iPhone 14 Pro Max, neðri hátalari

Áður en þú byrjar

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 6,7 tommu viðgerðarbakki

  • ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)

  • JCIS-biti

  • Nælonkanni (svart prik)

  • Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)

  • Átaksskrúfjárn (appelsínugult, 0,85 kgf cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Fjarlæging

  1. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bita til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fjórar úr neðri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Hallaðu neðri hátalaranum örlítið upp eins og sýnt er (1). Settu flata enda svarta priksins á milli rafhlöðuþynnunnar og Taptic Engine  og neðri hátalarans til að losa límið á rafhlöðuþynnunni(2).

  4. Taktu neðri hátalarann úr hulstrinu.

Samsetning

  1. Snúðu viðgerðarbakkanum. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki á sínum stað skaltu nota ESD-töngina til að setja hana á réttan stað.

  2. Snúðu viðgerðarbakkanum. Láttu tengið á neðri hátalaranum flútta við gúmmíþéttinguna. Settu síðan hátalarann ​​í hulstrið.

  3. Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bita til að setja þrjár nýjar stjörnuskrúfur (923-08148) (1) í neðri hátalarann. Ýttu hátalaranum niður á meðan þú setur skrúfurnar í.

  4. Notaðu appelsínugula átaksskrúfjárnið og JCIS-bita til að setja eina nýja stjörnuskrúfu (923-08467) (2) í neðri hátalarann.

    •  Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Festu eftirfarandi hluta aftur á til að ljúka samsetningunni:

Birt: