MacBook Air (M2, 2022) Rafhlaða

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi íhluti áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10-34 Ncm)

  • Jöfnunarpinnar (2 mm)

  • Lím fyrir rafhlöðu

  • Stoðumgjörð og pressuplata fyrir rafhlöðu

  • ESD-örugg töng

  • Etanólþurrkur eða ísóprópýl-þurrkur (IPA)

  • iPhone-skjápressa

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Torx Plus 25 mm 3IP-biti

  • Torx Plus 25 mm 4IP-biti

Mikilvægt

Ekki er hægt að endurnota kæliplötuna. Ný kæliplata fylgir með nýrri rafhlöðu.

Losun

  1. Takið Kapton-límbandið af sveigjanlega kapli snertiborðsins.

  2. Haldið utan um brúnir rafhlöðuloksins og lyftið því frá topphulstrinu.

  3. Setjið 4IP bitann á 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn. Notið síðan stillanlega átaksmælinn og 4IP-bitann til að fjarlægja 4IP-skrúfurnar tvær (923-07259) (1) úr rafhlöðubakkanum.

  4. Setjið 3IP-bitann á 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn. Notið síðan stillanlega átaksmælinn og 3IP-bitann til að fjarlægja 3IP-skrúfurnar tvær (923-07279) (2) úr rafhlöðubakkanum.

  5. Notið ESD-örugga töng til að grípa um fyrri límflipa rafhlöðunnar (1). Flettið límflipanum varlega af topphulstrinu.

  6. Notið ESD-örugga töng til að grípa um seinni límflipa rafhlöðunnar (2). Flettið límflipanum varlega af topphulstrinu.

  7. Togið í báða límflipa rafhlöðunnar til að fletta þeim af rafhlöðubakkanum og topphulstrinu (3).

    • Mikilvægt: Þegar gripið er um báða límflipa rafhlöðunnar skal toga límborðann örlítið upp á við og fram yfir brún topphulstursins þar til allur límborðinn hefur verið fjarlægður (4). Togið hægt í límborðann. Ekki láta límborðann snerta brún topphulstursins þegar hann er fjarlægður. Ekki teygja um of á límborðanum. Færið takið nær rafhlöðunni ef þess gerist þörf.

  8. Endurtakið skref 5 til 7 til að fjarlægja hina þrjá límborðana á rafhlöðunni (2-4). Haldið svo áfram að skrefi 9.

  9. Festið sveigjanlegan kapal snertiborðsins með Kapton-límbandi svo hann þvælist ekki fyrir eins og sýnt er.

    •  Varúð: Ekki brjóta saman eða krumpa sveigjanlega kapalinn.

  10. Notið svarta teininn til að fletta sveigjanlegum kapli rafhlöðunnar af topphulstrinu.

    •  Viðvörun: Snertið ekki tengi fyrir sveigjanlega rafhlöðukapalinn.

  11. Ýtið á neðri brún rafhlöðunnar til að renna henni upp (1).

  12. Notið svarta teininn til að lyfta upp efri brún rafhlöðubakkans (2).

  13. Haldið utan um hliðar rafhlöðunnar. Lyftið síðan rafhlöðunni eins og sýnt er til að fjarlægja hana úr topphulstrinu.

    • null Viðvörun:

      • Höndlið sýnilegar brúnir samstæðunnar af varkárni þegar rafhlaðan er fjarlægð og henni skipt út.

      • Ekki fjarlægja rafhlöðuna úr rafhlöðubakkanum.

    • Mikilvægt: Ekki snerta sveigjanlegan kapal snertiborðsins þegar rafhlaðan er fjarlægð.

  14. Notið etanól- eða IPA-þurrku til að bleyta örlítið límleifar sveigjanlega rafhlöðukapalsins á topphulstrinu (1).

  15. Notið flata enda svarta teinsins til að lyfta varlega annarri brún límbandsins á sveigjanlega rafhlöðukaplinum (2). Notið síðan ESD-örugga töng til að fjarlægja límbandið (3).

    •  Varúð: Ekki skemma grafítlagið þegar límbandið er fjarlægt.

Samsetning

  1. Brjótið saman flipana á límböndum rafhlöðunnar um 90 gráður á punktalínunni.

  2. Fjarlægið límfilmuna af rafhlöðulíminu.

  3. Setjið rafhlöðulímið yfir horn topphulstursins eins og sýnt er.

  4. Þrýstið límborðum rafhlöðunnar á topphulstrið.

  5. Notið ESD-örugga töng til að grípa um samanbrotna flipann á toppfilmunni. Flettið svo filmunni af límborðum rafhlöðunnar.

  6. Endurtakið skref 2 til 5 til að festa annað rafhlöðulímið á hitt horn topphulstursins. Haldið svo áfram að skrefi 7.

  7. Setjið þrædda enda 2 mm jöfnunarpinnanna tveggja í skrúfugötin á hvorri hlið topphulstursins.

  8. Látið skrúfugöt rafhlöðubakkans flútta við jöfnunarpinnana og leggið rafhlöðuna ofan á topphulstrið.

  9. Notið flatta enda svarta teinsins til að þrýsta límflipum rafhlöðunnar á topphulstrið.

    • Mikilvægt: Þrýstið tvisvar á límflipana með svarta teininum til að tryggja að allur flipinn límist við topphulstrið.

  10. Takið Kapton-límbandið af sveigjanlega kapli snertiborðsins.

  11. Opnið skjáinn. Leggið svo tölvuna á stoðumgjörðina þannig að skjárinn hangi niður af borðendanum.

  12. Látið götin á pressuplötu rafhlöðunnar flútta við pinna stoðumgjarðarinnar. Lækkið pressuplötuna á rafhlöðuna.

    •  Varúð: Gætið þess að sveigjanlegur kapall snertiborðsins liggi sléttur á rafhlöðunni til að skemma hann ekki með pressuplötunni.

  13. Komið stoðumgjörðinni fyrir í iPhone-skjápressunni.

  14. Gætið þess að stoðumgjörðin flútti við bakhlið iPhone-skjápressunnar.

  15. Dragið arminn niður þar til hann læsist.

  16. Bíðið þar iPhone-skjápressan gefur frá sér hljóðmerki og tímastillirinn sýnir 0. Dragið arminn lítillega niður (1) og togið út losunarhnúðinn (2). Lyftið síðan arminum (3).

  17. Fjarlægið stoðumgjörðina úr iPhone-skjápressunni. Lyftið svo pressuplötunni.

  18. Fjarlægið tölvuna úr stoðgrindinni. Lokið skjánum og komið tölvunni fyrir þannig að skjárinn vísi niður.

  19. Fjarlægið jöfnunarpinnana tvo.

  20. Setjið 4IP-bitann á 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn. Stillið herslugildið á 16 Ncm.

  21. Notið stillanlega átaksmælinn og 4IP-bitann til að skrúfa 4IP-skrúfurnar tvær (923-07259) (1) aftur í rafhlöðubakkann.

  22. Setjið 3IP-bitann á 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn. Stillið herslugildið á 16 Ncm.

  23. Notið stillanlega átaksmælinn og 3IP-bitann til að skrúfa 3IP-skrúfurnar tvær (923-07279) (2) aftur í rafhlöðubakkann.

  24. Setjið aftur í móðurborðið.

  25. Setjið nýja kæliplötu í.

    • Athugið: Ný kæliplata fylgir með nýrri rafhlöðu.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: