Mac Studio kynning
Þessi handbók inniheldur tæknilegar leiðbeiningar um hvernig skuli skipta um upprunalega Apple-varahluti í Mac Studio og er ætluð tæknimönnum með þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki.
Mikilvægt
Lestu alla handbókina áður en lengra er haldið. Ef þú treystir þér ekki til að framkvæma viðgerðir samkvæmt leiðbeiningunum í þessari handbók, skaltu ekki halda áfram.
Notið alltaf nýjustu útgáfuna af þessari handbók sem finna má á support.apple.com/docs/mac.
Viðvörun
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá Apple eða rétt verkfæri ekki notuð getur það valdið raflosti eða öðrum öryggisvandamálum og leitt til líkamstjóns eða dauða.
Varúð
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir Apple-varahlutir eða rétt verkfæri eru ekki notuð getur það skemmt Mac-tölvuna, íhluti eða aðrar eignir, eða skaðað virkni tækisins.
Upplýsingar um ábyrgð
Skemmdir af völdum viðgerða sem ekki eru framkvæmdar af Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple heyra ekki undir ábyrgð Apple eða AppleCare-áætlanir. Slíkar skemmdir geta valdið því að það þurfi að greiða fyrir viðgerðir og þær séu utan ábyrgðar eða orðið til þess að ekki verði hægt að gera við tækið hjá Apple eða viðurkenndum þjónustuaðilum Apple.
Verkfæri og varahlutir
Pantanir á verkfærum og varahlutum
Þegar gera þarf við Mac Studio er hægt að velja milli upprunalegra Apple-varahluta, notaðra Apple-varahluta eða varahluta frá þriðja aðila. Frekari upplýsingar um varahlutastuðning fyrir Mac Studio.
Hægt er að finna upplýsingar um það hvernig á að panta upprunalega varahluti og verkfæri frá Apple á support.apple.com/self-service-repair. Varahlutir verða fáanlegir stuttu eftir markaðssetningu vörunnar. Við kaup skal slá inn auðkenni handbókarinnar, sem finna má neðst á efnissíðunni, til að sýna að þú hafir lesið alla handbókina og staðfestir að þú hafir þekkingu og reynslu til að sinna fyrirhugaðri viðgerð.
Hugbúnaðarverkfæri
Eftir að hafa framkvæmt viðgerð á móðurborði eða SSD-einingum þarftu aðra Mac-tölvu sem keyrir nýjustu útgáfuna af macOS, studdan USB-C hleðslukapal og aðgang að internetinu til að endurheimta Mac-tölvuna.
Viðgerðaraðstoðin er hugbúnaðarverkfæri sem lýkur við viðgerðina fyrir tiltekna nýja og notaða upprunalega Apple-varahluti. Hugsanlega verður mælt með viðgerðaraðstoð þegar viðgerðinni lýkur, en það fer eftir íhlutnum sem skipt er um hverju sinni.
Hvað felst í viðgerðaraðstoð? | Hvers vegna þetta er mikilvægt |
---|---|
Uppfærir nýtt móðurborð með raðnúmeri tækis | Uppfæra þarf móðurborð með raðnúmeri tækisins til að tryggja að þjónusta Apple Pay, FaceTime, iMessage, og iCloud þjónusta, á borð við Find My, geti átt í öruggum samskiptum við tækið. |
Flytur verksmiðjustillt kvörðunargildi | Ákveðnir varahlutir á borð við skjái, myndavélar og skynjara fyrir umhverfislýsingu hafa sín kvörðunargildi sem eru sérsniðin fyrir hvern einstakan varahlut við framleiðslu. Með því að sækja þessi gildi eru hámarksafköst og gæði tryggð eftir viðgerð. |
Tengir Secure Enclave við lífkennisannvottunarhluti | Eftir viðgerðir á móðurborði eða lífkennisannvottunarhlutum (Touch ID), þarf að tengja lífkenniskynjara við Secure Enclave á móðurborðinu til að tryggja öryggi tækisins. |
Athuganir á virkjunarlás | Viðgerðaraðstoð athugar hvort ákveðnir hlutir sem áður voru notaðir séu tengdir tæki sem hefur virkjað virkjunarlás. |
Úthlutar þráðlausu svæði | Til að uppfylla reglur um samskipti verður að úthluta móðurborðinu þráðlausu svæði. |
Uppfærir fastbúnað | Ef fastbúnaður er uppfærður hefur tækið alla nýjustu öryggisvirkni og afköst. |
Hvernig hefja á viðgerðaraðstoð
Tryggið að til staðar sé:
Nýjasta útgáfan af macOS – ekki beta-útgáfa – á Mac
Internettenging
Ef viðgerðin er framkvæmd á tæki einhvers annars skal setja tækið í greiningarstillingu. Fylgið síðan leiðbeiningunum á skjánum til að keyra viðgerðaraðstoð.
Ef viðgerðin er framkvæmd á eigin tæki er hægt að kynna sér viðgerðaraðstoðina.
Viðvaranir
Ef viðvörunum er ekki sinnt getur það leitt af sér raflost, líkamstjón, gagnatap eða skemmdir á tækinu, varahlutum eða öðrum eignum.
![]() | Hætta | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á raflosti og rafstuði |
![]() | Viðvörun | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á líkamstjóni |
![]() | Varúð | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á gagnatapi eða vélbúnaðarskemmdum |
Mikilvægt | Viðbótarupplýsingar til að framkvæma aðgerðir á árangursríkan hátt; hvorki viðvörun né varnaðarorð. |