Mac Studio (2022) Thunderbolt 4-tengi á bakstykki
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi íhluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm)
Torx T3-hálfmánabiti
Torx T3-skrúfjárn
Torx T5-skrúfjárn
Torx T7-skrúfjárn
USB-C hleðslukapall

Athugið: Myndirnar í þessu verklagi sýna fjarlægingu og ísetningu á tveimur Thunderbolt 4 tengjum á bakstykki. Hins vegar er verklagið við fjarlægingu og ísetningu eins tengis eða beggja það sama.
Losun
Notið T3 skrúfjárnið til að fjarlægja tvær T3 skrúfur (923-07105) úr tengihlíf fyrir Thunderbolt 4 tengi á bakstykki.

Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

Notið svarta teininn til að lyfta endunum á sveigjanlegum köplum Thunderbolt 4-tengja á bakstykki úr tengjunum.

Snúið tölvunni á hvolf og látið fremri tengin snúa upp.

Notið T5 skrúfjárnið til að fjarlægja sex T5 skrúfur (923-07093) úr Thunderbolt 4 tengjum á bakstykkinu.

Notið T7 skrúfjárnið til að fjarlægja tvær T7 skrúfur (923-07103) úr Thunderbolt 4-tengi á bakstykki.

Lyftið Thunderbolt 4 tengjum á bakstykki úr húsinu.

Samsetning
Staðsetjið tölvuna eins og sýnt er.

Finnið eitt par af Thunderbolt 4 tengjum á bakstykki í húsinu. Leggið enda sveigjanlega kapals yfir Thunderbolt 4 tengin á bakstykki. Stingið síðan Thunderbolt 4 tengjunum á bakstykki í opin á húsinu.
Mikilvægt: Ekki tengja sveigjanlega kapalinn við tengið fyrr en í skrefi 13.

Finnið seinna parið af Thunderbolt 4 tengjunum á bakstykki í húsinu. Leggið enda sveigjanlega kapals yfir Thunderbolt 4 tengin á bakstykki. Stingið síðan Thunderbolt 4 tengjunum á bakstykki í opin á húsinu.
Mikilvægt: Ekki tengja sveigjanlega kapalinn við tengið fyrr en í skrefi 13.

Snúið tölvunni á hvolf og látið fremri tengin snúa upp.

Notið T7 skrúfjárnið til að skrúfa tvær T7 skrúfur (923-07103) lauslega í Thunderbolt 4-tengi á bakstykki.

Notið T5 skrúfjárnið til að skrúfa tvær T5 skrúfur (923-07093) lauslega í Thunderbolt 4-tengi á bakstykki.

Staðsetjið tölvuna eins og sýnt er.
Tengið báða endana á USB-C hleðslukaplinum í tvö Thunderbolt 4 tengi á bakstykkinu (1) eins og sýnt er til að tryggja rétta stöðu Thunderbolt 4 tengjanna. Stillið af tengin þar til auðvelt er að stinga báðum endum USB-C-hleðslukapalsins inn og fjarlægja hann.
Notið T5 skrúfjárnið til að skrúfa fjórar T5 skrúfur alveg í Thunderbolt 4-tengi á bakstykki (2).

Tengið báða endana á USB-C hleðslukaplinum í tvö Thunderbolt 4 tengi á bakstykkinu (1) eins og sýnt er til að tryggja rétta stöðu Thunderbolt 4 tengjanna. Stillið af tengin þar til auðvelt er að stinga báðum endum USB-C-kapalsins inn og fjarlægja hann.
Notið T7 skrúfjárnið til að skrúfa tvær T7 skrúfur alveg í Thunderbolt 4-tengi á bakstykki (2).
Notið T5 skrúfjárnið til að skrúfa tvær T5 skrúfur alveg í Thunderbolt 4-tengi á bakstykki (3).

Þrýstið jafnt eftir endilöngum tengjunum til að tryggja að þau sé alveg tengd við móðurborðið.
Rétt tenging

Röng tenging

Setjið tengihlíf fyrir Thunderbolt 4 tengi á bakstykki yfir endana á sveigjanlegum köplum Thunderbolt 4 tengja á bakstykki. Notið síðan græna átaksmælinn og Torx T3 hálfmánabitann til að skrúfa tvær T3 skrúfur (923-07105) aftur í tengihlífina.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu: