iPhone 14, neðri hátalari

Áður en þú byrjar

 Viðvörun

Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægðu eftirfarandi hluta áður en þú byrjar:

Verkfæri

  • 6,1 tommu viðgerðarbakki

  • ESD-töng (töng sem er örugg fyrir rafstöðuúrhleðslu, e. electrostatic discharge)

  • JCIS-biti

  • Micro stix-biti

  • Nælonkanni (svart prik)

  • Átaksskrúfjárn (blátt, 0,65 kgf cm)

  • Átaksskrúfjárn (grátt, 0,55 kgf cm)

  • Átaksskrúfjárn (grænt, 0,45 kgf. cm)

 Varúð

Forðastu að snerta fjaðrirnar á eða nálægt neðri hátalaranum.

Fjarlæging

  1. Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að lightning-tengið snúi að hakinu.

  2. Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bitann til að fjarlægja stjörnuskrúfurnar fimm af neðri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.

  3. Notaðu átaksskrúfjárn og micro stix-bitann til að fjarlægja þríblaða skrúfuna af neðri hátalaranum. Settu skrúfuna til hliðar.

  4. Taktu neðri hátalarann úr hulstrinu.

    •  Varúð

      • Ekki lyfta loftopshlífinni (1) á meðan neðri hátalarinn er fjarlægður.

      • Ekki skemma fjaðrirnar (2) á neðri hátalaranum.

Samsetning

  1. Gakktu úr skugga um að gúmmíþéttingin sé staðsett eins og sýnt er. Ef þéttingin er ekki á sínum stað skaltu nota ESD-töngina til að setja hana á réttan stað.

  2. Settu neðri hátalarann ​​í hulstrið. Renndu hægra skrúfugatinu neðst á neðri hátalaranum undir skrúfugatið á loftopshllífinni eins og sýnt er.

    •  Varúð: Ekki lyfta loftopshlífinni á meðan verið er að staðsetja neðri hátalarann.

  3. Notaðu græna átaksskrúfjárnið og micro stix-bitann til að skrúfa eina nýja þríblaða skrúfu (923-08382) í neðri hátalarann.

  4. Notaðu gráa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa fjórar nýjar stjörnuskrúfur í (923-08386) (1) (923-08379) (2).

  5. Notaðu bláa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-08380) (3) í neðri hátalarann.

    •  Varúð: Ekki skemma fjaðrirnar á neðri hátalaranum.

Settu eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: