1x1 lyklar

Veldu viðeigandi lyklaborðskort hér að neðan:

Athugaðu: Skref sundurhlutunar og samsetningar fyrir 1x1 lykla eru þau sömu fyrir allar gerðir.

Kort

1x1 lyklarnir eru auðkenndir og bláu strikin sýna hvar smellurnar eru.

MacBook Air (M1, 2020)

ANSI

ISO

JIS

MacBook Pro (13 tommu, M1, 2020; og 13 tommu, M2, 2022)

ANSI

ISO

JIS

MacBook Air (13 tommu, M2, 2022) eða nýrri og MacBook Pro (14 tommu og16 tommu, 2021) eða nýrri

ANSI

ISO

JIS

Losun

  1. Flettu fasta borðanum af annarri hliðinni á 1x1 forskornu límborðunum. Þrýstu á og haltu stóra endanum á stillistöng fyrir lykil á líminu í 10 sekúndur.

  2. Lyftu stillistönginni og líminu til að skilja þau frá hvítu filmunni.

  3. Þrýstu stóra endanum á stillistönginni og líminu varlega á takkann.

    • Mikilvægt

      • Örin á stillistönginni verður að vísa á hjöruhlið lykilsins, sem er gegnt hliðinni sem smellist á lyklaborðið.

      • Notaðu kortið af 1x1 lyklunum til að sjá hvar smellurnar eru.

      • Á JIS-lyklaborðinu eru smellurnar fyrir 1x1 hástafalásinn á skjáhlið lykilsins.

  4. Haldtu stillistönginni á lyklinum í 10 sekúndur til að virkja límið.

  5. Hallaðu stillistönginni upp í þá átt sem örin vísar þar til smellurnar losna.

    •  Varúð: Til að forðast að skemma skærabúnaðinn skal ekki halla lyklinum upp meira en sem nemur 20 gráðum.

  6. Lyftu lyklinum frá lyklaborðinu.

  7. Notaðu svarta teininn til að hreyfa skærabúnaðinn varlega upp og niður. Gakktu úr skugga um að skærabúnaðurinn hreyfist auðveldlega og liggi flatur þegar honum er sleppt. Ef það gerist ekki skal skipta um skærabúnað.

  8. Skoðaðu lyklastæðið:

    • Notaðu svarta teininn til að þrýsta á og sleppa kúplinum í gegnum efsta hluta skærabúnaðarins — kúpullinn ætti að skjótast aftur upp. Ef kúpullinn er skemmdur eða ekki fyrir miðju skal skipta um topphulstrið.

    • Ef neðri krókurinn er boginn skal reyna að beygja hann aftur þannig að hann myndi 90 gráðu horn.

    • Ef efri krókurinn er boginn skal nota kjaftatöng til að rétta hann.

    • Ef neðri eða efri krókur er brotinn eða boginn og ekki er hægt að gera við hann skal skipta um topphulstrið.

  9. Notaðu þrýstiloft til að hreinsa lyklastæðið.

    • Athugið: Ef þrýstiloft losar ekki sýnileg óhreinindi skal nota svarta teininn og losa óhreinindin varlega frá.

  10. Fjarlægðu lykilinn og límið af stillistönginni. Fargaðu lyklinum og líminu.

Samsetning

  1. Ýttu hjöruhlið nýja lykilsins varlega ofan í hjöruhlið stæðisins í 15 gráðu halla þar til hjörurnar tengjast.

  2. Ýttu varlega ofan á lykilinn þar til smellurnar festast í.

  3. Pikkaðu á lykilinn nokkrum sinnum til að athuga hvort hann skjótist aftur upp í hvert skipti. Berðu saman viðbragð nýja lykilsins við viðbragð lyklanna umhverfis hann.

  4. Endurtaktu öll skref sundurhlutunar og samsetningar með nýjum lykli ef lykillinn virðist ekki vera rétt settur í.

Birt: