iPhone 14 Pro, neðri hátalari

Áður en þú byrjar

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 6,1 tommu viðgerðabakki

  • ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)

  • JCIS-biti

  • Nælonkanni (svart prik)

  • Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Fjarlæging

  1. Settu hulstrið í viðgerðabakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar úr neðri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Hallaðu neðri hátalaranum örlítið upp eins og sýnt er (1). Settu flata enda svarta priksins á milli rafhlöðuþynnunnar og Taptic Engine  og neðri hátalarans til að losa límið á rafhlöðuþynnunni(2).

  4. Taktu neðri hátalarann úr hulstrinu.

Samsetning

  1. Snúðu viðgerðarbakkanum. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki á sínum stað skaltu nota ESD-töngina til að setja hana á réttan stað.

  2. Snúðu viðgerðarbakkanum. Láttu tengið á neðri hátalaranum flútta við gúmmíþéttinguna. Settu síðan hátalarann ​​í hulstrið.

  3. Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að festa fjórar nýjar stjörnuskrúfur (923-08147) (1) (923-08377) (2) í neðri hátalarann.

    •  Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á hátalaranum.

Festu eftirfarandi hluta aftur á til að ljúka samsetningunni:

Birt: