pólýesterfilmunni af enda tengihlífar rafhlöðunnar eins og sýnt er hér fyrir neðan.

  7. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa eina 3IP skrúfu (923-08925) í tengihlíf rafhlöðunnar.

  8. Notið ESD-örugga töng til að fletta pólýesterfilmunni af hinum enda tengihlífar rafhlöðunnar.

  9. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa eina 3IP skrúfu aftur í tengihlíf rafhlöðunnar.

  10. Ýtið eftir endilangri pólýesterfilmunni til að festa hana við tengihlíf rafhlöðunnar.

  11. Haldið utan um brúnir rafhlöðuloksins og lyftið því af topphulstrinu.

  12. Snúið tölvunni þannig að skjálamir skjásins séu næstar ykkur.

  13. Klæðist skurðarþolnu hönskunum.

  14. Komið botnhulstrinu fyrir yfir topphulstrinu þannig að festingar botnhulstursins falli að innri skrúfunum tveimur við hátalarana í topphulstrinu eins og sýnt er.

  15. Gangið úr skugga um að langa hliðin á botnhulstrinu flútti við skjálömina. Það ætti að vera lítið bil á milli botnhulstursins og topphulstursins við hvora skjálöm.

  16. Ýtið á botnhulstrið við vinstri lömina (1) á meðan vinstri hlið botnhulstursins er toguð 1–2 mm í átt að ykkur (2). Finnið festingar botnhulstursins krækjast á innri skrúfurnar tvær við hátalarana í topphulstrinu.

  17. Ýtið á botnhulstrið við hægri lömina (1) á meðan hægri hlið botnhulstursins er toguð 1–2 mm í átt að ykkur (2). Finnið festingar botnhulstursins krækjast á innri skrúfurnar tvær við hátalarana í topphulstrinu.

  18. Endurtakið samsetningarskref 16 og 17 nokkrum sinnum þar til topp- og botnhulstrin eru jöfn. Ef þau eru ekki jöfn skal fjarlægja botnhulstrið. Endurtakið síðan samsetningarskref 14 til 17.

  19. Snúið tölvunni þannig að skjálömin vísi frá ykkur.

  20. Ýtið botnhulstrinu niður þar til þið finnið innri klemmurnar sex í topphulstrinu smella á sinn stað.

  21. Notið pentalobe skrúfjárnið til að skrúfa pentalobe skrúfurnar fjórar í botnhulstrið.

    • Athugið: Liturinn á skrúfunum segir til um gerðina.

      • Silfur- og drapplitað (923-08974)

      • Geimgrátt (923-09193)

      • Svarblátt (923-09237)

 Varúð

  • Kerfisstilling er nauðsynleg ef nýr skjár, hornskynjari fyrir lok, móðurborð, hægri og vinstri hátalarar eða Touch ID-spjald var sett í.

  • Ef skipt var um móðurborð mun tölvan ræsa sig í greiningarham þar til kerfisstillingu er lokið.

  • Ef skipt var um Touch ID-spjald mun það aðeins virka sem aflrofi þar til kerfisstilling er gerð.

Birt: