MacBook Pro (14 tommu, nóv. 2023) Skjár

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

 Varúð

  • Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.

  • Ef skipt er um skjá þarf einnig að setja upp nýjan hornskynjara fyrir lok.

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (0,3–1,2 Nm) (923-0735)

  • Nemi úr næloni (svartur teinn) (922-5065)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm) (923-0448)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti (923-08468)

  • Torx Plus 8IP 25 mm biti (923-07595)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

  1. Opnið skjáinn alveg, leggið tölvuna á hvolf á hreinan flöt og látið skjáinn hanga niður af borðbrúninni.

  2. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að fjarlægja fjórar 3IP skrúfur (923-06854) úr tveimur hlífum skjátengisins. Fjarlægið hlífarnar og geymið þær fyrir samsetningu.

  3. Lyftið endum á sveigjanlegum rafmagnskapli fyrir baklýsingu skjás, sveigjanlegum kapli fyrir háskerpumyndavél FaceTime og sveigjanlegum kapli eDP af tengjunum.

  4. Lyftið klemmum sveigjanlegu skjákaplanna frá innri umgjörð topphulstursins. Opnið þær varlega yfir brún topphulstursins til að sjá kapalhlífar skjásins undir.

  5. Lyftið kapalhlífum skjásins frá topphulstrinu og geymið þær fyrir samsetningu.

  6. Notið bláa átaksmælinn og Torx Plus 3IP bitann til að fjarlægja tvær 3IP skrúfur (923-06854) úr tengihlíf hornskynjara fyrir lok. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

  7. Notið svarta teininn til að lyfta endanum á sveigjanlega kaplinum fyrir hornskynjara af tenginu.

  8. Notið 0,3–1,2 Nm stillanlega átaksmælinn og Torx Plus 8IP bita til að fjarlægja sex 8IP skrúfur (923-07042) úr skjálömunum.

  9. Lyftið skjánum þar til lamirnar losna frá brún topphulstursins. Gangið úr skugga um að sveigjanlegu skjákaplarnir (1) og sveigjanlegur kapall hornskynjara fyrir lok (2) festist ekki í móðurborðinu eða topphulstrinu.

    •  Varúð: Ekki þrýsta skjálömunum á móðurborðið.

Samsetning

Mikilvægt: Ef verið er að skipta um skjá skal gæta þess að fjarlægja filmuhlífar og límbönd af nýjum skjá.

  1. Stillið skjálamirnar af við hornin á topphulstrinu þegar skjárinn er settur á sinn stað.

    •  Varúð:

      • Ekki þrýsta skjálömunum á móðurborðið.

      • Gangið úr skugga um að lamirnar renni undir brún topphulstursins.

  2. Gangið úr skugga um að sveigjanlegu skjákaplarnir (1) og sveigjanlegur kapall hornskynjara fyrir lok (2) festist ekki í móðurborðinu þegar skjánum er komið fyrir í topphulstrinu.

  3. Notið stillanlega átaksmælinn og 8IP bita til að skrúfa sex 8IP skrúfur (923-07042) (1–6) lauslega í skjálamirnar í þeirri röð sem sýnd er.

  4. Lokið skjánum og látið tölvuna standa á hlið. Stillið af skjáinn þar til hann flúttar við topphulstrið.

  5. Leggið tölvuna á hvolf með rafhlöðuna nær ykkur.

  6. Ekki taka 8IP bitann af stillanlega átaksmælinum. Stillið herslugildið á 0,7 Nm.

  7. Notið stillanlega átaksmælinn og 8IP bitann til að skrúfa sex 8IP skrúfur aftur í skjálamirnar.

  8. Setjið aðeins samanbrotna hluta sveigjanlegu skjákaplanna (lengd sveigjanlegs kapals næst skjánum) inn í bilið á milli skjásins og innri umgjarðarinnar.

  9. Setjið kapalhlífar skjásins inn í innri umgjörðina og yfir beygjurnar í sveigjanlegu skjáköplunum eins og sýnt er.

  10. Látið klemmur sveigjanlegu skjákaplanna liggja meðfram brún kapalhlífa skjásins (1). Setjið svo sveigjanlegu skjákaplana inn í bilið á milli innri umgjarðarinnar og móðurborðsins (2).

  11. Þrýstið klemmum sveigjanlegu skjákaplanna niður og ofan á hlífarnar og innri umgjörðina.

  12. Stingið endunum á sveigjanlegum rafmagnskapli fyrir baklýsingu skjás (1), sveigjanlegum kapli fyrir háskerpumyndavél FaceTime (2) og sveigjanlegum kapli eDP (3) í tilheyrandi tengi á móðurborðinu.

  13. Setjið tvær skjátengihlífar yfir endana á sveigjanlegum rafmagnskapli fyrir baklýsingu skjás, sveigjanlegum kapli fyrir háskerpumyndavél FaceTime og tengi sveigjanlegs kapals eDP. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-06854) aftur í báðar hlífarnar.

  14. Þrýstið endanum á sveigjanlegum kapli hornskynjarans á tengið.

  15. Leggið tengihlíf hornskynjarans yfir endann á sveigjanlegum kapli hornskynjarans. Notið síðan bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-06854) aftur í tengihlíf hornskynjara fyrir lok.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

 Varúð

Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.

Birt: