iPhone, fyrstu skref

Farðu alltaf í gegnum eftirfarandi skref áður en viðgerð hefst:

 Varúð

ESD (electrostatic discharge, eða losun stöðurafmagns) getur skemmt rafeindaíhluti.

Vertu meðvitaður/meðvituð um eftirfarandi þegar þú framkvæmir viðgerð:

  • Handbókin fyrir þessa gerð kann að sýna myndir af öðrum gerðum en aðferðirnar eru þær sömu. Gættu þess að nota rétt verkfæri fyrir þá gerð sem þú ert að gera við.

  • Gefðu þér góðan tíma. Lestu vandlega allar leiðbeiningar og viðvaranir.

  • Ef átaksskrúfjárnin eru segulmögnuð er auðveldara að vinna með litlar skrúfur.

  • Endi hverrar snúru verður að vera í flútti við viðkomandi tengi. Ýttu enda hverrar snúru að tenginu þar til hann smellur til að tryggja að það sé tenging.

  Viðvörun

Lausar skrúfur, aukaskrúfur eða smáhlutir inni í tækinu geta skemmt rafhlöðuna og valdið öryggisvandamálum. Leggðu til hliðar alla hluta og skrúfur sem voru fjarlægðar við viðgerðina og gerðu grein fyrir þeim í lok viðgerðar.

Birt: