iPhone 15 Pro Max neðri hátalari

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hlut áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 17 cm viðgerðarbakki

  • Stillanlegt átaksskrúfjárn (10–34 Ncm)

  • ESD-örugg töng

  • JCIS-biti (stillanlegt átaksskrúfjárn)

  • JCIS-biti (fastur mælir)

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf. cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Losun

  1. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að að USB-C tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bitann til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar úr neðri hátalara. Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Notaðu ESD-örugga töng til að grípa um skrúfugatið efst til hægri efst á neðri hátalaranum. Hallaðu neðri hátalaranum örlítið upp. Notaðu síðan svarta teininn til að aðskilja rafhlöðuþynnuna frá neðri hátalaranum.

  4. Notaðu ESD-örugga töng til að lyfta neðri hátalaranum upp úr hulstrinu.

Samsetning

  1. Snúðu viðgerðarbakkanum. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ranglega staðsett, laus eða vantar skaltu nota ESD-örugga töng til að endurstaðsetja hana eða skipta um hana.

  2. Snúðu viðgerðarbakkanum. Láttu tengið á neðri hátalaranum flútta við gúmmíþéttinguna. Hallaðu svo neðri hátalaranum niður í hulstrið.

  3. Stilltu herslugildið á 10–34 Ncm stillanlega átaksskrúfjárninu á 13 Ncm. Notaðu stillanlega átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann fyrir það til að setja eina nýja stjörnuskrúfu (923-10047) (1) í neðri hátalarann.

  4. Stilltu herslugildið á 10–34 Ncm stillanlega átaksskrúfjárninu á 11,5 Ncm. Notaðu stillanlega átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann fyrir það til að skrúfa eftirfarandi nýjar skrúfur í neðri hátalarann.

    • Ein stjörnuskrúfa (923-09810) (2)

    • Ein stjörnuskrúfa (923-10049) (4)

  5. Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-09800) (3) í neðri hátalarann.

    •  Varúð: Ekki skemma jarðtengifjaðrirnar á hátalaranum.

Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: