iPhone 13 mini, neðri hátalari

Áður en þú byrjar

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 5,4 tommu viðgerðarbakki

  • ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)

  • JCIS-biti

  • Nælonkanni (svart prik)

  • Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Fjarlæging

  1. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar úr neðri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Taktu neðri hátalarann ​​úr hulstrinu.

Samsetning

  1. Snúðu viðgerðarbakkanum. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki á sínum stað skaltu nota ESD-töngina til að setja hana á réttan stað.

  2. Snúðu viðgerðarbakkanum. Láttu tengið á neðri hátalaranum flútta við gatið í hulstrinu. Komdu neðri hátalaranum fyrir ​​á sínum stað.

  3. Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að festa fjórar nýjar stjörnuskrúfur (923-06670) (1) (923-06671) (2)  í neðri hátalarann. Haltu neðri hátalaranum niðri þegar þú festir skrúfurnar.

    •  Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á hátalaranum.

Festu eftirfarandi hluta aftur á til að ljúka samsetningunni:

Birt: