iPhone 12 Pro Max, Taptic Engine
Áður en þú byrjar
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægðu eftirfarandi íhluti áður en þú byrjar:
Verkfæri
6,7 tommu viðgerðarbakki
ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)
JCIS-biti
Nælonkanni (svart prik)
Súperskrúfubiti
Átaksskrúfjárn (svart, 0,35 kgf cm)
Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)
Átaksskrúfjárn (grænt, 0,45 kgf cm)
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/iphone-12-pro-max-d54p/101547-taptic-engine/001-RP1674_Locator_1x.jpg)
Fjarlæging
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja stjörnuskrúfuna af Taptic Engine -hlífinni. Settu skrúfuna til hliðar.
Notaðu ESD-töng til að fjarlægja Taptic Engine -hlífina. Geymdu hlífina til að setja hana saman aftur.
Notaðu átaksskrúfjárn og súperskrúfubitann til að fjarlægja súperskrúfurnar tvær úr Taptic Engine . Settu skrúfurnar til hliðar.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja eina stjörnuskrúfu úr Taptic Engine . Settu skrúfuna til hliðar.
Notaðu svarta prikið til að lyfta enda Taptic Engine -snúrunnar af tenginu.
Notaðu ESD-töng til að fjarlægja Taptic Engine .
Samsetning
Settu Taptic Engine í hulstrið.
Ýttu endanum á Taptic Engine -snúrunni að tenginu.
Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og súperskrúfubita til að setja tvær nýjar súperskrúfur (923-05037) í Taptic Engine .
Notaðu græna átaksskrúfjárnið og JCIS-bita til að setja eina nýja stjörnuskrúfu (923-05038) í Taptic Engine .
Notaðu ESD-töng til að setja Taptic Engine -hlífina í hulstrið.
Notaðu svarta átaksskrúfjárnið og JCIS-bita til að setja eina nýja stjörnuskrúfu (923-05105) í Taptic Engine -hlífina.
Settu eftirfarandi hluti aftur á sinn stað til að ljúka samsetningunn: