Mac mini (M6 eða M5 Pro) Rafhlaða

Áður en hafist er handa

VIÐVÖRUN

  • HÆTTA Á INNTÖKU: Þessi vara inniheldur hnapparafhlöðu.

  • Inntaka hennar getur valdið DAUÐA eða alvarlegum meiðslum.

  • Ef hnapparafhlaða er gleypt getur hún valdið innvortis efnabruna á aðeins tveimur klukkustundum.

  • GEYMIÐ nýjar og notaðar rafhlöður ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL.

  • Leitið umsvifalaust til læknis ef grunur leikur á um að rafhlaða hafi verið gleypt eða sett inn í líkamann.

Viðvörun

  • Ekki tengja tölvuna við ytri aflgjafa meðan á viðgerð stendur.

  • Eftir að samband við aflgjafa hefur verið rofið, bíðið í 1 mínútu þar til rafhlaðan hefur afhlaðist áður en haldið er áfram.

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • Torx Plus 25 mm 3IP-biti

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt: Þessi gerð þarf BR1632 rafhlöðu. Kaupa má nýjar rafhlöður hjá söluaðilum raftækja.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 3IP-bita til að fjarlægja tvær 3IP-skrúfur (923-11928) úr rafhlöðulokinu. Lyftið síðan rafhlöðulokinu með rafhlöðunni af tengispjaldi loftnetsins.

  2. Fjarlægið rafhlöðuna úr rafhlöðulokinu.

Samsetning

Viðvörun: Setjið aðeins BR1632A rafhlöðu í. Hætta er á sprengingu ef rafhlaðan er sett rangt í eða skipt út fyrir nýja rafhlöðu af rangri tegund. Notuðum rafhlöðum skal farga í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir.

Athugið: BR1632A og CR1632A rafhlöður eru með sama form og nafnspennu. Hins vegar hafa BR1632A rafhlöður lægri afhleðsluhraða og breiðara vinnsluhitasvið en CR1632A rafhlöður fyrir lengra geymsluþol og endingartíma.

  1. Setjið rafhlöðuna í rafhlöðulokið og látið plúshlið (+) hennar snúa að lokinu og mínushliðina (-) snúa upp.

    • Viðvörun: Hætta er á sprengingu ef rafhlaðan er sett rangt í. Gangið úr skugga um að rafhlaðan sé rétt ísett.

  2. Snúið rafhlöðulokinu með rafhlöðunni við og komið því fyrir á tengispjaldi loftnetsins eins og sýnt er. Látið skrúfugötin á rafhlöðulokinu flútta við skrúfugötin á loftnetsplötunni.

  3. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 10 Ncm. Notið síðan stillanlega átaksmælinn og 3IP-bita til að skrúfa 3IP-skrúfurnar tvær (923-11928) aftur í rafhlöðulokið.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: