iPhone 12 Pro, hátalari
Áður en þú byrjar
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa
Fjarlægðu eftirfarandi íhlut áður en þú byrjar:
Verkfæri
6,1 tommu viðgerðarbakki
ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)
JCIS-biti
Nælonkanni (svart prik)
Átaksskrúfjárn (grænt, 0,45 kgf cm)
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/iphone-12/100472-speaker/001-RP1667_Locator_1x_V2.jpg)
Fjarlæging
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja fjórar stjörnuskrúfur úr hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.
Notaðu svarta prikið til að halla hátalaranum upp. Taktu síðan hátalarann úr hulstrinu.
Samsetning
Snúðu viðgerðarbakkanum. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er skökk skaltu nota ESD-töng til að laga hana til.
Snúðu viðgerðarbakkanum. Hallaðu hátalaranum niður og settu hann á sinn stað.
Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á hátalaranum.
Notaðu græna átaksskrúfjárfnið og JCIS-bita til að setja fjórar nýjar stjörnuskrúfur (923-05052) í hátalarann.
Settu eftirfarandi íhlut aftur á sinn stað til að ljúka samsetningunni: