MacBook Pro (16 tommu, 2021) Hornskynjari fyrir lok
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Torx öryggisbiti
Torx T3-skrúfjárn
Varúð
Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Losun
Notið T3 skrúfjárnið til að fjarlægja tvær T3 skrúfur (923-06854) úr tengihlíf hornskynjarans. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.
Notið svarta teininn til að lyfta endanum á sveigjanlega kaplinum fyrir hornskynjara af tenginu.
Notið átaksmælinn og Torx öryggisbitann til að fjarlægja 1IPR skrúfuna (923-06852) úr klemmu fyrir sveigjanlegan kapal hornskynjaraloksins.
Fjarlægið hornskynjara fyrir lok úr topphulstrinu.
Samsetning
Komið hornskynjara fyrir lok fyrir í topphulstrinu.
Setjið klemmuna á sveigjanlegan kapal hornskynjarans þannig að raufin og skrúfugatið á klemmunni mæti pinnanum og skrúfugatinu í topphulstrinu.
Notið bláa átaksmælinn og Torx öryggisbitann til að skrúfa 1IPR skrúfuna (923-06852) aftur í klemmu fyrir sveigjanlegan kapal hornskynjaraloksins.
Notið svarta teininn til að þrýsta endanum á sveigjanlega kaplinum fyrir hornskynjara á tengið.
Leggið tengihlíf hornskynjarans yfir endann á sveigjanlegum kapli hornskynjarans. Notið síðan T3 skrúfjárnið til að skúrfa tvær T3 skrúfur (923-06854) aftur í tengihlíf hornskynjarans.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Ef skipt var um hornskynjara fyrir lok skal loka skjánum í 20 sekúndur þegar beðið er um það meðan á kerfisstillingunni stendur. Ef skjárinn er ekki alveg lokaður meðan á ferlinu stendur þarf að setja upp nýjan hornskynjara fyrir lok. Tölvan spilar ræsingarhljóð (hljóðmerki) þegar ferlinu er lokið.