MacBook Air Kynning
Þessi handbók inniheldur tæknilegar leiðbeiningar um hvernig skuli skipta um upprunalega Apple-varahluti í Mac og er ætluð tæknimönnum með þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki.
Mikilvægt
Lestu alla handbókina áður en lengra er haldið. Ef þú treystir þér ekki til að framkvæma viðgerðir samkvæmt leiðbeiningunum í þessari handbók, skaltu ekki halda áfram.
Notið alltaf nýjustu útgáfuna af þessari handbók sem finna má á support.apple.com/docs/mac.
Viðvörun
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá Apple eða rétt verkfæri eru ekki notuð getur það valdið bruna eða öðrum öryggisvandamálum og leitt til meiðsla á fólki eða dauða.
Varúð
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá MAC eða rétt verkfæri ekki notuð getur það skemmt iPhone, íhluti eða aðrar eignir, eða skaðað virkni tækisins.
Upplýsingar um ábyrgð
Skemmdir af völdum viðgerða sem ekki eru framkvæmdar af Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple heyra ekki undir ábyrgð Apple eða AppleCare-áætlanir. Slíkar skemmdir geta valdið því að það þurfi að greiða fyrir viðgerðir og þær séu utan ábyrgðar eða orðið til þess að ekki verði hægt að gera við tækið hjá Apple eða viðurkenndum þjónustuaðilum Apple.
Verkfæri og varahlutir
Verkfæri
Verkfæri frá Apple eru hönnuð til að þola viðeigandi afl og átak við viðgerðir og til að þola mikla notkun.
iPhone-skjápressa setur hæfilegan þrýsting til að nýtt lím nái að taka sig við ísetningu á rafhlöðu. iPhone skjápressan er notuð með rafhlöðustuðningsramma og pressuplötu sem hönnuð er fyrir stærðir tækisins.
Pantanir á verkfærum og varahlutum
Hægt er að finna upplýsingar um það hvernig á að panta upprunalega varahluti og verkfæri frá Apple á support.apple.com/self-service-repair. Við kaupin skal slá inn auðkenni handbókarinnar sem finna má neðst á efnissíðunni til að sýna að þú hafir lesið alla þessa handbók og staðfestir að þú hafir þekkingu og reynslu til að sinna fyrirhugaðri viðgerð.
Hugbúnaðarverkfæri
Notið Apple Diagnostics til að prófa Mac-tölvuna.
Kerfisstilling gæti verið nauðsynleg þegar viðgerð er lokið. Kerfisstilling (System Configuration) er hugbúnaðarverkfæri sem er notað að lokinni viðgerð á ósviknum íhlutum frá Apple til að ljúka viðgerðinni. Kerfisstilling hefur margvíslegan tilgang sem er mismunandi eftir því hvaða varahluti verið er að skipta um.
Það sem kerfisstilling gerir | Hvers vegna þetta er mikilvægt |
---|---|
Uppfærir nýtt móðurborð með raðnúmeri tækis | Uppfæra þarf móðurborð með raðnúmeri tækisins til að tryggja að þjónusta Apple Pay, FaceTime, iMessage, og iCloud þjónusta, á borð við Find My, geti átt í öruggum og traustum samskiptum við tækið. |
Flytur verksmiðjustillt kvörðunargildi | Ákveðnir varahlutir á borð við skjái, myndavélar og skynjara fyrir umhverfislýsingu hafa sín kvörðunargildi sem eru sérsniðin fyrir hvern einstakan varahlut við framleiðslu. Flutningur á þessum gildum tryggir hámarksvirkni og gæði eftir viðgerð. |
Tengir Secure Enclave við lífkennisannvottunarhluti | Eftir viðgerðir á móðurborði eða lífkennisannvottunarhlutum (Touch ID), þarf að tengja lífkenniskynjara við Secure Enclave á móðurborðinu til að tryggja öryggi tækisins. |
Tryggir heilleika viðgerða | Eftir viðgerðir á vélbúnaði eru athuganir á hugbúnaði framkvæmdar til að tryggja heilindi viðgerðarinnar. Heilindi viðgerðar þýða að upprunalegur varahlutur frá Apple hafi verið réttilega settur í. |
Úthlutar þráðlausu svæði | Til að uppfylla reglur um samskipti verður að úthluta móðurborðinu þráðlausu svæði. |
Uppfærir fastbúnað | Ef fastbúnaður er uppfærður hefur tækið alla nýjustu öryggisvirkni og afköst. |
Kerfisstilling krefst öflugrar Wi-Fi-tengingar með 1,0 Mbps niðurhals- og upphleðsluhraða, með minna en 400 ms biðtíma og minna en 2% pakkatapi. Áætluð gagnanotkun við að keyra kerfisstillingu er 6-22 MB.
Tækið verður að keyra nýjustu útgáfuna af macOS en ekki prófunarútgáfu.
Lærið hvernig á að hefja kerfisstillingarferlið.
Viðvaranir
Ef viðvörunum er ekki sinnt getur það leitt af sér eldsvoða, meiðsl á fólki, gagnatap eða skemmdir á tækinu, varahlutum eða öðrum eignum.
Hætta | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á raflosti og rafstuði | |
Viðvörun | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á líkamstjóni | |
Varúð | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á gagnatapi eða vélbúnaðarskemmdum | |
Mikilvægt | Viðbótarupplýsingar til að framkvæma aðgerðir á árangursríkan hátt; hvorki viðvörun né varnaðarorð. |