MacBook Pro (14 tommu, 2021) Hornskynjari fyrir lok
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Torx öryggisbiti
Torx T3-skrúfjárn
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/mbp-14-2021-j314/100555-lid-angle-sensor/000_RP1825_Locator_V1_1x.jpg)
Varúð
Þetta ferli krefst kerfisstillingar. Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Losun
Notið T3 skrúfjárnið til að fjarlægja tvær T3 skrúfur (923-06854) úr tengihlíf hornskynjara fyrir lok.
Fjarlægið tengihlíf hornskynjara fyrir lok og geymið hana fyrir samsetningu.
Notið svarta teininn til að lyfta endanum á sveigjanlega kaplinum fyrir hornskynjara af tenginu.
Notið bláa átaksmælinn og Torx öryggisbitann til að fjarlægja 1IPR skrúfuna (923-06852) úr klemmu sveigjanlega kapals hornskynjara fyrir lok.
Fjarlægið hornskynjara fyrir lok úr topphulstrinu.
Samsetning
Komið hornskynjara fyrir lok fyrir í topphulstrinu.
Þrýstið endanum á sveigjanlegum kapli hornskynjara fyrir lok á tengið á móðurborðinu.
Setjið klemmu fyrir sveigjanlegan kapal hornskynjarans í þannig að gatið flútti við skrúfugatið í topphulstrinu.
Notið bláa átaksmælinn og Torx öryggisbitann til að skrúfa 1IPR skrúfuna (923-06852) aftur í klemmu sveigjanlega kapals hornskynjara fyrir lok.
Leggið tengihlíf hornskynjarans yfir endann á sveigjanlegum kapli hornskynjarans.
Notið síðan T3 skrúfjárnið til að skrúfa tvær T3 skrúfur (923-06854) aftur í tengihlíf hornskynjarans.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Varúð
Eftir að öllum sundurhlutunar- og samsetningarskrefum er lokið skal athuga hvernig hefja á kerfisstillingarferlið.
Ef skipt var um hornskynjara fyrir lok skal loka skjánum í 20 sekúndur þegar beðið er um það meðan á kerfisstillingunni stendur. Ef skjárinn er ekki alveg lokaður meðan á ferlinu stendur þarf að setja upp nýjan hornskynjara fyrir lok. Tölvan spilar ræsingarhljóð (hljóðmerki) þegar ferlinu er lokið.