iPhone 12 Hátalari

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • 15 cm viðgerðarbakki

  • ESD-örugg flísatöng

  • JCIS biti

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksmælir (grænn, 0,45 kgf. cm)

Losun

  1. Setjið hólfið í viðgerðarbakkann og látið Lightning-tengið snúa að útskurðinum.

  2. Notið átaksmæli og JCIS bitann til að fjarlægja fjórar krosshausaskrúfur úr hátalara. Setjið skrúfurnar til hliðar.

  3. Notið svarta teininn til að halla hátalaranum upp. Takið svo hátalarann úr hólfinu

Samsetning

  1. Snúið viðgerðarbakkanum við. Gangið úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er.

  2. Ef gúmmíþéttingin er ekki í réttri stöðu skal nota ESD-örugga töng til að koma henni aftur fyrir.

  3. Snúið viðgerðarbakkanum við. Hallið niður neðri brún hátalarans og setjið hann í hólfið.

    •  Varúð: Ekki skemma jarðtengigormana á hátalaranum.

  4. Notið græna átaksmælinn og JCIS bitann til að skrúfa fjórar nýjar krosshausaskrúfur (923-05052) í hátalarann.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: